190 likes | 328 Views
,, I can’t find my gula gloves ” Um mikilvægi móðurmáls fyrir börn á leikskólaaldri. Fríða B. Jónsdóttir Leikskólaráðgjafi Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis. Þróunarverkefnið “Lækjaborg, fjölmenningarlegur leikskóli.”. Þróunarverkefnið hófst haustið 2001 og því lauk sumarið 2004.
E N D
,,I can’t find mygulagloves”Um mikilvægi móðurmáls fyrir börn á leikskólaaldri. Fríða B. Jónsdóttir Leikskólaráðgjafi Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis. Fríða B. Jónsdóttir leikskólaráðgjafi frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
Þróunarverkefnið “Lækjaborg, fjölmenningarlegur leikskóli.” • Þróunarverkefnið hófst haustið 2001 og því lauk sumarið 2004. • Í ágúst 2005 kom út skýrsla á vegum Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla Íslands og leikskólans Lækjaborgar um þróunarverkefnið. • Á Netlu er að finna grein eftir verkefnisstjóra frá KHÍ þær Önnu Þorbjörgu Ingólfsdóttur og Elsu Sigríði Jónsdóttur. Fríða B. Jónsdóttir leikskólaráðgjafi frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
Markmið þróunarverkefnisins • Eitt af fjórum megin markmiðum þróunarverkefnisins “Lækjaborg, fjölmenningarlegur leikskóli” var að gera móðurmál tvítyngdra leikskólabarna að virtum þætti í leikskólastarfinu. • Leiðirnar fólust í því að: • Starfsfólk aflaði sér aukinnar þekkingar á máltöku annars máls og mikilvægi móðurmáls fyrir börn. • Samstarf við foreldra af erlendum upprunavar aukið. • Unnið var með ritmál og móðurmál barnanna í daglegu starfi leikskólans. Fríða B. Jónsdóttir leikskólaráðgjafi frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
Upphaf leikskólagöngu • Við upphaf leikskólagöngu barnsins þarf leikskólakennari barnsins að: • Afla upplýsinga frá foreldrum í fyrsta viðtali um þau tungumál sem töluð eru á heimilinu. • Fá góðar bakgrunnsupplýsingar um barnið og fjölskyldu þess. • Fá foreldra til þess að útbúa orðalista með algengum orðum. • Mynda traust og örugg tengsl við foreldra í upphafi og leita leiða til að viðhalda þeim Fríða B. Jónsdóttir leikskólaráðgjafi frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
Tilfinningalegi þátturinn • Tökum dæmi af 4 ára stúlku sem talar annað móðurmál en íslensku og er að koma í íslenskt málumhverfi í fyrsta skipti. Hvaða tilfinningar og hugsanir bærast innra með henni? Hvernig líður okkur í nýjum aðstæðum og nýju málumhverfi? • Ég er feymin, mig langar ekki til að tala fyrir framan alla, krakkarnir gætu hlegið að mér! • Ég er þreytt, allt þetta nýja mál í kringum mig, ég get ekki hlustað lengi í einu! • Ég hef áhyggjur, allir nema ég vita hvað þeir eiga að gera næst! • Ég er örvæntingarfull, ég veit ekki hvort ég er að gera hlutina rétt! • Ég er einmana, ég get ekki verið með hinum krökkunum, mig langar til að eignast vini! • Ég upplifi mikið álag, ég veit aldrei hvað ég á að gera og reyni þess vegna að fylgjast stöðugt með því hvað hin börnin gera til þess að ég geti reynt að gera rétt! • Ég skil þetta ekki alveg, má ég leika mér allan þennan tíma, má ég borða þetta, þarf ég að sitja kyrr við borðið eða á gólfinu svona lengi án þess að vita hvað kennarinn er að gera! • Ég er reið, ég var ánægð áður, ég sakna vina minna. Fríða B. Jónsdóttir leikskólaráðgjafi frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
Virðing fyrir móðurmáli barnanna • Börn koma í leikskólann með ákveðna þekkingu á heiminum. • Í leikskólaumhverfinu þarf að líta á það sem kost en ekki galla að börn séu fær um að tala fleiri en eitt tungumál. Fríða B. Jónsdóttir leikskólaráðgjafi frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
Málumhverfi barna • Ríkulegt málumhverfi barna er mikilvægt • Með tilliti til móðurmáls • Með tilliti til íslensku • Í stað þess að letja börn til þess að tala móðurmál sitt í leikskólanum ætti að hvetja þau til þess á virkan hátt og viðurkenna um leið að öll börn græða á því að heyra ólík tungumál. • Virðing fyrir móðurmáli eykur sjálfstraust barna. • Það er sameiginleg ábyrgð allra í leikskólanumað nýja barnið öðlist fótfestu og öryggi í nýjum aðstæðum. “við kennum honum íslensku, hann kennir okkur búlgörsku” Fríða B. Jónsdóttir leikskólaráðgjafi frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
Unnið með móðurmál í leikskólaumhverfinu. • Fjölbreyttar leiðir til þess að vinna með ólík móðurmál í daglegu starfi leikskólans. Fríða B. Jónsdóttir leikskólaráðgjafi frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
Kveðjur á tungumálum allra í leikskólanum Fríða B. Jónsdóttir leikskólaráðgjafi frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
Tungumál vikunnar • Í hverri viku er hægt að vinna með eitt af þeim tungumálum sem töluð eru í leikskólanum. Þá læra öll börn eitt eða fleiri orð á tungumáli vikunnar, bjóða góðan dag eða syngja lög á viðkomandi máli. Fríða B. Jónsdóttir leikskólaráðgjafi frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
Fjölbreytt ritmál gert sýnilegt. Fríða B. Jónsdóttir leikskólaráðgjafi frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
Fríða B. Jónsdóttir leikskólaráðgjafi frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
Fríða B. Jónsdóttir leikskólaráðgjafi frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
Fríða B. Jónsdóttir leikskólaráðgjafi frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
Fríða B. Jónsdóttir leikskólaráðgjafi frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
Afmælis og jólakveðjur Fríða B. Jónsdóttir leikskólaráðgjafi frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
Fríða B. Jónsdóttir leikskólaráðgjafi frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
Fjölbreytt móðurmál • Starfsmenn/foreldrar af erlendum uppruna lesa fyrir börnin á móðurmáli sínu • Hlusta á tónlist og upplestur á móðurmáli barna í leikskólanum • Fá foreldra til þess að segja frá ferðum til heimalandsins, sýna myndir eða jafnvel myndbönd. Fríða B. Jónsdóttir leikskólaráðgjafi frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
Að lokum • Munum eftir því að sinna tilfinningalegum þörfum barna fyrst af öllu. • Leggjum okkur fram um að nota myndir og tákn til að sýna börnum til hvers er ætlast til af þeim og hvað er næst á dagskrá. • Sýnum móðurmáli barna virðingu. • Leitum leiða til að vinna með móðurmál barna í daglegu starfi ekki bara á hátíðisdögum. Takk fyrir Fríða B. Jónsdóttir leikskólaráðgjafi frida.b.jonsdottir@reykjavik.is