270 likes | 522 Views
Borgaraleg ferming 2012. Kynningarfundur 12. nóvember 2011. Efni kynningarfundar. Bakgrunnur Hver er kynnirinn, Hope Knútsson? Saga Borgaralegrar fermingar á Íslandi. Hvað er borgaraleg ferming? Hvað er Siðmennt? Undirbúningsnámskeiðið. Hátíðleg athöfn – kynningarmyndband.
E N D
Borgaraleg ferming 2012 Kynningarfundur 12. nóvember 2011
Efni kynningarfundar • Bakgrunnur • Hver er kynnirinn, Hope Knútsson? • Saga Borgaralegrar fermingar á Íslandi. • Hvað er borgaraleg ferming? • Hvað er Siðmennt? • Undirbúningsnámskeiðið. • Hátíðleg athöfn – kynningarmyndband. • Hagnýtar upplýsingar – kostnaður o.fl. • Upplýsingaskil - fylla út eyðublað vegna námskeiðs.
Bakgrunnur – hver er Hope Knútsson • Hope Knútsson frá New York borg. • Hef búið á Íslandi síðan 1974. • Iðjuþjálfi að mennt. • Er ekki kristin, hef aldrei verið kristin. • Þegar börnin mín nálguðust fermingaraldur ræddum við um valkosti.
Bakgrunnur– Hope kannar málið • Hafði lesið um borgaralega fermingu annars staðar. • Var haldin á öllum Norðurlöndunum - byrjaði í Danmörku 1914, í Noregi 1951. • Er líka víða annars staðar í Evrópu. • Aflaði upplýsinga erlendis frá.
Bakgrunnur - fyrsti hópurinn • Skrifaði í dagblöðin 1988. • Börnin mín fyrstu íslendingarnir í BF. • Spurði hvort það væru fleiri. • 16 fjölskyldur vildu vera með. • Unglingar allt að 15-16-17 ára.
Bakgrunnur – af litlu fræi vex oft stórt tré • Bjuggum til nefnd og settum saman námskeið. • Hermdum eftir Norðmönnum - höfum verið að þróa námskeiðið síðan. • Ætlaði að gera þetta einu sinni, en virðist ætla að verða að ævistarfi. • Erum að fara af stað núna í tuttugasta og fjórða skiptið. • Síðan 1989 hafa nú tæplega 1600 íslensk börn fermst borgaralega. • Um 21.000 manns verið viðstaddir þessar athafnir.
Bakgrunnur – í hinu stóra samhengi • Íslenskt samfélag er fjölmenningarlegt. • Hér búa um 20.000 manns sem eru fæddir annars staðar. • Það eru ekki lengur allir eins. Um 20% þjóðarinnar „trúa ekki” á æðri mátt samkvæmt könnun árið 2004. • Bráðnauðsynlegt í öllum samfélögum að hafa val. • Kjörorð okkar – það er allt í lagi að vera öðruvísi!
Hvað er borgaraleg ferming? (1) • Valkostur við kristilega fermingu. • Fyrir unglinga sem eru ekki reiðubúnir til að strengja trúarheit. • Sum eru annarrar trúar eða trúa á guð á sinn hátt. • Önnur eru ekki trúuð. • Eða hafa af einhverjum ástæðum ekki áhuga á kristilegri fermingu, en vilja samt halda upp á þessi tímamót í lífinu.
Hvað er borgaraleg ferming? (2) • Fermingabörnin sækja vandað námskeið þar sem þau læra ýmislegt sem er góður undirbúningur fyrir það að verða fullorðin með öllum þeim réttindum og skyldum sem því fylgja. • Boðskapur: að efla heilbrigt og farsælt viðhorf unglinganna til lífsins. • Lögð áhersla á umburðarlyndi, gagnrýna hugsun, siðfræði, mannleg samskipti og ábyrgð einstaklingsins í nútíma þjóðfélagi. • Snýst ekki um trúarbrögð og er óháð trúarbrögðum. • Ekkert kennt á námskeiðinu sem er andstætt kirkjunni.
Af hverju orðið ferming? (1) • Er ekki upphaflega íslenskt orð. • Dregið af latneska orðinu confirmare sem þýðir að styðja eða að styrkjast. • Í alþjóðlegum orðabókum er orðið confirmare skilgreint á 7 mismunandi vegu. • Trúarleg skilgreining er aðeins ein af 7 og ekki sú sem fyrst er upp talin. • Ungmenni sem fermast borgaralega eru einmitt að styrkjast í þeirri ákvörðun að verða ábyrgir borgarar.
