1 / 8

Skólareglur

Skólareglur. Reglur um umgengni, hegðun, ástundun og hvað er gert þegar reglurnar eru brotnar. 1 . Hegðun og ástundun.

zariel
Download Presentation

Skólareglur

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Skólareglur Reglur um umgengni, hegðun, ástundun og hvað er gert þegar reglurnar eru brotnar.

  2. 1.Hegðun og ástundun • Þegar nemandi staðfestir umsókn sína um skólavist hefur hann jafnframt samþykkt að fara að þeim reglum sem í skólanum gilda og leitast við að uppfylla þær kröfur sem skólinn gerir til hans um námið. • Í því felst m.a. að hann taki þátt í kennslustundum, komi undirbúinn og skili verkefnum á tilsettum tíma. Ef í ljós kemur að nemandi stundar ekki námið í einstökum áföngum í samræmi við mætingareglur og kennsluáætlun missir hann próftökurétt sinn.

  3. 1.Hegðun og ástundun • Truflun í kennslustundum af hvaða tagi sem er (tala saman, sinna ekki fyrirmælum kennara, notkun farsíma o.s.frv.) er óheimil og kennari hefur fulla heimild til þess að taka á slíkum málum. • Ef nemandi tekur ekki tillit til athugasemda kennara um slíka hegðun er kennara heimilt að vísa honum úr kennslustund. • Við endurtekin brot og ef brot telst af einhverjum ástæðum alvarlegt, ber kennara að vísa nemanda til skólameistara eða aðstoðarskólameistara.

  4. 2. Umgengni • Nemendum ber að ganga vel um húsnæði skólans og lóð. • Þeim ber að fleygja rusli, umbúðum og matarleifum í þar til gerð ílát hvort sem er inni í skólanum eða á lóð hans. • Neysla matar og drykkjar í kennslustofum er óheimil. Þó er vatn á brúsum undanskilið þar sem aðstæður leyfa.

  5. 3. Öll tóbaksnotkun er óheimil  í skólanum og á lóð hans. • Neysla og meðferð áfengis og annarra vímuefna er óheimil í skólanum og hvarvetna þar sem nemendur koma fram í nafni hans. 4. Meðferð áfengis og fíkniefna

  6. 5. Meðferð á eigum skólans • Nemendum ber að fara vel með þá muni sem þeir fá að láni í tengslum við kennslu eða aðra starfsemi í skólanum. Lán á búnaði skal vera með samþykki kennara eða annarra starfsmanna þegar það á við. Öllum hlutum ber að skila í sama ástandi innan tiltekins tíma.

  7. 6. Útgáfa og auglýsingar • Hvers konar bæklinga- net- og blaðaútgáfa á vegum nemenda þarf að fara fram í samráði við félagsmálafulltrúa og/eða skólameistara og lúta lögum um útgáfu og auglýsingar. Það sama gildir um auglýsingar sem hengdar eru upp í skólanum.

  8. 7. Viðurlög • Kennarar og aðrir starfsmenn skólans hafa umboð til þess að tilkynna brot til skólameistara eða aðstoðarskólameistara, sem ákveða frekari viðurlög. • Ítrekuð brot og þau sem talist geta alvarleg, hvort sem er í tengslum við umgengni, meðferð á eigum skólans eða agabrot, geta varðað brottvikningu. Sé málið talið það alvarlegt fer það fyrir skólaráð áður en endanleg ákvörðun um viðurlög er tekin. • Brot á almennum hegningarlögum verða kærð til lögreglu.

More Related