610 likes | 891 Views
3-1 Sólkerfið verður til bls.76-78. Sól ásamt öllu sem gengur kringum hana, þ.e. reikistjörnur og tungl þeirra, smástirni, halastjörnur og geimsteinar kallast einu nafni sólkerfi .
E N D
3-1 Sólkerfið verður til bls.76-78 • Sól ásamt öllu sem gengur kringum hana, þ.e. reikistjörnur og tungl þeirra, smástirni, halastjörnur og geimsteinar kallast einu nafni sólkerfi. • Okkar sólkerfi samanstendur af einni sól, níu (?) reikistjörnum, fjölda tungla, smástirna, halastjarna og geimsteina.
3-1 Sólkerfið verður til bls.76-78 Geimþokukenningin • Sólkerfið okkar er talið hafa myndast fyrir um 4,6 milljörðum ára. • Nálægt geimþoku sprakk sprengistjarna og rakst efni hennar á geimþokuna sem fór að snúast hraðar. • Þyngdarkraftur dró meira efni inn í þokuna og að miðju hennar.
3-1 Sólkerfið verður til bls.76-78 Geimþokukenningin frh. • Þokan flattist út og varð að skífu með 10 milljarða km þvermál. • Í miðju skífunnar myndaðist sólin okkar og síðan aðrir hlutar sólkerfisins
3-1 Sólkerfið verður til bls.76-78 Reikistjörnur verða til • Eftir að sólin varð til hélt ryk og gas áfram að snúast í kringum hana • Það safnaðist í kekki sem urðu að frumplánetunum • Þær sem voru nálægt sólinni urðu svo heitar að léttar gastegundir tolldu ekki við þær og þess vegna eru þær úr málmum og grjóti – Merkúríus, Venus, Jörðin og Mars.
3-1 Sólkerfið verður til bls.76-78 Reikistjörnur verða til frh. • Þær frumplánetur sem voru lengra frá sólinni gátu haldið í léttar gastegundir og urðu mjög stórar – Júpíter, Satúrnus, Úranus og Neptúnus. • Hugsanlega hefur Plútó verið eitt af tunglum Neptúnusar en hefur losnað frá honum • Minni efniskekkir mynduðu tungl reikistjarnanna • Milli Mars og Júpíters myndaðist smástirnabeltið • Við ystu mörk sólkerfisins myndaðist Oort-skýið – heimkynni halastjarna.
3-2. Lögun jarðar bls. 79-81 • Reikistjörnur eru á stöðugri hreyfingu um himininn meðan aðrar virðast vera kyrrar og kallast því fastastjörnur. • Menn héldu í upphafi að jörðin væri flöt • Forngrikkir (5.öld f.K) gerðu sér grein fyrir kúlulögun jarðar en lengi vel greindi menn á um lögun jarðar.
3-2. Jarðmiðjukenningin bls. 81-82 • Jarðmiðjukenningin er runnin frá Aristótelesi (4.öld f.K) og stjörnufræðingnum Ptólemaíosi (2.öld e.K) • Kenningin gerir ráð fyrir hringhreyfingu sem var talin eðlileg hreyfing himinhnattanna. • Samkvæmt kenningunni gengu reikistjörnurnar umhverfis jörðu líkt og sólin.
3-2. Sólmiðjukenningin bls. 82-83 • N. Kóperníkus (1473-1543) setti fram sólmiðju-kenninguna • Sólmiðjukenningin gerir ráð fyrir því að sólin sé miðja alheimsins og að reikistjörnurnar séu á braut um hana en tunglið á braut um jörðu. • Kópernikus ályktaði líka að reikistjörnurnar færu í sömu stefnu í kringum sól og hann ákvarðaði hlutföllin á brautum reikistjarnanna og umferðartíma þeirra.
3-2. Sólmiðjukenningin bls. 82-83 • Umferðartími er sá tími sem það tekur reikistjörnu að fara eina umferð um sól (eitt ár). • Reikistjörnur snúast líka um möndul sinn og tíminn sem það tekur er kallaður sólarhringur viðkomandi reikistjörnu.
