300 likes | 486 Views
Skaftárhreppur til framtíðar. Íbúafundur 6. febrúar 2014. Verkefni um þróun byggðar í Skaftárhreppi. Ný nálgun á gamalkunnugt vandamál Samstarfsaðilar Byggðastofnun Skaftárhreppur SASS Háskólinn á Akureyri Íbúar Skaftárhrepps. Íbúafundur og íbúaþing. Íbúafundur 7. október 2013
E N D
Skaftárhreppur til framtíðar Íbúafundur 6. febrúar 2014
Verkefni um þróun byggðar í Skaftárhreppi • Ný nálgun á gamalkunnugt vandamál • Samstarfsaðilar • Byggðastofnun • Skaftárhreppur • SASS • Háskólinn á Akureyri • Íbúar Skaftárhrepps
Íbúafundur og íbúaþing • Íbúafundur 7. október 2013 • Kynning á verkefninu Skaftárhreppur til framtíðar • Sagt frá verkefnum hjá Skaftárhreppi, Kötlu Geopark, Friði og frumkröftum, Búnaðarsambandi Suðurlands og Fræðsluneti, símenntun á Suðurlandi og Háskólafélagi Suðurlands. • Íbúaþing 19. – 20. október • Þátttakendur mótuðu dagskrá • Um 40 manns mættu
Eftir íbúaþing • Póstlisti • Myndir og gögn frá þingi • Fundir verkefnisstjórnar
Atvinnumál – forsendur og stuðningur • Frá hugmynd að veruleika • Aðstæður hagstæðar • Frumkvöðlar sem hafa þekkingu, kjark, getu og fjármagn • Nýta þann stuðning sem er í boði • SASS getur leiðbeint áfram um næstu skref • Stuðningur við frumkvöðla og aðila í rekstri:SASS, Byggðastofnun og bankar • Nýta þá ráðgjöf sem er til staðar í boði SASS á svæðinu
Atvinnumál - stuðningur • Stuðningur við frumkvöðla og aðila í rekstri • Stuðningur til staðar: SASS, Byggðastofnun og bankar og fleiri. • Styrkir í boði: • Menningarráð Suðurlands – stofn- og rekstarstyrkir • Umsóknarfrestur til og með 20.febrúar • Dorothee Lubecki – menning@sudurland.is • SASS styrkir – 2x á ári • Næsta úthlutun í vor • 5 verkefni í Skaftárhreppi sem fengu styrk við síðustu styrkúthlutun SASS nú í haust, um 7 milljónir samtals
Atvinnumál – markaðssetning • Markaðsmálin leidd af Friði og frumkröftum • Búið að tryggja fjármögnun út þetta ár • Fleiri atvinnugreinar komnar inn í starf klasans • Markaðsstofa Suðurlands • HVAÐ SVO? • Á góðri leið og í höndum þessara aðila og fyrirtækjanna • Tryggja starfsemi klasans Friður og frumkraftar áfram
Atvinnumál - ferðaþjónusta • Samstarfsverkefni / stoðverkefni • Efla Frið og frumkrafta • Von um að fáist fjármagn til að halda áfram með Kötlu jarðvang • Vatnajökulsþjóðgarður – mikilvægt að opnuð verði Gestastofa • Agi og gæði í ferðaþjónustu • Gæðamál • Menntun starfsfólks • HVAÐ SVO? • Nýta Fræðslunet Suðurlands og nýja námsverið í Kirkjubæjarstofu til námskeiðahalds
Nýting á náttúru, menningu og sögu • Lifandi leiðsögn • Gera fleiri kvikmyndir um svæðið • Vantar fleiri söfn • Erfiður tími til að sækja fjármuni í nýja safnastarfsemi. • Var gert ráð fyrir Errósetri í Þekkingarsetri og er háð þeirri vinnu. • Tengja kirkjuhúsin við ferðaþjónustuna. • Frumkvæðið í höndum heimamanna. • HVAÐ SVO? • Frumkvöðlar og fyrirtæki heima fyrir vinna áfram.
Atvinnumál – landbúnaður • Vöruþróun í matvælavinnslu • Sláturhús á Seglbúðum – löggilding í höfn • Kjötvinnsla á Borgarfelli • Kornrækt • Í höndum frumkvöðla • HVAÐ SVO? • Matarvinnusmiðja á vegum SASS og Matís 6. – 8. mars. Auglýst nánar á næstunni.
