170 likes | 410 Views
Markmið námsins. Það er viðfangsefni þessa námsefnis að þekkja aðal- og auksetningar í málsgrein . Markmiðið er að geta greint texta í setningar, vita hvað er setning, hvar hún byrjar og hvar hún endar og hvernig setningar mynda málsgreinar . Setningahlutar eru þeir sömu og fyrr.
E N D
Markmið námsins • Það er viðfangsefni þessa námsefnis að þekkja aðal- og auksetningar í málsgrein. • Markmiðið er að geta greint texta í setningar, vita hvað er setning, hvar hún byrjar og hvar hún endar og hvernig setningar mynda málsgreinar. • Setningahlutar eru þeir sömu og fyrr. EPE ísl 202
Málsgrein • Málsgrein er samband setninga, tveggja eða fleiri, eða ein sjálfstæð setning. Í hverri málsgrein er að minnsta kosti ein aðalsetning. • Málsgreinar hefjast á stórum staf og aftan við þær er settur punktur. EPE ísl 202
Aðalsetningar • Aðalsetningar eru, eins og nafn þeirra bendir til, uppistaða hverrar málsgreinar. Aðalsetningar eru ekki setningarliðir í öðrum setningum. Þær eru ýmist sjálfstæðar eða ósjálfstæðar og geta hafist á hvaða orði sem er • Tengiorð aðalsetninga (aðaltengingar) eru einkum: og, eða, ellegar, en, heldur, enda. EPE ísl 202
Aukasetningar • Aukasetningar eru setningarliðir í aðalsetningum. • Aukasetningar eru ævinlega ósjálfstæðar og segja því ekki fulla hugsun. Þær verður að tengja við aðrar setningar oftast með aukatengingu. EPE ísl 202
3 setnhlutar aukasetn. • Atvikssetningar eru atviksliðir • Fallsetningar geta verið allir setningahlutar sem eru í ákveðu falli, s.s.. frl. andl. sf. fsl, fallsetningar eru því nafnliðir • Tilvísunarsetningar eru oft einkunnir. EPE ísl 202
Flokkar aukasetninga • Eftir hlutverki sínu í málsgrein má skipta aukasetningum í þrjá flokka: atvikssetningar, tilvísunarsetningar og fallsetningar. • Best er að þekkja aukasetningar á upphafsorði sínu, tengiorðinu EPE ísl 202
Tengiorð aukasetn. • 1. Tilvísunarsetningar, : sem • 2. Tíðarsetningar, : þegar • 3. Skilyrðissetningar: ef • 4. Orsakasetningar: af því að • 5. Afleiðingartsetningar: svo að • 6. Tilgangssetningar: til þess að • 7. Viðurkenningarsetningar: þó að • 8. Samanburðarsetningar: eins og • 9. Skýringarsetningar: að • 10. Spurnarsetningar: hvort +spurnarorð EPE ísl 202
Að þekkja aukasetn. • Aukasetningar þekkjast best á tengiorði sínu. • Læra verður tengiorð aukasetninga, eitt fyrir hvern setningaflokk. • Læra verður hvað flokkar aukasetninga heita. • Dæmi: Ég veit að veðrið batnar þegar vorar. EPE ísl 202
Setn.hluti aukasetn. • Orð sem gegnir sama hlutverki og aukasetning er yfirleitt sami setningarhluti og viðkomandi aukasetning. Hafið þetta í huga. • Ég veit að veðrið batnar<andlag • Ég veit sannleikann<andlag EPE ísl 202
Setn.hluti aukasetn • Orð sem gegnir sama hlutverki og aukasetning er yfirleitt sami setningarhluti og viðkomandi aukasetning. Hafið þetta í huga. • Ég kem þegar veðrið batnar<atviksliður • Ég kem strax<atviksliður EPE ísl 202
Setn.hluti aukasetn • Orð sem gegnir sama hlutverki og aukasetning er yfirleitt sami setningarhluti og viðkomandi aukasetning. Hafið þetta í huga. • Húsið sem brann er ónýtt<einkunn • Húsið brunna er ónýtt<einkunn EPE ísl 202
Fallsetningar • Flokkar fallsetninga eru tveir, skýringarsetningar og spurnarsetningar. Þær kallast fallsetningar af því að þær jafngilda fallorði og eru í sama falli og feitletraða fallorðið á undan þeim. • Ég sagði sögu=að nú væri nóg komið.<þolfall • Ég spurði spurningar=hvort nú væri nóg komið. < eignarfall EPE ísl 202
Tilvísunarsetn. • Tilvísunarsetning er ein í flokki. Hún gegnir sama hlutverki og lýsingarorð, einkennir nánar fallorð í þeirri setningu sem hún stendur með. • Karlinn ók bílnumsem alltaf var að bila<eink • Karlinn ók dyntóttabílnum<eink EPE ísl 202
Atvikssetningar • Atvikssetningar heita svo af því að þær geta gegnt sama hlutverki og atviksorð í aðalsetningu. Í stað heillar atvikssetningar má setja eitt atviksorð og gegnir það sama hlutverki þótt merkingin sé önnur. • Ég át ostinn þótt hann væri vondur<al. • Ég át ostinn áðan/græðgislega/frammi<al. EPE ísl 202
Flokkar atvikssetn. • Allar atvikssetningar eru atviksliðir í aðalsetningu. Flokkar atvikssetninga eru 7: • 1. Tíðarsetningar, : þegar • 2. Skilyrðissetningar: ef • 3. Orsakasetningar: af því að • 4. Afleiðingartsetningar: svo að • 5. Tilgangssetningar: til þess að • 6. Viðurkenningarsetningar: þó að • 7. Samanburðarsetningar: eins og EPE ísl 202
Setn.hluti í aðalsetn. • Aukasetningar eru greindar sem einn setningarhluti í aðalsetningu sem þær tengjast. • Ég gleymdi alveg að veðrið getur versnað • Undirstrikuð setning er í fallsetning, hún er í þágufalli og stýrist fallið af so. gleyma. Hún er andlag með þeirri sögn og þá andlag í aðalsetningunni sem hún tengist. (sjá næstu) EPE ísl 202
Setn.hluti í aðalsetn.2 • Ef aukasetningin að veðrið getur versnað er greind í setningarhluta er það þannig: • að: tengiliður • veðrið: frumlag • getur versnað: umsögn Ekkert andlag er í setningunni þótt hún sé sjálf í heild andlag, þetta finnst mörgum erfitt að skilja. EPE ísl 202