3-2. Brautir reikistjarna bls. 83-84 • Kepler (1571-1630) studdi sólmiðjukenninguna • Hann uppgötvaði að brautir reikistjarnanna eru ekki fullkomnir hringir heldur sporbaugar
3-3 Yfirlit um sólkerfið bls. 85-87 • Skoða vel töflu á bls. 86-87
3-4 Innri reikistjörnur bls 88-94 Merkúríus • næst sólu • Umferðartími = 88 dagar • Alsett gígum • Möndulsnúningur hægur, 1 hringur á 59 dögum
3-4 Innri reikistjörnur bls 88-94 Merkúríus • Mikill hitamunur á þeirri hlið sem snýr að sólu og næturhliðinni • Hiti frá -170 °C til 400°C
3-4 Innri reikistjörnur bls 88-94 Venus • Hefur u.þ.b. sama þvermál, massa og þéttleika og Jörðin • Yfirborð er hulið gulri skýjaþykkni úr brennisteinssýru • Í lofthjúp er mikið af koltvíoxíði sem veldur gróðurhúsaáhrifum
3-4 Innri reikistjörnur bls 88-94 Venus • Hiti verður allt að 480°C og höf sem áður voru hafa gufað upp • Yfirborð með gígum en líka víðáttumiklum sléttum • Snúningur er frá austri til vesturs miðað við sól - bakhreyfing
3-4 Innri reikistjörnur bls 88-94 Venus • Möndulsnúningur er hægur – einn hringur á 243 dögum • lofthjúpurinn lokar hitann inni og því er skuggahliðin næstum jafn heit og sólarhliðin
3-4 Innri reikistjörnur bls 88-94 Jörðin • Nánar fjallað um hana í 4.kafla
3-4 Innri reikistjörnur bls 88-94 Mars • Rauðleitt yfirborð vegna járnoxíðs (ryð) • Ekkert fljótandi vatn en frosið vatn við pólana • Mikil eldfjöll, t.d. Ólympsfjall – stærsta eldfjall í sólkerfinu
3-4 Innri reikistjörnur bls 88-94 Mars • Miklir sandstormar, vindhraði allt að 200 km/klst • Lofthjúpur að mestu úr koltvíoxíði en smá af nitri, argon, súrefni og vatnsgufu
3-4 Innri reikistjörnur bls 88-94 Smástirnabeltið • Milli Mars og Júpíters • Smástirni úr grjóti og málmum • Flest óregluleg að lögun • Líklega efni sem náði ekki að verða að reikistjörnum þegar sólkerfið varð til
3-4 Innri reikistjörnur bls 88-94 • Læra röð reikistjarnanna frá sólu: • Merkúríus • Venus • Jörðin • Mars • smástirnabeltið
3-5 Ytri reikistjörnur bls.95-105 Júpíter • Stærsta reikistjarnan, ef hann hefði meiri massa hefði hann orðið sól • Úr vetni og helíni • Umlukinn skýjum • Möndulsnúningur er hraður
3-5 Ytri reikistjörnur bls.95-105 Júpíter • Rauði bletturinn á suðurhveli sem hefur sést í 300 ár er vegna hvirfilbyls sem geisar þar • Hefur mjög mörg tungl
3-5 Ytri reikistjörnur bls.95-105 Júpíter – tungl Jó • Aðeins stærra en tungl jarðar • Liturinn stafar af brennisteini í yfirborði • Mikil eldvirkni, eldgos eru víða
3-5 Ytri reikistjörnur bls.95-105 Júpíter – tungl Evrópa • Aðeins minna en okkar tungl • Yfirborð mjög slétt úr sprungnum ís og fljótandi vatn undir
3-5 Ytri reikistjörnur bls.95-105 Júpíter – tungl Ganýmedes • stærsta tunglið í sólkerfinu, stærra en Merkúríus og Plútó • Yfirborð að miklu leyti þakið ís
3-5 Ytri reikistjörnur bls.95-105 Júpíter – tungl Kallistó • Mjög mikið af gígum á yfirborði, sem er líklega að hluta til úr ís
