1.23k likes | 1.41k Views
Rekspölur I. Einstaklingur ... Starf ... Fjölskylda. Einstaklingurinn. Við byrjum á að skoða einstaklinginn (það er að segja þig) og þá þætti sem gerðu þig að því sem þú ert núna . Erfðir og umhverfi. Erfitt að segja hvort skipti meira máli í mótun einstaklingsins
E N D
Rekspölur I Einstaklingur ... Starf ... Fjölskylda...
Einstaklingurinn • Við byrjum á að skoða einstaklinginn (það er að segja þig) og þá þætti sem gerðu þig að því sem þú ert núna .... Garðar Gíslason
Erfðir og umhverfi • Erfitt að segja hvort skipti meira máli í mótun einstaklingsins • Rannsóknir á eineggja tvíburum hafa ekki getað skorað afgerandi úr hvort skipti meira máli Garðar Gíslason
Sjálfsmynd: • Sú skoðun sem þú hefur á sjálfum / sjálfri þér. • Sjálfsmyndin mótast í samskiptum við aðra Garðar Gíslason
Persónuleiki • Hugtakið persónuleiki er komið úr grísku og þýddi upphaflega gríma. Nánast útilokað að lýsa hvað persónuleiki er...... • Hver er t.d. þinn persónuleiki? Finnst þér hann hafa breyst eitthvað í gegnum árin? Garðar Gíslason
Þarfir .... • Næst skulum við skoða hvaða þarfir fólk flest hefur. • Nefndu nokkur dæmi um þarfir sem þú hefur. Garðar Gíslason
Þarfir • Lífsnauðsynlegar þarfir: Súrefni, næring, ást, umhyggja og samskipti við aðra. • Efnislegar og félagslegar þarfir: Mismunandi eftir því umhverfi sem við ölumst upp í. Garðar Gíslason
Þarfir • Gerfiþarfir: Allt sem við getum lifað án. Sumir fræðimenn telja að allar þarfir séu raunverulegar og því eigi hugtakið ekki rétt á sér. • Hugtakið er gagnlegt til að átta sig hvað auglýsingar í fjölmiðlum hafa búið til mikið af gerfiþörfum hjá okkur. Garðar Gíslason
Abraham Maslow Þarfapýramídinn (bls. 50) • Líffræðilegar þarfir. • Þörf fyrir öryggi. • Þörf fyrir félagsleg tengsl. • Þörf fyrir sjálfsvirðingu. • Þörf fyrir lífsfyllingu. Garðar Gíslason
Félagsmótun • Felst í að kenna okkur að verða að nýtum samfélagsþegnum í því samfélagi sem við ölumst upp í. Garðar Gíslason
Félagsmótun Félagsmótun er ævilangt ferli og skiptist í: • Frummótun: Undirstöðureglur samfélagsins. Fjölsyldan kemur mest að þessu ferli. • Síðmótun: Viðbótarreglur sem tengjast þeim hópum sem við umgöngumst. Dæmi: Skólinn, vinnan, félagar, íþróttafélög, stjórnmálaflokkar, trúfélög og fjölmiðlar. Garðar Gíslason
Félagsmótun er mismunandi eftir • búsetu; þéttbýli, dreifbýli, landi • kyni • aldri • tíma • systkinaröð og mörgu fleiru Garðar Gíslason
Helstu félagsmótunaraðilar • Fjölskyldan • Skólinn • Félagarnir • Fjölmiðlar • Aðrir (íþróttafélög, trúarhópar, stjórnmálaflokkar og fleiri) Garðar Gíslason
Félagsmótun - fjölskyldan • Fjölskyldan er mikilvægasti félagsmótunaraðilinn. Hún leggur grunn að öryggiskennd og sjálfstrausti barnsins. • Foreldrar oftast fyrirmyndir barnanna Garðar Gíslason
Félagsmótun - fjölskyldan • Uppeldisaðferðirnar misjafnar eftir fjölskyldum – en eitt er þeim öllum sameiginlegt (hvar sem er í heiminum), og það er að strákar og stelpur hljóta mismunandi félagsmótun. Garðar Gíslason