Atvinnumál – landbúnaður • Nýliðun og efling • Ráðgjöf til fráfarandi og “þolinmótt fjármagn“ fyrir viðtakandi • Svæðisbundin úthlutun greiðslumarks? • Ríkisjarðir settar á sölu? • HVAÐ SVO? • Verkefnisstjórn mun taka málið upp við Bændasamtökin • Nýr lánaflokkur hjá Byggðastofnun, hagstæð kjör til langs tíma
Atvinnumál - ferðaþjónusta • Tekjuleki • Tengja við launagreiðandann? • Gjaldtaka í ferðaþjónustu • Stefnumörkun á landsvísu • HVAÐ SVO? • Greining á umfangi tekjulekans • Koma á framfæri við stjórnvöld • SASS er að gera viðhorfskönnun varðandi gjaldtöku, öllum velkomið að taka þátt á www.sass.is til 10. febrúar
Ímynd svæðisins • Jákvæð fjölmiðlaumfjöllun • Hver og einn taki til sín • Aðkoma og útlit • Skiltamengun • Aðkoma að íþróttamiðstöð • Snyrtimennska og ásýnd • HVAÐ SVO? • Skaftárhreppur vinnur að úrbótum á aðkomu að íþróttamiðstöð og ásýnd
Þekkingarsetur • Er ekki á fjárlögum 2014 • Stofna þó ekki sé komið hús? • Gestastofa Þjóðgarðs? • Kirkjubæjarstofa • Óvissa um framtíð • HVAÐ SVO? • Baráttan gagnvart stjórnvöldum heldur áfram
Endurvinnsla og tiltekt • Gera betur í flokkun sorps • Jarðgerð á lífrænum úrgangi • Urðunarstaður • Hótel og gististaðir • Tiltekt, bílhræ og bárujárn, kynna leiðir og aðstoða • HVAÐ SVO? • Verið að vinna að samningi milli Skaftárhrepps og Íslenska Gámafélagsins sem tekur mið af breyttum forsendum. • Vísað til umhverfis- og náttúruverndarnefndar Skaftárhrepps
Ungmennastarf • Hvatt til samstarfs milli íþróttafélaganna í hreppnum, sbr. Umf. Skafti og Umf. Ármann • Víðtækari samvinna, t.d. við Kötlu Geopark, Vatnajökulsþjóðgarð, Landgræðsluna o.fl.? • Samþætta akstur eftir viðburði; foreldrar og skólabílaakstur • Bjóða aðstöðu t.d. fyrir æfingabúðir félaga annars staðar af landinu • Kallað eftir auknum styrkjum til starfsins • Skoða samstarf við UMFÍ varðandi æskulýðsstarf á skólatíma • HVAÐ SVO? • Hvatt til sameiginlegs fundar og samstarfs ungmennafélaga
Menntamál Styrkleikar • Hátt menntunarstig kennara. • Góð og sveigjanleg þjónusta á leikskólanum. • Mötuneyti – þar sem eldað er frá grunni. • Nóg rými í grunnskólanum. • Fámennir hópar. • Stuttar boðleiðir. • Nándin. • Veikleikar • Illa nýtt húsnæði – stærðin vandamál. • Fámennir árgangar. • Aðgangur að sérfræðiþjónustu á staðnum. • Tækjakostur skólans. • Nándin. • Langir dagar hjá yngstu nemendum vegna skólaaksturs. • Netsamband.
Menntamál Ógnanir • Breytingar á sérfræðiþjónustu (skólaskrifstofan). • Félagsleg einangrun unglinga vegna vegalengda. • Fagleg einangrun. • Tækifæri • Nýta skólaaksturinn betur – tengja við íþróttaæfingar o.fl. æskulýðsstarf. • Nýta skólahúsið betur – leikskóli, fullorðinsfræðsla eða annað námstengt? Fá meiri tengingu skóla og samfélags? • Aukin fullorðinsfræðsla – fleiri tækifæri til endurmenntunar. • Lagning ljósleiðara. • Styrkja bókasafnið – sem náms- og upplýsingaveitu, og þar komi fram upplýsingar sem varði sérstöðu svæðisins (skáld, listamenn o.fl.). • Bjóða upp á nám til 18 ára aldurs í heimabyggð. • HVAÐ SVO? • Fræðslunet, tryggja starfsemi • Samstarf við FAS eða FSU um dreifnám til 18 ára aldurs er í vinnslu
Grunnstoðir – það sem við höfum • Hvaða stoðir höfum við? • Fólkið sjálft, fjölskyldur og einstaklingar. • Starfsemi á vegum Skaftárhrepps, ríkis, stofnana og fyrirtækja • Leik-, grunn-, tónlistarskóli og bókasafn. • Heilsugæsla, læknir, hjúkrunarfræðingur, apótek, sjúkrabíll og hjúkrunarheimili. • Verslun, banki, póstur, bensínstöð. • Samgöngur. • Lögregla. • Fjarskipti. • Sorphirða. • Kirkjustarf, prestur, kirkjur. • Dýralæknir. • Félagsheimili. • Björgunarsveitir. • Félagastarfsemi. • HVAÐ SVO? • Hlúa að þeim grunnstoðum sem fyrir eru og verja þær
