1 / 50

3.kafli – Frumur

3.kafli – Frumur. Frumur eru grunneiningar allra lífvera Einfruma lífverur eru gerðar úr einni frumu Fjölfruma lífverur eru úr mörgum frumum Lögun og starfsemi frumna er breytileg en öll helstu frumulíffæri eru eins hjá þeim flest öllum Allt efni frumu er kallað frymi

bonnie
Download Presentation

3.kafli – Frumur

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. 3.kafli – Frumur • Frumur eru grunneiningar allra lífvera • Einfruma lífverur eru gerðar úr einni frumu • Fjölfruma lífverur eru úr mörgum frumum • Lögun og starfsemi frumna er breytileg en öll helstu frumulíffæri eru eins hjá þeim flest öllum • Allt efni frumu er kallað frymi • Milli frumuhimnu og kjarna er þykkfljótandi efni sem kallast umfrymi.

  2. 3-1 Gerð og hlutverk frumna (bls. 52-60) Frumuveggur er ysta lag í plöntufrumum hlutverk hans er að: Vernda frumu og veita henni styrk. • Gerður úr beðmi • Finnst í plöntufrumum en ekki í dýrafrumum Einkenni lífvera

  3. 3-1 Gerð og hlutverk frumna (bls. 52-60) Frumuhimna Innan við frumuvegginn í plöntufrumu og ysta lag dýrsfrumu er frumuhimna. Helsta hlutverk hennar er að: Stjórna flutningi efna inn og út úr frumunni og afmarka frumu frá umhverfi sínu • Frumuhimnan ræður lögun frumunnar Einkenni lífvera

  4. Einkenni lífvera

  5. 3-1 Gerð og hlutverk frumna (bls. 52-60) Kjarninn Kjarninn er stórt og egglaga frumulíffæri. Hann er stundum kallaður “heili” frumunnar því hann stýrir allri starfsemi hennar. Þunna himnan sem skilur að kjarnann og umfrymið nefnistkjarnahimna. • Kjarninn geymir litningana. Einkenni lífvera

  6. 3-1 Gerð og hlutverk frumna (bls. 52-60) Litningar • Inni í kjarnanum eru grannir þræðir sem eru gerðir úr kjarnsýrum (DNA og RNA) og heita litningar. • DNA er alltaf kyrrt í kjarnanum en RNA fer úr kjarnanum til að stjórna prótínsmíðinni Einkenni lífvera

  7. 3-1 Gerð og hlutverk frumna (bls. 52-60) Kjarnakorn Í kjarnanum er líka korn sem er gert úr úr RNA og prótínum og kallast kjarnakorn • Tekur þátt í myndun ríbósóma Einkenni lífvera

  8. 3-1 Gerð og hlutverk frumna (bls. 52-60) Frymisnet • Í hlaupkenndu umfryminu eru himnur sem mynda flókið kerfi ganga sem minna helst á völundarhús. Þetta gangakerfi kallast frymisnet. Hlutverk þess er að taka þátt í smíði og flutningi prótína. Einkenni lífvera

  9. Einkenni lífvera

  10. 3-1 Gerð og hlutverk frumna (bls. 52-60) Ríbósóm Í frumysnetinu sitja lítil korn sem nefnast ríbósóm. • Þau eru stundum kölluð prótínverksmiðjur því að í þeim eru amínósýrur tengdar saman og prótín mynduð. • Gerð úr RNA Einkenni lífvera

  11. Myndun prótína Einkenni lífvera

  12. 3-1 Gerð og hlutverk frumna (bls. 52-60) Hvatberar Fljótandi í umfryminu eru orkuver frumunnar því í þeim er orka unnin úr fæðunni. Þetta eru hvatberarnir. • Vinna orku úr fæðu-sameindunum sem berast inn í frumu • Orkuvinnslan er kölluð bruni eða frumuöndun Einkenni lífvera

  13. Hvort heldur þú að séu fleiri slík orkuver í vöðvafrumu eða beinfrumu? Af hverju? Í vöðvafrumu ,því þær nota mikla orku þegar þær dragast saman. Einkenni lífvera

  14. 3-1 Gerð og hlutverk frumna (bls. 52-60) Safabólur • ,,Geymslutankar” frumunnar safabólur. • Þar eru geymd ýmis efni t.d. fæðuefni, ensím, vatn. • Í plöntufrumum eru fáar stórar safabólur og geyma vatn. • Í dýrafrumum eru margar litlar Einkenni lífvera

  15. 3-1 Gerð og hlutverk frumna (bls. 52-60) Leysikorn eru algeng í dýrsfrumum en fá í plöntufrumum • Þau innihalda ensím og hlutverk þeirra er að hjálpa til við meltingarstarfsemi í frumunni. Einkenni lífvera

  16. 3-1 Gerð og hlutverk frumna (bls. 52-60) Grænukorn Í plöntufrumum finnast líka stór græn frumulíffæri grænukornin. • Innihalda grænt litarefni – blaðgrænu • Hlutverk blaðgrænu er að beisla orku sólar og nýta hana til að búa til fæðuefni í ferli sem kallast ljóstillífun Einkenni lífvera