Af hverju orðið ferming? (2) • Gott að hafa í huga að engin getur haft einkaleyfi á orði. Kristnir menn eiga ekki orðið ferming. • Íslendingar nota rammheiðið orð jól frekar en kristsmessa. • Þegar kristnir menn á Íslandi hætta að nota orðið jól, þá munum við e.t.v. endurskoða nafnið borgaraleg ferming. • Okkur finnst sjálfsagt að nota orðið ferming því að annars staðar þar sem þessi valkostur er fyrir hendi, heitir það oftast borgaraleg ferming. • Þess má geta að Norðmenn árið 2007, skiptu út lýsingarorðinu við nafn athafnarinnar eftir 56 ár, í húmanísk ferming í stað borgaralegrar fermingar, en þeir halda orðinu ferming.
Hvað er Siðmennt? (1) • Félag siðrænna húmanista á Íslandi - stofnað 1990. • Lífsskoðunarfélag sem hefur siðferði og skynsemi að leiðarljósi. Lífsskoðunarfélag er félag sem fjallar um: • Siðferði, t.d. breytni einstaklinga eða siðferðileg álitamál. Mannvirðing, velvilji, frelsi og samábyrgð eru meðal áherslna. • Þekkingarfræði, þ.e. Hvernig öflum við haldbærrar þekkingar? Hvað er hlutlægni, huglægni, skynjun o.s.frv.? • Félagslegar athafnir fjölskyldna, sbr. borgaralega fermingu • Félagið er málsvari manngildisstefnu (húmanisma) og frjálsrar hugsunar, óháð trúarsetningum og stendur fyrir veraldlegum athöfnum á mikilvægum tímamótum í lífi fólks.
Hvað er Siðmennt? (2) Helstu verkefni • Félagslegar athafnir fjölskyldna – „tímamótaathafnir”. • Þann 29. maí 2008 (jarðskjálftadaginn) setti félagið á fót athafnaþjónustu fyrir nafngjafir, giftingar og útfarir. • Á vegum hennar starfa 11 athafnarstjórar sem stýra athöfnum á veraldlegan máta með húmaníska lífssýn að leiðarljósi. • Umsjónarmaður Athafnaþjónustu Siðmenntar er Svanur Sigurbjörnsson. Panta má athöfn á vefsíðu Siðmenntar.
Hvað er Siðmennt? (3) Helstu verkefni ... frh. • Barátta fyrir raunverulegu trúfrelsi/sannfæringarfrelsi. • jöfn réttindi og staða ólíkra lífsskoðunarfélaga. • aðskilnaður ríkis og kirkju, • veraldlegt skólahald þar sem börnum er ekki mismunað vegna trúar eða lífsskoðana foreldra. • Barátta fyrir mannréttindum almennt.
Aðeins nánar um aðrar athafnir félagsins • Útför – persónuleg athöfn með heimspekilegri hugvekju athafnarstjóra og minningarorðum. • Nafngjöf – hugvekja og ávarp til foreldra ásamt formlegri nafngjöf með innilegum og persónulegum blæ. • Felur ekki í sér vígslu eða inngöngu í félag/söfnuð og því fær barnið að ákveða sjálft sína lífsskoðun og félagsaðild þegar það kemst á sjálfræðisaldur. • Gifting – Innileg, hlý og persónuleg athöfn með gleðilegu yfirbragði. Athafnarstjóri fer með hugvekju og ávarp til parsins áður en þau fara með heityrði sín.
Borgaraleg fermingarnámskeið Siðmenntar • Umsjónarkennari Siðmenntar, Jóhann Björnsson heimspekingur og grunnskólakennari mun segja nánar frá tilhögun næsta námskeiðs. • Efnisflokkar námskeiðsins, hvar og hvenær. • Þess má geta að Jóhann er einstaklega skilningsríkur, sveigjanlegur, og skemmtilegur maður!
Fermingarathafnir Siðmenntar • Dagsetningar: Tvær athafnir verða haldnar í stóra sal Háskólabíós sunnudaginn 15. apríl 2012 fyrir börn í Reykjavík, Mosfellsbæ og af landsbyggðin þar sem eru ekki nógu margir til að halda sér athöfn. • Fyrri athöfnin verður kl.11:00 og seinni athöfnin kl.14:00. • Ein eða jafnvel tvær athafnir í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 22. apríl 2012 fyrir börn úr Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Álftanesi og Suðurnesjum. (kl. 11 og 13:30). • Æfingarnarfara fram daginn áður þ.e. laugardaginn 14. apríl í Háskólabíói og 21. apríl í Salnum. • Akureyrarathöfn í Hofi sunnudaginn 13. maí 2012 • Unglingunum verður skipt í fyrri og seinni athöfn útfrá því námskeiði sem þau taka þátt í.
Fermingarathöfnin • Eftir nokkrar mínútur verður sýnt stutt myndband frá fermingarathöfnunum vorið 2011 til að gefa ykkur hugmynd um hversu hátíðleg, falleg, þjóðleg og skemmtileg athöfnin er! • Þar koma fram einn utanaðkomandi ræðumaður og nokkur fermingarbörn sem flytja stutt ávörp, lesa ljóð, spila á hljóðfæri, syngja eða dansa. • Athöfnin tekur um eina klukkustund. • Hópmyndataka (í Rvk og Kóp) fer fram strax að lokinni athöfn og tekur ca. 20 mínutur.
