220 likes | 324 Views
Fiskveiðistjórnun. Markmiðasetning og sjálfbærni Gísli H. Halldórsson . Byggt á MRM ritgerðinni Strandveiðarnar 2009: Markmið, framgangur og fiskveiðistjórnun. Til sjálfbærrar framtíðar. Sjálfbærni – hófsemi - hamingja. Sjálfbær þróun – Sýn Sameinuðu Þjóðanna.
E N D
Fiskveiðistjórnun Markmiðasetning og sjálfbærni Gísli H. Halldórsson Byggt á MRM ritgerðinni Strandveiðarnar 2009: Markmið, framgangur og fiskveiðistjórnun
Sjálfbær þróun – Sýn Sameinuðu Þjóðanna • Lögð er áhersla á samspil þessara þátta: • Efnahagslegra • Samfélagslegra • Vistlægra
Fyrsta grunnregla Ríó yfirlýsingarinnar. Sjálfbær þróun snýst um manninn og möguleika hans. Fólk á að geta starfað og lifað heilbrigðu lífi í sátt við náttúruna.
Siðareglur FAO • Í siðareglum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar SÞ (1995) um ábyrgð í fiskimálum segir: • „Þegar haft er í huga hið mikilvæga framlag sjálfsþurftaveiða og fiskveiða í smærri stíl ... ættu ríki ... að verja rétt fiskimanna og fiskiðnaðarfólks til öruggrar og sanngjarnrar lífsafkomu og veita þessum aðilum jafnframt forgang að ... fiskimiðum og auðlindum hafsins ...“ • ... ættu ríki að efla mat á gildi [auðlinda], ... með tilliti til efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra þátta.
Sjálfbærni er alvara... • Byggt er á reynslu og menningu þjóða heims • Þúsundir manna hafa komið að málinu • Ætlað að vera grunnur til framtíðar
Vöntun á samfélagsþætti í markmið • Meðan félags- og menningarlegi þátturinn er að miklu leyti hunsaður í stefnumörkun og framkvæmd hlýtur almenningur að lýsa óánægju sinni með kerfið. • Sú óánægja mun alltaf ógna kerfinu, sjálfbærni þess og tilvist.
Líffræðileg markmið - dæmi • Verndun vistsvæða • Aukin fjölbreytni • Verndun sjaldgæfra tegunda • Að draga úr líkum á meiriháttar vistkerfisbreytingum • Uppbygging ofnýttra fiskstofna • Að draga úr brottkasti • Lokalausnin: MPA (Alfriðuð sjávarsvæði)
Hagræn markmið - dæmi • Hámörkun tekna • Hámörkun hagnaðar • Að halda niðri verði • Aukning stöðugleika í tekjum • Aukning ríkistekna • Aukning útflutnings • Að auka gæði (verðmæti) aflans • Lokalausnin: ITQ (framseljanlegir eignakvótar)
Samfélagsleg markmið - dæmi • Að bæta lífsgæði • Aukning atvinnu • Að draga úr aflasveiflum • Aukning stöðugleika tekna • Að draga úr offjárfestingu • Að auka sátt allra hagsmunaaðila • Að auka tómstundaveiðar • Lokalausnin: CommunityBasedManagement
Hvaða markmið? • Undir löggjafanum komið hvaða félags- og menningarlegu markmið verða sett • Aðalatriðið er að þau séu sett fram og höfð sem skýr viðmið • Hér þarf að skoða bæði samfélagslegan rétt einstaklinga sem og rétt einstakra samfélaga. • Hafa þarf í huga að þessi samfélög ala upp og mennta þá sem taka munu til starfa við fiskveiðar og vinnslu í framtíðinni
Íslenska þjóðin og fiskiauðlindin • Íslenska þjóðin telur að hún eigi sameiginlega fiskiauðlind íslenskra fiskimiða • Hvernig sem eignarréttarhugtakið er notað í þessu sambandi þá er hafið yfir allan vafa að það er þjóðarinnar að útdeila og njóta þeirra réttinda sem auðlindin býður • Kvótakerfið hefur aldrei hlotið samþykki þjóðarinnar • Þegar samþykki rétthafans er ekki fyrir hendi, heldur þvert á móti alger andstaða, hlýtur það að vera skylda löggjafarvaldsins að grípa til aðgerða