  17. Einkenni lífvera

  18. Nefndu tvö frumulíffæri sem plöntufrumur hafa en ekki dýrsfrumur: Grænukorn og frumveggur • Er eitthvað annað sem greinir að plöntu- og dýrsfrumu? Plöntufrumur hafa eina eða fáar stórar safabólur en dýrafrumur margar litlar. Einkenni lífvera

  19. Dýrsfruma Leysikorn Golgikerfi Frumuhimna Hvatberi Safabóla Frymisnet Ríbósóm Kjarni Einkenni lífvera

  20. Plöntufruma Leysikorn Grænukorn Hvatberi Golgikerfi Frumuhimna Frumuveggur Safabóla Frymisnet Ríbósóm Kjarni Einkenni lífvera

  21. Upprifjun 3-1(bls.60) • Allt efni frumunnar, bæði frumuhimna, umfrymi og kjarni. • DNA og RNA • Ríbósóm og frymisnet. • Plöntufrumur: hafa frumuvegg, grænukorn, fá leysikorn og eina (fáar) stóra safabólur. Dýrafrumur: hvorki með frumuvegg né grænukorn, mörg leysikorn og margar litlar safabólur. Einkenni lífvera

  22. 3-2 Starfsemi frumna(bls.60-67) • Í hverri frumu fer fram starfsemi sem einkennir allt líf • Efnaskipti, flæði, osmósa og frumuskipting er dæmi um slíka starfsemi Einkenni lífvera

  23. 3-2 Starfsemi frumna(bls.60-67) Efnaskipti: • Frumur þurfa orku til starfsemi sinnar • Orkuna fá þær úr fæðunni en þurfa að breyta henni til að geta nýtt sér hana • Umbreytingin er flókin, sameindum er sundrað og nýjar verða til – það er kallað efnaskipti Efnaskiptin fara fram í hvatberum Einkenni lífvera

  24. 3-2 Starfsemi frumna(bls.60-67) Flæði: • Er flutningur sameinda þaðan sem mikið er af þeim, þangað sem lítið er af þeim • Mögulegt vegna hreyfingar sameinda, þær rekast saman og dreifast hver frá annarri • Frumuhimnur eru valgegndræpar • Súrefni, vatn og næringar-efni flytjast yfir frumuhimnu með flæði. Einkenni lífvera

  25. 3-2 Starfsemi frumna(bls.60-67) Osmósa: • Vatn er mikilvægasta efnið sem fer gegnum frumuhimnur. Það ferðast í gegn með osmósu sem er sérstök tegund flæðis. • Osmósa er flutningur vatns gegnum frumuhimnur, þaðan sem mikið er af því, þangað sem styrkur þess er minni Einkenni lífvera

  26. 3-2 Starfsemi frumna(bls.60-67) Osmósa: • Fruma sem sett er í salt vatn tapar vatni út úr sér því að vatnið flæðir úr til að jafna styrkinn úti og inni. Fruman dregst saman • Fruma sem sett er í ferskt vatn tútnar út því vatnið streymir inn í hana Einkenni lífvera

  27. 3-2 Starfsemi frumna(bls.60-67) Fruma sett í vatn með sama styrk og er í henni Fruma sett í salt vatn Fruma sett í eimað vatn Einkenni lífvera

  28. 3-2 Starfsemi frumna(bls.60-67) • Þar sem hvorki osmósa né flæði þarfnast orku frá frumunni eru þau mjög heppilegur flutningsmáti fyrir hin ýmsu efni Einkenni lífvera

  29. Lýstu því sem gerist í frumunum Glas 1. Ekkert gerist. Glas 2. Fruma tútnar út. (vatn flæðir inn í hana). Glas 3. Fruma tapar vatni (dregst saman). Einkenni lífvera

  30. 3-2 Starfsemi frumna(bls.60-67) Burður: • Stundum komast efni ekki gegnum frumuhimnu þó að þörf sé fyrir þau í frumunni • Þá er notaður virkur flutningur (burður) þar sem sérstök burðarefni flytja önnur efni í gegn • Burður krefst orku Einkenni lífvera

  31. 3-2 Starfsemi frumna(bls.60-67) Frumuskipting: • Tvær gerðir af frumuskiptingum: • Jafnskipting (mítósa) • Rýriskipting (meiósa) http://www.youtube.com/watch?v=aDAw2Zg4IgE Einkenni lífvera

  32. Einkenni lífvera

  33. 3-2 Starfsemi frumna(bls.60-67) Jafnskipting (mítósa) • Aðferð frumna til að fjölga sér • Ein fruma verður að tveimur • Nýja fruman kallast dótturfruma og er nákvæm eftirmynd móðurfrumunnar • http://www.youtube.com/watch?v=-mWUpdxIDrc&feature=related Einkenni lífvera

  34. 3-2 Starfsemi frumna(bls.60-67) Jafnskipting (mítósa) • Tilgangur: • Einfrumungur fjölgar sér • Fjölfrumungur bætir við frumum til að stækka • Koma í stað dauðra frumna hjá fjölfrumungi http://www.youtube.com/watch?v=VlN7K1-9QB0&feature=related Gott myndband Einkenni lífvera