Grunnstoðir – það sem vantar • Húsnæði og fjarskipti • Bættar samgöngur; betri nýting á flugvelli, betri vegir, meiri snjómokstur og að sanda betur, tryggar áætlunarferðir, hraðlest á Suðurlandi, flugtaxi og að heimamenn sjái um flutninga á vörum og fólki • Styrkari heimaþjónustu, vantar fólk til að sinna þjónustunni • Marka Heilsustefnu fyrir Skaftárhrepp • Kleifar, laga völlinn eða byggja nýjan? • Sameiginlegt hús fyrir ólíkar íþróttir, t.d. hestamennsku og frjálsar? • HVAÐ SVO? • Íþróttavöllur á nýju aðalskipulagi á Klaustri • Á að marka heilsustefnu fyrir Skaftárhrepp? • „Félagslíf, má vera fjölbreyttara en það er undir okkur sjálfum komið“
Grunnstoðir – getum við styrkt? • Getum við sameinað einhverjar stoðir? • Verða þær sterkari við sameiningu? • Meiri samhygð og samvinna • Klára sameiningu gömlu hreppanna • Verðum sterkari með meiri samvinnu og/eða sameiningu • Með því að tala jákvætt um okkur sjálf! • HVAÐ SVO? • Yfir til ykkar! • „Verðum að hafa trú á okkur sjálfum og okkar samfélagi!“
Umferð og samgöngur „Aukin umferð kallar á aukna þjónustu.“ Helstu viðfangsefni • Áhrif af breytingum á Skaftá, Leirá og Hverfisfljót á vegi og framkvæmdir • Þjóðvegur 1; breikka, bæta öryggi og laga pælur • Hálendið, Laki og Fjallabaksleið; brúa ár • Tengivegir; malbikun • Almenningssamg. og vöruflutn., tíðari ferðir, sérstaklega á vetrum • Flugsamgöngur • Bæta snjómokstur • HVAÐ SVO? • Áhrif jökulánna kalla á varnaraðgerðir, t.d. uppgræðslu • Háð Samgönguáætlun • Megináhersla á einbreiðar brýr
Náttúra – vernd og nýting • „Leitast skal við að nýting hverskonar náttúruauðlinda sveitarfélagsins, þar með talið í vatni, vindi, jarðefnum hverskonar, (sandi, stuðlabergi, hrauni, ösku o.s.frv.) jafnframt í grasnytjum, ferðamennsku og annarri hugsanlegri nýtingu, verði með sem sjálfbærustum hætti í samfélagslegu, efnahagslegu og umhverfislegu tilliti og þess ævinlega gætt að sem allra minnst verði gengið á rétt komandi kynslóða“.
Húsnæðismál - íbúðir • Vantar íbúðarhúsnæði til leigu • Engar lausar íbúðir (ekki heldur í eigu Íbúðalánasj.) • Hús tekin undir sumarhús eða gistirými • HVAÐ SVO? • Deiliskipulag í vinnslu • Greina þörfina, m.a. könnun SASS fyrir svæðið • Koma á framfæri við stjórnvöld og kalla eftir lausn
Húsnæðismál – “Verbúðir” • “Verbúðir” fyrir starfsfólk í ferðaþjónustu • Þörf fyrir a.m.k. 25 – 30 manns yfir háönn • HVAÐ SVO? • Heimavistin? Gæti rúmað ca. 20 manns • Rýmisgreining fyrir skólahúsnæðið - Skaftárhreppur
Fjarskipti og rafmagn • Staða og möguleikar • Vinnuhópur að störfum í Skaftárhreppi • Þriggja fasa rafmagn í sveitinni á áætlun 2034 • Er hægt að samnýta ef verður lagður ljósleiðari? • HVAÐ SVO? • Framkvæmdir á þessu sviði verða alltaf kostnaðarsamar
Erindi við stjórnvöld • Fjarskipti og rafmagn • Húsnæðismál • Þekkingarsetur • Kirkjubæjarstofa • Fræðslunet / fjármögnun • Tekjuleki og gjaldtaka í ferðaþjónustu • Samgöngumál • HVAÐ SVO? • Verkefnisstjórn fundar með þingmönnum og ráðherrum
Loforðið • Verkefnisstjórnin hyggst vinna með íbúum Skaftárhrepps og hagsmunaaðilum til að tryggja að áhyggjuefni ykkar og metnaðarmál hafi bein áhrif á þá valkosti sem teknir verða til skoðunar, í málum sem snúa að Byggðastofnun, Skaftárhreppi, SASS og Háskólanum á Akureyri. Við ákvarðanir þessara aðila verður upplýst hvernig skilaboð íbúaþingsins voru höfð til hliðsjónar. Verkefnisstjórnin mun einnig koma niðurstöðum íbúaþingsins á framfæri við ríkisstjórn og stofnanir og fyrirtæki sem hafa áhrif á þjónustustig og þróun byggðar í Skaftárhreppi.
Umræður • Hvað er að frétta? • Yfir til ykkar!