1 / 17

Brunamálaskólinn

Brunamálaskólinn. Reglugerð um hlífðarbúnað slökkviliðsmanna 914/2009. Glærusafn sem fylgir “Reglugerð um hlífðarbúnað slökkviliðsmanna”. Hlífðarbúnaður slökkviliðsmanna. Mönnum, sem skipaðir eru í slökkvilið, skal séð fyrir fullnægjandi hlífðarbúnaði til að nota við slökkvistörf.

tory
Download Presentation

Brunamálaskólinn

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Brunamálaskólinn Reglugerð um hlífðarbúnað slökkviliðsmanna 914/2009 Glærusafn sem fylgir “Reglugerð um hlífðarbúnað slökkviliðsmanna”

  2. Hlífðarbúnaður slökkviliðsmanna • Mönnum, sem skipaðir eru í slökkvilið, skal séð fyrir fullnægjandi hlífðarbúnaði til að nota við slökkvistörf.

  3. Hlífðarbúnaður slökkviliðsmanna. • Hlífðarbúnaður skal uppfylla: • 1. Hann skal ekki leiða rafmagn og vera úr illbrennanlegum efnum. • 2. Auðvelt skal vera að hreinsa búninginn, hann skal þola venjulegan þvott án þess að öryggi, þægindi eða útlit hans breytist til hins verra.

  4. Hlífðarbúnaður slökkviliðsmanna • Hjálmur, • stígvél og skór, • heill samfestingur eða jakki og buxur, • hanskar. • hettur.

  5. Hlífðarbúnað slökkviliðsmanna • Seljandi hlífðarbúnaðar fyrir slökkviliðsmenn er skyldur að afla upplýsinga um eiginleika búnaðarins með hliðsjón af viðurkenndum stöðlum og rannsóknum og láta Brunamálastofnun ríkisins þær í té.

  6. Hjálmur • Við val á hjálmi ber að leggja áherslu á eftirfarandi atriði: • úr efnum, sem þola vel raka, hita og kulda, án þess að brotna eða breyta lögun sinni. • nægilega sterkur til að þola þrýsting og högg samkvæmt nánari skilgreindum ákvæðum þar um. • einangra nægilega vel gegn rafleiðni, hitageislun og hitaleiðni, bæði er varðar efnisval og lit á yfirborði. • falla vel að höfðinu og vera hæfilega léttur, ekki yfir 900 grömm. • Festibúnaður traustur og auðveldur í notkun. Hökureim og innri búnaður traustur og þægilegur. • halda tilskildum eiginleikum í minnst 10 ár.

  7. Stígvél og skór • Við val á skóbúnaði ber að leggja áherslu á eftirfarandi atriði: • úr efnum, sem þola raka og hitabreytingar, olíur, sýrur og ýmis tærandiefni. • Stáltá og sólinn með stálinnleggi. Í stað stáls má nota önnur efni, sem veita a.m.k. sömu vörn. Stál skal vera ryðvarið og stálinnleggið nægilega sveigjanlegt. Skótá og stálinnlegg skal prófa með viðurkenndum hætti hvað varðar höggþol og stunguþol. • einangra vel gegn hita og kulda, ekki leiða rafmagn og vera úr illbrennanlegum efnum. • vera hæfilega léttur og fara vel á fæti, vera vel sveigjanlegur og sólinn þannig gerður að hann verði ekki háll í bleytu. • auðvelt sé að fara í og úr. Festingar og lokunarbúnaður einfaldur að gerð og auðveldur í notkun.

  8. Hlífðarfatnaður • Gert er ráð fyrir, að velja megi á milli tvenns konar hlífðarbúninga. Þeir eru: • Heill samfestingur • jakki og buxur.

