1 / 11

Þolmörk íslenskrar ferðaþjónustu

Þolmörk íslenskrar ferðaþjónustu. Gunnar Rafn Birgisson. Sumar spár eru líklegri en aðrar til að rætast!. Ef innviðirnir bresta breytast forsendur!. Ef það gerist mun spá um milljón ferðamenn ekki rætast Þurfum að geta veitt góða og frambærilega þjónustu fyrir alla þá sem hingað koma!

Download Presentation

Þolmörk íslenskrar ferðaþjónustu

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Þolmörk íslenskrar ferðaþjónustu Gunnar Rafn Birgisson

  2. Sumar spár eru líklegri en aðrar til að rætast!

  3. Ef innviðirnir bresta breytast forsendur! • Ef það gerist mun spá um milljón ferðamenn ekki rætast • Þurfum að geta veitt góða og frambærilega þjónustu fyrir alla þá sem hingað koma! • Þurfum að halda í það sem gerir Ísland einstakt fyrir erlenda ferðamenn og vernda og viðhalda töfrum íslenskrar náttúru! • Ekki nægjanlegt að eiga flugsæti eða bryggjupláss fyrir milljón manns... Við þurfum að geta sinnt þessum gestum þegar þeir eru komnir á staðinn

  4. Markaðsmál byggjast ekki eingöngu á því að fjölga gestum! • Varan okkar þarf líka að vera í lagi fyrir milljónasta ferðamanninn og fullnægja hans væntingum og óskum. • Neikvæðri umræðu byggðri á lélegri upplifun er erfitt að snúa við. • Svo virðist sem tekjur á hvern ferðamann fari lækkandi og meira lagt upp úr því að fjölga “hausum” en tekjum á mann.

  5. Hvað þurfum við að gera til að ná markmiði um milljón ferðamenn? Betri dreifing gesta yfir árið • Flestir vilja væntanlega eftir sem áður koma á sumrin. Jafnvel þótt við leggjum áherslu á veturinn í markaðssetningu. Betri dreifing gesta yfir daginn Myrkrið getur verið áhugavert, lýsum upp áhugaverða staði t.a.m– Gullfoss – Geysi – Þingvelli – Goðafoss með umhverfisvænni orku! – vannýttir möguleikar í dag. Betri dreifing gesta um landið • Hvernig eru innviðir utan helstu núverandi ferðamannastaða? Fáum ekki fjölbreyttari dreifingu ferðamanna fyrr en fleiri áhugaverðir staðir eru tilbúnir til að taka á móti fleiri gestum.

  6. “Af hverju ekki bara að takmarka fjöldann á Gullna hringnum og senda fólk annað?” • Ef við ættum sjálf einn dag í Kairó – Hvað myndum við vilja sjá og heimsækja? • Flestir myndu velja að skoða pýramídana og egypska þjóðminjasafnið... Eða hvað? • Í dag er Gullni hringurinn meðal okkar verðmætustu “pýramída”. • Við þurfum hinsvegar að byggja fleiri “pýramída” og bæta aðstöðuna nærri þeim sem þegar eru í notkun.

  7. Nýir áhugaverðir ferðamannastaðir • Byggjum upp fleiri ferðamannastaði – náttúrutengda eða manngerða. • Bláa Lónið er dæmi um vinsælan manngerðan ferðamannastað og flestir erlendir ferðamenn koma þar við á ferðum sínum um landið • Við þurfum meiri fjárfestingu í aðstöðu og innviðum í ferðaþjónustunni til uppbyggingar. Bæði á þeim stöðum sem eru vinsælir í dag og einnig á nýjum stöðum • Í dag þurfum við sem ferðaskipuleggjandi t.d. oft að bjóða ferðir fyrir stóra hópa á svæði þar sem WC aðstaða er í boði, en ekki endilega þangað sem áhugaverðast og fallegast væri að fara. – • Léleg salernisaðstaða er einn helsti óánægjuþáttur ferðamanna í könnun ferðamálastofu um upplifun ferðamanna hér á landi.

  8. Hver á að gera hvað? • Eru skattar að skila sér í uppbyggingu innviða? • Hver á að byggja upp innviðina? Ríki, sveitarfélög, fyrirtæki? • Ekki benda á mig! • T.d. göngustígar við Geysi, pallar og gönguleiðir við Gullfoss • Takmörkuð salernisaðstaða víða t.d. Á Snæfellsnesi, í kringum Dettifoss, á Vestfjörðum, í kringum Mývatn eða jafnvel á svæðum nærri þéttbýli t.d á Reykjanesi.

  9. Skemmtiferðaskipin reyna á þolmörkin • Skipin eru m.a að stækka og fjöldi gesta er nú þegar að fara fram úr þolmörkum eða afkastagetu á einstökum höfnum, þ.m.t Reykjavik, svo ekki sé minnst á smærri staði. • Hafnaryfirvöld hafa ekki viljað hafa áhrif á komur skipanna, en gegna þar engu að síður lykilhlutverki. (geta t.d. gefið grænt, gult eða rautt ljós þegar bryggjupláss er bókað í ljósi þolmarka) • Viljum við boð og bönn opinberra aðila eða samstarf milli hagsmunaaðila? • Þurfum aukið samstarf hafnanna,skipaumboðsaðila og ferðaskipuleggjenda til þess að tryggja góða þjónustu í landi.

  10. Kannski ekki alveg 72 milljónir ennþá.. En á réttri leið!

  11. Takk fyrir.... • Í dag setjum við markið hátt í ferðaþjónustunni og ætlum að taka á móti einni milljón gesta á einu ári.. • Megi okkur öllum ganga vel að þjóna milljónasta ferðamanni ársins þegar hann kemur til landsins..

More Related