Strandveiðarnar voru tilraun um réttlæti • Strandveiðarnar voru fyrst og fremst tilraun til að draga úr samfélagslegu ranglæti • Markmið um nýliðun, reynsluöflun, opnun fyrir veiðar þeirra sem ekki eru handhafar veiðiheimilda og örvun atvinnustarfsemi í sjávarbyggðum • Markmið um frjálsar veiðar með ströndinni, gæslu atvinnufrelsis og aukið jafnræði við aðgengi að fiskstofnum er erfiðara að meta • Ekki verður séð að strandveiðarnar hafi unnið gegn neinu af þeim opinberu markmiðum sem sett hafa verið um fiskveiðistjórnun á Íslandi
Strandveiðarnar gefa tóninn • Misjöfn meðul þarf til að styrkja ólíkar byggðir. • Setja þarf fram nákvæmari skilgreiningar á þeim samfélagslegum markmiðum sem ætlunin er að ná • Strandveiðarnar 2009 breyta ekki kvótakerfinu í sjálfu sér • Þær gefa hinsvegar tóninn um að núverandi kvótakerfi getur ekki uppfyllt allar kröfur sem gera þarf til fiskveiðistjórnunar • Þær gefa innsýn í að til eru fleiri leiðir til að stjórna fiskveiðum á Íslandsmiðum
Hámörkun hagvaxtar • Núverandi undirstaða arðsemisútreikninga fiskveiðistjórnunar á Íslandi gerir almennt ráð fyrir því að við munum hámarka velferð okkar með því að hámarka neyslu • Meinlokan um þýðingu hagvaxtar, eins og hann er mældur í vexti á vergri þjóðarframleiðslu er eitt alvarlegasta vandamálið sem mannkynið stendur frammi fyrir nú um stundir • Fjöldi hagvísa hafa verið búnir til sem gætu gefið okkur réttari mynd af efnahags- og samfélagsþróun • Því miður hneigjast stjórnvöld um allan heim til þess að leggja ofuráherslu á keppnina um vöxt þjóðarframleiðslu
Kvótakerfið - rentan • Kvótakerfið í núverandi mynd er hagfræði tilraun sem hefur mistekist. • Auðlindarentunni til eigandans hefur ekki verið haldið til haga og komið til skila, ... • ... heldur dreift með einokunarfyrirkomulagi til notenda og glutrað niður í misheppnuðum fjárfestingum. • Þó ekki væri nema fyrir þessar sakir þarf að gera leiðréttingu.
Kvótakerfið – þróun og samfélag • Alvarlegasti gallinn við kvótakerfið er þó innbyggður í sjálfar undirstöður þess • Kerfið er svo niðurnjörvað í hagsmunagæslu að ekki er með nokkru móti hægt að gera á því breytingar. • Fiskveiðistjórnun á Íslandi getur því ekki þróast. • Hvorki í takt við breytingar í samfélaginu og óskir þess ... • ... né heldur í samræmi við nýja þekkingu á sviði fiskveiðistjórnunar
Lokalausnin • Íslensk stjórnvöld, útgerð, fiskiráðgjafar, sjómenn og almenningur þurfa að gera sér grein fyrir því að ekki er til nein ein endanlega lausn á stjórnun fiskveiða • Því fyrr sem það verður viðurkennt því fyrr verður hægt að ná árangri á fleiri sviðum en að auka arðsemi einstakra fyrirtækja • Trú á endanlegar lausnir kemur í veg fyrir að menn komi auga á aðra möguleika
Hvert skal halda? • Hvað er rætt á „sáttafundum“ útgerða og alþingismanna? • Hvernig þeir geti skorað sem mest og skaðast sem minnst? • Leggja þarf línurnar og setja fram með skýrum hætti öll þau markmið sem íslenskt þjóðfélag vill ná, en ekki aðeins markmið útgerðar og fiskvinnslu • Að því búnu þarf að finna þær ólíku leiðir sem henta hverju markmiði