  35. 3-2 Starfsemi frumna(bls.60-67) Jafnskipting (mítósa) • Frumuskipting manna með 46 litninga hefst á þvi að fruman býr til nákvæma eftirmynd litninga sinna. • Síðan dragast litningarnir í sitt hvorn enda frumunnar og umfrymið skiptist í tvo hluta • Myndast þá tvær frumur sem hvor hefur 46 litninga eins og móðurfruman mítósa Einkenni lífvera

  36. 3-2 Starfsemi frumna(bls.60-67) Rýriskipting (meiósa) • Notuð þegar kynfrumur myndast • Þá myndast 4 frumur af einni móðurfrumu • hver dótturfruma hefur helmingi færri litninga en móðurfruman (annan litning í litningapari) • http://www.youtube.com/watch?v=D1_-mQS_FZ0 Gott Einkenni lífvera

  37. 3-2 Starfsemi frumna(bls.60-67) Rýriskipting (meiósa) • Kynfrumur manna hafa 23 litninga • Þegar eggfruma og sáðfruma sameinast við frjóvgun raðast litningarnir (46) saman meiósa Einkenni lífvera

  38. Einkenni lífvera

  39. Einkenni lífvera

  40. Upprifjun 3-2(bls.67) • Öll efnahvörf sem fram fara í lífveru, sundrun og nýmyndun efna. • Flutningur vatns gegnum frumuhimnu frá svæði þar sem styrkur vatns er meiri til svæðis þar sem styrkur þess er minni . • Jafnskipting - mítósa. Einkenni lífvera

  41. Fjölvalsspurningar (bls.69-70) • C • D • A • B • B • D • A • D • B • A Einkenni lífvera

  42. Eyðufyllingar (bls.70) • Frymi • Samvægi • DNA (DKS) og RNA (RKS) • Hvatberar • Safabólur • Leysikorn • Flæði • Osmósa • Jafnskipting • rýriskiptingu Einkenni lífvera

  43. Rétt eða rangt (bls.71) • Rangt (plöntufrumu) • Rangt (kjarninn) • Rétt • Rangt (umfrymi) • Rétt • Rangt (blaðgrænu) • Rétt • Rangt (út úr) • Rétt • Rangt (rýriskiptingu) Einkenni lífvera

  44. Stutt og laggott (bls.71) • Kjarni: stjórnar starfsemi frumu. Litningar: stjórna smíði prótína og miðla erfðaupplýsingum frá einni frumu til annarrar í frumuskiptingu. Hvatberar: afla frumunni orku. Ríbósóm: taka þátt í smíði prótína. Grænukorn: annast ljóstillífun í plöntufrumum. Safabólur: geyma fæðuefni, vatn og fl. Frymisnet: flutningakerfi fyrir efni frumunnar. Frumuhimna: velur úr ákveðin efni og heldur þeim inni í frumunni, en gerir öðrum efnum kleift að fara inn í frumuna eða út úr henni. Einkenni lífvera

  45. Stutt og laggott (bls.71) • Heppilegast væri að koma grænukornum fyrir í húðfrumum manns. Ljóstillífun er knúin af orku frá sólu og frumur húðar eru þær sem helst gætu tekið til sín sólarorkuna. • Þegar planta missir mikið vatn skreppa safabólur saman og innri þrýstingur minnkar. Þegar plantan er vökvuð þenjast safabólur út því þær geyma f.o.f. vatn hjá plöntum. Einkenni lífvera

  46. Stutt og laggott (bls.71) 4. Fruma A fjölgar sér hraðast við 35°C. Fjölgunin verður örari eftir því sem hitinn hækkar á bilinu frá 10° - 35°. Á bilinu frá 35° - 50° hægir á fjölgun frumnanna. Einkenni lífvera

  47. Myndband Frumur og vefir • Frumuhimnu, kjarni, umfrymi og hvatberar. • Eins og kleinuhringir án gats. • Flytja súrefni. • Hópur frumna sem mynda eina heild og gegna sama hlutverki. • Já • Nei • Stafvefur Einkenni lífvera

  48. Með holrúmi á milli. • Kassalaga • stór safabóla • Frumuhimnu innan við frumuvegginn. • Loftaugun (varafrumur innan í þeim) stjórna því hve mikið vatn tapast úr laufblöðunum og hve mikið koltvíoxíð fer inn og hve mikið súrefni út. Einkenni lífvera

  49. Stækka yfirborðið og taka upp steinefni og vatn fyrir plöntuna. • Þykkir veggir eins og undnir gormar. • Jafnskipting (mítósa) • Litningar • Fara jafn margir litningar í báðar frumurnar sem myndast. • Í æxlunarfærum plantna og dýra. Einkenni lífvera

  50. Helmingi færri litninga en aðrar frumur líkamans. • Þær renna saman við frjóvgun. Við það fá þær sama litningafjölda og aðrar frumur. Ef þær væru með jafn marga litninga og aðrar frumur myndi litningafjöldinn tvöfaldast og engin lífvera verða til. Einkenni lífvera

More Related