120 likes | 313 Views
Forvarnir meðal aldraðra í Efra-Breiðholti. Rannsókn árin 2006 og 2007. Inngangur. Íslendingum 65 ára og eldri mun fjölga um rúmlega helming á næstu 25 árum samkvæmt spá Hagstofu Íslands.
E N D
Forvarnir meðal aldraðra í Efra-Breiðholti Rannsókn árin 2006 og 2007 Þórður G. Ólafsson
Inngangur • Íslendingum 65 ára og eldri mun fjölga um rúmlega helming á næstu 25 árum samkvæmt spá Hagstofu Íslands. • Það verður því ærið viðfangsefni einstaklinganna sjálfra og samfélagsins í heild að stuðla að því að sem flestir viðhaldi andlegri og líkamlegri heilsu sinni sem lengst og best. • Heilsugæslan er veigamikill hlekkur í slíkum forvörnum og læknisfræðilegum úrræðum. Þórður G. Ólafsson
Tilgangur • Að leggja mat á árangur heilsuverndar meðal aldraðra á upptökusvæði Hgst. Efra-Breiðholti, með tilliti til greindra vandamála, úrlausna og aldurs þátttakenda. • Að þróa hagnýta vinnuaðferð til athugunar á heilsuvanda aldraðra. • Auka þverfaglega samvinnu lækna og hjúkrunarfræðinga við lausn vandamála. Þórður G. Ólafsson
Efniviður og aðferðir • Í Efra-Breiðholti búa um 9000 manns. • Fjórum árgöngum aldraðra á svæðinu, alls 148 manns (74 konum og 74 körlum) 75 og 80 ára á árinu 2006 og 2007, var boðin þátttaka í heilsufarsathugun með viðtali við hjúkrunarfræðing á stöðinni. • Tilboðinu var fylgt eftir með símtali (54%). • Hannað var staðlað eyðublað (forvarnablað) í þessu skyni ásamt úrlausnarblaði. Þórður G. Ólafsson
Forvarnablað og viðmið • Blóðþrýst. hærri en 150/95 • Púls óreglulegur • Ekki árleg influensubólusetning • Ekki lungnab. bólusetn. sl. 5 ár • Reykir • Aldrei hætt að reykja • Tekur sex lyf eða fleiri • Dottið x2 eða oftar sl. 12 mán. • Brotnað á sl. 12 mán • Stenst ekki göngupróf á 16 sek • Getur ekki gert erfið verk innanhúss • Getur ekki farið ein(n) að versla • Getur ekki baðað sig án aðstoðar • Á erfitt með að horfa á sjónvarp/lesa • Stenst ekki sjónpróf • Stenst ekki heyrnarpróf • Misst 5 kg á sl 6 mán eða undir 45,5 kg • BMI yfir 30 • Man ekki 3 hluti eftir 1 mín. • Misst þvag sl 12 mán • Misst þvag x5-6 sl 12 mán • Oft einmana • Hefur ekki áhugamál • Fær ekki aðstoð frá ættingjum/vinum • Fjárhagsvandi • Maki þarf stuðning v veikinda • Oft dapur/döpur eða þunglynd(ur) • Eitthvað annað vandamál? Þórður G. Ólafsson
Úrlausnablað • 1. Ráðleggingar og útskýringar (almennar, endurkoma, hvatning) • 2. Nánari athugun hjá hjúkrunarfræðingi • 3. Boðin nánari athugun/eftirlit- sjúklingur afþakkar • 4. Samráð við heimilislækni • 5. Rætt við nánustu ættingja eða maka • 6. Tilvísun til heimilislæknis • 7. Tilvísun til annarra heilbrigðisstarfsmanna eða stofnana • 8. Vísað á heimahjúkrun (til í Sögu: heimahjúkrun) • 9. Vísað á iðjuþjálfa (HH) • 10. Vísað á geðteymi (HH) • 11. Vísað á Félagsþjónustuna, annað en heimilishjálp • 12. Vísað á heimilishjálp Félagsþjónustunnar • 13. Vísað á þjónustu sjálfboðaliðasamtaka • 