3-5 Ytri reikistjörnur bls.95-105 Satúrnus • Hefur hringa úr ísögnum, mismunandi að stærð • Úr vetni og helíni • Möndulsnúningur er hraður • Hefur mjög mörg tungl
3-5 Ytri reikistjörnur bls.95-105 Satúrnus – tungl Títan • Næststærsta tungl sólkerfisins • Hefur lofthjúp sem í er nitur, metan og fleiri lofttegundir
3-5 Ytri reikistjörnur bls.95-105 Úranus • Hefur ský úr metani, helíni og vetni • Hringir úr metanís • Möndulhalli mjög mikill, er eiginlega á hliðinni
3-5 Ytri reikistjörnur bls.95-105 Neptúnus • Mjög svipaður Úranusi • Hefur hugsanlega haf úr vatni og fljótandi metan • Hefur nokkra hringi úr rykögnum • Nokkur tungl, Tríton er þeirra stærst
3-5 Ytri reikistjörnur bls.95-105 Plútó – ekki lengur reikistjarna • líkur tungli • Úr ýmsum frosnum efnum t.d. Metanís • Hefur tunglið Karon sem er helmingi minna en Plútó og því eru þær eins konar tvöföld reikistjarna
4-2 Jörðin í geimnum bls. 120-127 • Þriðja reikistjarnan frá sólu. • Snýst um sólu og kringum sjálfa sig eins og hinar reikistjörnurnar.
Dægraskipti bls. 121-122 • Snúningur jarðar um sjálfa sig kallast möndulsnúningur og tekur um 24 klukkustundir • Möndulsnúningur jarðar veldur dægraskiptum • Á þeim hluta jarðar sem snýr að sólu er dagur en hinum nótt
Árið og árstíðirnar bls. 122-123. • Árstíðaskipti á jörðu ráðast af þrennu: • af ferð jarðar umhverfis sólina þar sem hver hringferð tekur eitt ár (365,24 sólarhringir) • af halla jarðmöndulsins (23,5 °) • af stefnu jarðmöndulsins í himingeimnum sem er ávallt hinn sami, hvar sem jörðin er stödd á braut sinni.
Segulhvolf jarðar bls. 125. • Jörðin er umlukin geysistóru hvolfi sem kallast segulhvolf jarðar. • Segulhvolfið orsakast af segulsviði sem á upptök sín í iðustraumum í innsta kjarna jarðar gerðum úr járni og nikkel. • Segulhvolfið nær í um 64000 km út í geiminn á þeirri hlið sem snýr að sólu en teygist í milljónir km á þeirri hlið sem snýr frá sólinni.
Segulljós • Sólin sendir frá sér rafhlaðnar agnir. Þessar agnir rekast á agnir lofthjúps jarðar nálægt segulskautum hennar. (N-og s-skaut) • Við árekstrana myndast ljós sem við á norðurhveli köllum norðurljós en kallast suðurljós á suðurhveli. • Vegna segulsviðs jarðar sjást þau aðeins á skautunum.
4-3 Tunglið bls. 128-135 • Yfirborð (jarðvegur) tunglsins hefur orðið til á milljörðum ára með látlausri skothríð geimsteina af mismunandi stærð. Örin eftir geimsteinana hafa mótað yfirborðið með misstórum gígum. • Utan gíganna er yfirborðið tiltölulega flatt (höf) sem eru víðáttumikil hraunsvæði. Annar staðar eru fjöll sem teygja sig upp yfir sléttuna, enn annar staðar eru gjár sem eru tugir km.
4-3 Tunglið bls. 128-135 • Á umferð sinni umhverfis jörð breytir tunglið afstöðu sinni til jarðar og sólar og flötur þess breytist eftir því hvar tunglið er statt hverju sinni. Þetta köllum við kvartilaskipti tunglsins. • Það er einungis sá hluti tunglsins sem endurvarpar sólarljósinu sem er sýnilegur hverju sinni.