140 likes | 346 Views
Amma, Jón, Erla, Unnur, Marín, Edda, Dagný og Friðlaugur. Þarna er amma með slegið hár sem ekki var algengt, e.t.v. hefur hún verið að greiða sér þegar til myndatöku kom.
E N D
Amma, Jón, Erla, Unnur, Marín, Edda, Dagný og Friðlaugur. Þarna er amma með slegið hár sem ekki var algengt, e.t.v. hefur hún verið að greiða sér þegar til myndatöku kom.
Valtýr í heimsókn og var boðið í reiðtúr á gæðingnum Kára. Í hægra horni er „súrheyshatturinn“ svo kallaður, tekinn af á sumrin meðan bætt var í gryfjuna og festur á aftur að því loknu. Hundurinn er gamli Kátur. Hann varð 13 ára gamall.
Steingrímur að slóðadraga. Hestarnir munu vera Valur og Bára. Bára var sterk og dugleg og gekk um öll hlið þó vel væru bundin aftur. Eins opnaði hún hurðirnar á húsinu, tvennar dyr til að komast í eldhús-gættina. Eitt sinn fór hún inn í skúrinn, ytri dyrnar á húsinu og braut niður gólfið og sat þar föst.
Það var stór stund þegar fyrsta dráttarvélin, sem var af gerðinni Deautz, kom að Miðhlíð 1955 eða 56. Hún gekk undir gælunafninu Dauta og var í notkun þar til fáum árum áður en Steingrímur og Dagný létu af búskap.
Hann er spennandi „þarfasti þjónninn“ hinn nýi og gaman að raða sér á. Talið frá vinstri: Edda, Erla, Hörður við stýrið, Unnur fyrir aftan hann, síðan Jón og Friðlaugur.
Miðhlíðarbærinn og gamli kartöflugarðurinn sem var fyrir framan húsið.
Miðhlíðarbærinn, hér vantar nöfn á börnin á hlaðinu, trúlega er hundurinn sem liggur þar gamli Kátur, einnig er einhver í eldhúsglugganum.
Edda, Unnur og Kátur. Til vinstri sést í útihús eikum hesthúsið, á milli þeirra sjást vel húsin á Húsabalanum og í höfuð Unnar ber „súrheyshatturinn“.
Unnur, til vinstri við hana er gamla fjósið, en til hægri er hlaðan, hrútakofinn sem á sumrum fékk nýtt hlutverk og var þá nefndur meyjaskemman, þar næst hesthúsið og hænsnahúsið.
Skemmtileg mynd af Stínu og Unnu fyrir framan gömlu baðstofuna í Miðhlíð eftir að gangahúsið hafði verið rifið og nýi bærinn byggður. Þannig var þetta í fyrstu síðar var baðstofan rifin og skúrbyggingin byggð í hennar stað.
Hluti af heimasætum Miðhlíðar, frá vinstri: Sæbjörg, Jóhanna, Bjarndís og Dagný standandi aftan við Jóhönnu