14. Vísað á HTÍ • 15. Vísað á Sjónstöð Íslands • 16. Vísað á augnlækni • 17. Vísað á bráðamóttöku • 18. Ráðl beinþéttnimæling • 19. Ráðl félagsstarf aldraðra (td Gerðuberg) • 20. Ráðl hjálpartæki • 21. Ráðl fótaðgerðafræðingur/fótsnyrting • 22. Ráðl hætta reykingum • 23. Heilbrigðisfræðsla (næring, hreyfing, reykingar, virkni, hvatning) • 24. Spurningalisti varðandi næringu • 25. Spurningalisti varðandi heyrn • 26. Spurningalisti varðandi þvagleka • 27. Þvaglátaskráning • 28. Þvagræktun • 29. Almenn þvagrannsókn • 30. Grindarbotnsæfingar • 31. Ónæmisaðgerð • 32. MMSE • 33. GDS (geriatric depr. scale) • 34. Spirometria • 35. Mældur blóðþrýstingur • 36. Tekið hjartalínurit • 37. Annað Þórður G. Ólafsson
Helstu niðurstöður • Í viðtal komu 89 (60%) manns og voru fjörutíu af hundraði úr hópi áttræðra. • Símaspurningum svöruðu 30 (20%). Þórður G. Ólafsson
Helstu niðurstöður • Blóðþrýstingur var yfir 140/90 hjá 62% þátttakenda. • Fjölmargir höfðu ekki farið að ráðleggingum Landlæknis um bólusetningar gegn inflúensu eða lungnabólgu. • Heyrnarskerðing og offita voru hjá um þriðjungi þátttakenda. • Þá voru einmannaleiki, skortur á áhugamálum og erfiðleikar með fjármál nokkuð algeng hjá 75 ára hópnum eða hjá 18-24%. Þórður G. Ólafsson
Helstu niðurstöður • Líkmaleg færni samkvæmt viðmiðum okkar virtist í góðu lagi hjá 75 ára hópnum en var farin að minnka hjá áttræðum eins og búast mátti við. • Í rannsókninni voru 21% kvennanna með þvagleka og var hann meira áberandi hjá 75 ára hópnum • Hjá alls 87 einstaklingum af 89 leiddi forvarnaviðtalið til tilboðs um nánari athugun og íhlutun, ýmist í viðtalinu sjálfu eða í öðru viðtali síðar. • Að meðaltali voru vandamálin fjögur hjá hverjum einstaklingi. Þórður G. Ólafsson
Helstu niðurstöður • 30 manns (34%) þáðu boð um nánari athugun hjá hjúkrunarfræðingi en 12 (13%) afþökkuðu. • Í annað viðtal hjá hjúkrunarfræðingi skiluðu sér aðeins 18 manns af 30. • Tæpum 40% (34 af 89) var vísað til heimilislæknis vegna jákvæðrar skimunar. • Í viðtal af einhverju tagi var vísað áfram 62 manns (70%). • Bólusetningu fengu 25%. • Hækkuðum blóðþrýstingi var fylgt eftir hjá 11%. Þórður G. Ólafsson
Ályktanir • Í þessari rannsókn var leitast við að finna leiðir til þess að styðja og styrkja eldri einstaklinga til að viðhalda andlegu, líkamlegu og félagslegu heilbrigði samkvæmt stefnu Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins. • Miðað við gagnreynda læknisfræði og skilmerki klínískra leiðbeininga benda niðurstöður rannsóknarinnar til þess að heilsugæslan geti tekið virkan þátt í því að efla forvarnir meðal aldraðra. • Bæta þarf rafræna sjúkraskrárkerfið með tilliti til forvarnaathugana og yfirsýnar. • Til þess að ná settum markmiðum er æskilegt að ná þverfaglegri samvinnu eldri borgara, heimilislækna, hjúkrunarfræðinga og annars heilbrigðisstarfsfólks. Þórður G. Ólafsson
Takk fyrir Þórður G. Ólafsson