100 likes | 565 Views
Félagsfræði 203. Grunnhugtök og persónur Glósur úr 1. kafla. Félagsfræðilegt sjónarhorn. Ef maður skoðar heiminn út frá félagslegu sjónarhorni þá sést að fólk er afsprengi þeirra félagslegu skilyrða sem það býr við Það er að segja, hegðun fólk er alltaf bundin félagslegu umhverfi og aðstæðum
E N D
Félagsfræði 203 Grunnhugtök og persónurGlósur úr 1. kafla
Félagsfræðilegt sjónarhorn • Ef maður skoðar heiminn út frá félagslegu sjónarhorni þá sést að fólk er afsprengi þeirra félagslegu skilyrða sem það býr við • Það er að segja, hegðun fólk er alltaf bundin félagslegu umhverfi og aðstæðum • Peter Berger: félagsfræðilegt sjónarhorn felur í sér að sjá hið almenna í því einstaka: félagsfræðingar sjá almenn félagsleg hegðunarmynstur í einstaklingum, þó svo að einstaklingar séu ekki allir alveg eins!
Félagsfræðilegt sjónarhorn, framhald • Fyrsta reglan í félagsfræði: Ekkert er eins og það sýnist • Samfélagið sem við búum í hefur áhrif á allar hugsanir og athafnir okkar • Félagslegar aðstæður hafa gríðarleg áhrif á einstaklinginn og viðbrögð hans • Samt bregðast ekki allir alveg eins við – við erum einstaklingar og ekki öll eins
Félagsfræðileg hugsun • Þegar við höfum tileinkað okkur félagsfræðilegt sjónarhorn þá förum við að hugsa á félagsfræðilegan hátt • Við áttum okkur á hvernig þeir hópar sem við tilheyrum móta og hafa áhrif á lífsreynslu okkar sem einstaklinga
Hvað er félagsfræði? • Kerfisbundin og gangrýnin rannsókn á mannlegu samfélagi • Í félagsfræði eru framkvæmdar rannsóknir á hópum og samfélögum, reynt að auka þekkingu um samfélagið og reyna að útskýra mannlegt atferli
Emile Durkheim (1858-1917) • Fyrsta félagsfræðilega rannsóknin • Rannsakaði sjálfsvíg og hverjir eru líklegri en aðrir til þess að fremja þau • Komst að því að tíðni sjálfsvíga væri meiri í vissum þjóðfélagshópum heldur en öðrum
Hnattvæðing • Hugtak sem lýsir þeim auknu tengslum og samskiptum á milli svæða og landa um allan heim • Tæknin hefur ýtt mjög mikið undir hnattvæðingu, tölvur og símar • Auðvelt fyrir manneskju á Íslandi að tala við manneskju í BNA, með tölvu eða síma • Heimurinn er að verða ein heild
Hnattrænt sjónarhorn • Byggir á því að allur heimurinn er ein heild • Staða eða staðsetning samfélags skoðað út frá hvernig það passar inn í heildina • Hnattræn hugsun: ýmis vandamál hafa áhrif á allan heiminn en ekki bara einstök lönd, t.d: kynþáttahatur, fátækt, umhverfismengun, ofl. • “McDonaldism” – McDonalds er alls staðar
Samfélag • Hópur fólks sem býr á ákveðnu svæði, hefur samskipti sín á milli og hefur sameiginleg einkenni sem greinir það frá öðrum hópum, t.d: tungumál, trúarbrögð, menning, ofl. • Samfélag geta verið lítil og stór, t.d. er fjölskyldan samfélag, skólinn er samfélag, íslenska þjóðin er samfélag
Pósitívismi • Veruleikinn er fyrir utan manninn. • Hægt að finna algild sannindi, félagsfræði getur fundið staðreyndir um mannlegt atferli alveg eins og raunvísindi geta fundið staðreyndir um hvernig líkaminn virkar.