  9. Við val á hlífðarbúningum ber að leggja áherslu á eftirfarandi atriði: • Allt efni í búningunum skal fullngæja kröfum um gæði og eiginleika í samræmi við staðla á Norðurlöndum, sem Brunamálastofnun ákveður að hafa til viðmiðunar hverju sinni. • einangra vel gegn hita og kulda. Hann skal ekki leiða rafmagn og vera úr illbrennanlegum efnum. • Ysta byrði skal standast sterka hitageislun og neistaflug, án þess að í því kvikni, það bráðni eða hrökkvi sundur. • nægilega rúmur og lofti eða andi hæfilega, til að viðhalda megi þolanlegum líkamshita, jafnvel við erfið skilyrði. • hrinda af sér vatni og ekki safna í sig lofttegundum eða vökvum, nema að því marki sem viðunandi getur talist. • ekki úr efnum, sem hætta er á að hlaðist geti statísku rafmagni. Þola vel raka og hitasveiflur, olíur, sýrur, lút og ýmis tærandi efni. • Auðvelt að hreinsa og þola venjulegan þvott, án þess að öryggi, þægindi eða útlit hans breytist til hins verra. • Festingar og lokunarbúnaður traustur og fljótvirkur. Ekki hnappar eða lykkjur, sem til trafala geta orðið við slökkvistörf og reykköfun. • Litur á hlífðarbúningi sal vera þannig valinn, að hann sjáist vel. Búningurinn skal hafa sjálflýsandi rendur eða borða, við hæfi.

  10. Hanskar • Við val á hönskum ber að legja áherslu á eftirfarandi atriði: • Efnið skal vera illbrennanlegt og þola vel hita, án þess að bráðna eða hrökkva í sundur. Það skal hrinda frá sér vatni og ekki safna því í sig, nema að takmörkuðu leyti. • falla vel að hendi og vera hæfilega mjúkir, þótt þeir séu notaðir í miklum kulda eða séu rakir. Þeir skulu einangra vel gegn hita og kulda og þeir skulu ekki leiða rafmagn. • ekki vera hálir í lófa. t.d. fyrir verkfæri og við átök. • Hanskarnir skulu vera slitsterkir og veita fullnægjandi vörn gegn hvössum málmeggjum. • Þeir skulu standast olíur, sýrur, lút og tærandi efni.

  11. Aukabúnaður • Aukabúnaður, s.s. hjálmhlíf fyrir augu og axlahlíf undir hjálminn skal vera úr þeim efnum og af þeirri gerð, sem Brunamálastofnun mælir með. • Hjálmhlífin skal vera vel gagnsæ og standast högg, sterka hitageislun og eldtungur, án þess að brotna eða bráðna. Hún skal vera tryggilega og haganlega fest við hjálminn. • Axlahlífin skal standast eldgneista og vera þægileg í notkun.

  12. Breytingar á hlífðarbúnaði • Brunamálastjóri getur ákveðið að sérmerkja hlífðarbúnað, sem hlotið hefur viðurkenningu. Slökkviliðsmönnum er ekki heimilt að gera breytingar á hlífðarbúnaði sínum, sem skert gæti notagildi eða öryggi búnaðarins að mati slökkviliðsstjóra eða brunamálastjóra.

  13. VIÐAUKI • Listi yfir nöfn staðla sem hlífðarbúnaður skal uppfylla. • ÍST EN 443ÍST EN 443– Hjálmar fyrir slökkviliðsmenn (Helmets for firefighters).

  14. VIÐAUKI • Listi yfir nöfn staðla sem hlífðarbúnaður skal uppfylla. • ÍST EN 469 – Hlífðarfatnaður fyrir sökkviliðsmenn - Kröfur og prófunaraðferðir fyrir hlífðar­fatnað fyrir slökkvistarf (Protective clothing for firefighters - Requirements and test methods for protective clothing for firefightig)

  15. VIÐAUKI • Listi yfir nöfn staðla sem hlífðarbúnaður skal uppfylla. • ÍST EN 659 – Hlífðarhanskar fyrir slökkviliðsmenn (Protective gloves for firefighters).

  16. VIÐAUKI • ÍST EN 943-1 – Hlífðarfatnaður til nota gegn fljótandi og loftkenndum efnum, að úðaefnum og ögnum úr föstum efnum meðtöldum - 1. hluti: Nothæfiskröfur vegna óloftræstra hlífðar­flíka með loftþétt samskeyti (gerð 1) og ekki loftþétt (gerð 2) hlífðarföt

  17. VIÐAUKI • ÍST EN 943-2 – Hlífðarfatnaður til nota gegn fljótandi og loftkenndum efnum, að úðaefnum og ögnum úr föstum efnum meðtöldum - 2. hluti: Nothæfiskröfur vegna „loftþéttra“ (gerð 1) hlífðarbúninga gegn kemískum efnum fyrir neyðarlið (ET)

More Related