Fermingarskjalið • Í lokin fá fermingarbörnin skrautskrifað skjal til staðfestingar á því að viðkomandi hafi sótt námskeiðið til undirbúnings borgaralegri fermingu. • Textinn á fermingarskjalinu: „Það er von okkar að þú munir færa þér í nyt þá fræðslu og leiðsögn sem þú hefur fengið og verðir víðsýn og heilsteypt manneskja. Vertu velkomin(n) í hóp hinna fullorðnu með þeirri ábyrgð sem því fylgir“.
Skipulag athafnarinnar (1) • Er í höndum stjórnarmanna og athafnarstjóra Siðmenntar með aðstoð nokkurra foreldra. • Öllum var gefinn kostur á að vera í undirbúningsnefndinni við skráninguna á netinu. • Nefndin hefur yfirleitt verið 6-8 manns en nú buðu um 60 foreldra sig fram, sem er frábært en ópraktískt! Ég er ekki viss hvernig þetta verður, hvort við munum hittast eða vera í tölvupóstsambandi. • Upplýsingar um hver er í hvaða námskeiði og hvenær og hvar á að mæta verða sendar út fyrir miðjan desember.
Skipulag athafnarinnar (2) • Spurningar verða sendar út með tölvupósti eftir áramót til allra fjölskyldna. Spurt er um tillögur um ræðumenn og hvaða börn hafa áhuga á að koma fram. Bráðnauðsynlegt er að svara spurningunum þar sem athafnirnar eru byggðar á upplýsingum úr þeim. • Í mars verður kannað hverjir vilja panta hópmynd og/eða DVD. Hópmynd og DVD eru EKKI innifalin í verði vegna athafnarinnar.
Kostnaður og greiðslufyrirkomulag... • Kostnaður: fermingarnámskeiðið kostar kr. 26.000 og athöfnin kr.8.000 • Bæði námskeiðsgjaldið og athafnagjaldið verður rukkað saman í einu þáttttökugjaldi samtals kr. 34.000 . • Gjalddagi er 3. desember og eindagi 3. janúar. Foreldrar verða að greiða þátttökugjaldið áður en námskeiðin byrja. Enginn fær að halda áfram í námskeiðinu sé ekki búið að greiða í lok síðasta virks dags í fyrstu kennsluviku (13.jan). • Afslættir: • Systkinaafsláttur (systkin sem eru í BF á sama tíma) er 20%. • Afsláttur félaga (foreldra) í Siðmennt fer eftir tímalengd aðildar: • 10% fyrir fyrstu tvö ár aðildar, 20% frá og með þriðja ári aðildar
Kostnaður og greiðslufyrirkomulag... • Í lok nóvember fær foreldri greiðsluseðil fyrir heildargjaldi í heimabanka • Hægt er að fá sendan póstgíróseðil heim hafi foreldri ekki heimabanka, en það þarf að biðja sérstaklega um það. Vegna aukakostnaðar við gíróseðil bætast kr. 300 á hann. Vinsamlegast látið okkur vita ef þið viljið póstgíróseðil. • Fólk í fjárhagsvanda getur samið við gjaldkera um greiðsludreifingu yfir 2-3 mánuði. Fyrsta innborgun 3. des. (t.d. 12 þús í des.-> 12 í jan -> 10 í feb). Félagsmálayfirvöld hafa hjálpað í sumum tilvikum.
Gott að vita: • Hætti barn við þátttöku er endurgreitt að fulla sé látið vita fyrir lok sunnudags (15. janúar) fyrstu kennsluviku, en eftir það er haldið eftir krónum 3000 í umsýslugjald. • Engin endurgreiðsla (nema kr. 8000 vegna athafnar) fæst hætti barn að loknum helmingi námskeiðs eða meira. • Láta skal vita með því að senda netpóst til athafnir@sidmennt.is eða hringja í: • Hope Knútsson umsjónarmann (s: 557 3734, 694 7486), • Jóhann Björnsson kennslustjóra (s: 844 9211) eða • Svan Sigurbjörnsson gjaldkera (s: 896 3465).
Upplýsingaskil – fylla út eyðublöð • Nú verður dreift eyðublöðum þar sem þið fyllið út allar upplýsingar sem við þurfum til að tryggja skráningu. • Mjög mikilvægt er að merkja við þau námskeið sem hentar best (fyrsta, önnur og þriðja val) og einnig daga/tíma sem passa alls ekki. • Óákveðnir eru beðnir um að láta Hope vita sem fyrst um hvort þau verða með eða ekki, því við verðum að raða fermingarbörnunum á námskeiðin í byrjun desember. Stórt púsluspil fyrir okkur!
Til fróðleiks: Á næstu dögum fáið þið senda þessa upplýsinga-glærusýningu en hún nýtist bæði þeim sem mættu á kynningarfundinn ásamt þeim sem komust ekki.