Félagsmótun - skólinn • Á að meðhöndla alla eins • Miðlar hugmyndum, gildum, færni og þekkingu • Flokkar nemendur niður (einkunnargjafir). Garðar Gíslason
Félagsmótun – skólinn • Í Grikklandi til forna var litið á menntun sem tómstundir. Skhole þýddi frítími – hefur þetta viðhorf breyst eitthvað síðastliðin 2000 ár? Garðar Gíslason
Félagsmótun - skólinn • Dulda námskráin: Ýmsar óskráðar reglur skólans. Mikilvægar í félagsmótuninni og eru dæmi um óformleg viðmið (t.d. að sitja kyrr og vera kurteis í tímum). Garðar Gíslason
Félagsmótun - félagarnir • Mjög mikilvægur hópur á unglingsárunum. • Í vinahópnum prófar og kynnist unglingurinn mismunandi hliðum af sér við ólíkar aðstæður. Reynsla hópsins verður að sameiginlegri reynslu. Garðar Gíslason
Félagsmótun - félagarnir • Sérstakar reglur, skoðanir og hegðun tíðkast innan vinahópsins – og þær eru oft í andstöðu við ríkjandi reglur/ skoðanir (þeirra fullorðnu). Garðar Gíslason
Vináttan • Hér verður þú að þekkja muninn á vináttusamböndum stráka annars vegar og stelpna hins vegar (á unglingsárunum). • Margir unglingar átta sig ekki á eðli vináttunnar – og setja jafnaðarmerki á milli vinsælda og fjölda vina sem þeir eiga. Fjöldi vina segir lítið til um gæði vináttunnar. Garðar Gíslason
Vináttan • Erlendar rannsóknir benda til að um 20 unglinga eigi enga vini. Hlutfallið er mjög líklega það sama hér. Garðar Gíslason
Unglingavandamál • Þeir sem eru að alast upp í dag mæta allt öðrum vandamálum en eldri kynslóðir Garðar Gíslason
Unglingavandamál • Lengri skólaganga • Vaxandi atvinnuleysi • Minni tengsl við fullorðna Garðar Gíslason
Unglingavandamál • Upplausn félagslegra tengsla, t.d. vegna skilnaðar foreldra eða uppreysnar unglingsins • Mikil aukning á tíðni sjálfsvíga Garðar Gíslason
Sjálfsvíg • Önnur algengasta dánarorsök stráka á aldrinum 15-24 Garðar Gíslason
Sjálfsvíg • Sjálfsvígstilraunir algengari meðal kvenna en karla. Aðferðirnar sem karlar nota eru grófari og því tekst tilraunin mun oftar hjá þeim • Miklar sveiflur í sjálfsvígum á milli ára Garðar Gíslason
Félagsmótun - fjölmiðlar • Fjölmiðlar verða sífellt mikilvægari varðandi félagsmótun. Garðar Gíslason
Helstu einkenni fjölmiðla • Ná til mjög stórs hóps fólks • Dreifing boðskapar gengur mjög hratt fyrir sig • Sendendur og mótttakendur fjölmiðlaefnis þekkja ekki hvorn annan. Einstefnumiðlun. Garðar Gíslason
Helstu fjölmiðlar • Sjónvarp • Myndbönd • Útvarp • Dagblöð, tímarit • Kvikmyndir • Bækur • Geisladiskar og fleira Garðar Gíslason
Netið hefur sérstöðu meðal fjölmiðla: • Sendendur og mótttakendur efnisins oft í nánu sambandi hvor við annan • Tvístefnumiðlun – boðin ganga í báðar áttir Garðar Gíslason
Áhrif fjölmiðla • Greint á milli skammtíma – og langtímaáhrifa fjölmiðla. Garðar Gíslason
Viðmið og gildi • Viðmið eru sérstakar skráðar og óskráðar reglur sem segja okkur hvernig við eigum að haga okkur við mismunandi aðstæður. Garðar Gíslason
Viðmið og gildi • Gildi eru hugmyndir um hvað sé gott, rétt og æskilegt. • Munurinn á gildum og viðmiðum: Gildi eru hugmyndir en viðmið eru reglur. Garðar Gíslason
Viðmið • Formleg viðmið: Skáðar reglur. Dæmi: Íslensk lög, boðorðin tíu eða skólareglur. Garðar Gíslason
Viðmið • Óformleg viðmið: Óskráðar reglur. Dæmi: Þegjandi samkomulag um hvernig á að koma fram við mismunandi aðstæður. T.d. vinátta, borðsiðir, klæðaburður, framkoma o.fl. Garðar Gíslason
Félagslegt taumhald • Þær aðferðir sem samfélagið beitir þig svo þú farir eftir formlegu eða óformlegu viðmiðunum. Garðar Gíslason
Félagslegt taumhald • Dulið félagslegt taumhald: Þú stelur ekki verðmætum annarra þó svo að enginn sé nálægur. • Sýnilegt félagslegt taumhald: Þér er hrósað fyrir að ná góðum árangri á prófi. Garðar Gíslason
Félagslegt taumhald • Umbun (jákvætt): • Formlegt taumhald: Góðar einkunnir, verðlaun og stöðuhækkun. • Óformlegt taumhald: Hrós, klapp á öxlina og hvatning. Garðar Gíslason
Félagslegt taumhald • Viðgjöld (neikvætt): • Formlegt taumhald: Refsing, sektir og fangelsun. • Óformlegt taumhald: Athugasemdir, háðsglósur og stimplun. Garðar Gíslason
Frávik • Frávik eru brot á viðmiðum samfélagsins. Þau eru breytileg eftir stað og tíma. Fólk brýtur af sér vegna vankunnáttu eða vegna þess að það er ósammála viðmiðunum. Garðar Gíslason
Frávik • Alvarlegast gerð frávika eru afbrot. • Dulin frávik: Þú segist ekki stela en gerir það samt. • Sýnileg frávik: Þú klæðir þig öðruvísi en allir aðrir. Garðar Gíslason
Staða og hlutverk • Staða einstaklings segir til um hver hann er, hvar hann er og hvaða hópi hann tilheyrir. Dæmi: Nemandi. Garðar Gíslason
Staða og hlutverk • Hverri stöðu fylgja nokkur hlutverk sem segja til um hvers fólk væntir af þeim sem hefur stöðuna. Dæmi: Góður eða slæmur nemandi. • Staða og hlutverk eru því nátengd. Garðar Gíslason
Stöður • Áskipaðar stöður: Þær stöður sem þú fæðist inn í og getur yfirleitt ekki breytt. Dæmi: Kyn, aldur og ætt. Garðar Gíslason
Stöður • Áunnar stöður: Þær stöður sem þú getur valið þér, t.d. vegna menntunar eða hæfileika. Dæmi: Nemandi, kennari, íþróttahetja. • Hverri stöðu fylgja ákveðin viðmið og þær njóta mismikillar virðingar. Garðar Gíslason
Hlutverk • Hlutverkaspenna: Þegar við reynum að leika tvö eða fleiri hlutverk í einu, sem passa ekki saman, getur myndast spenna milli hlutverkanna. Garðar Gíslason
Kynhlutverk • Kynhlutverk: Allar væntingar sem gerðar eru til einstaklings út frá kyni. Þessar væntingar eru að mestu leiti félagslega ákvarðaðar en ekki líffræðilega. Garðar Gíslason
Kynhlutverk • Væntingar til karla: Athafnasamir, líkamlega sterkir, ágengir og harðir af sér. • Væntingar til kvenna: Hlédrægar, lítillátar, sýni aðlögunarhæfni og séu auðmjúkar. Garðar Gíslason
Kynhlutverk • Kynhlutverk endurspegla starfs- og námsval einstaklinga í samfélaginu. Garðar Gíslason