100 likes | 347 Views
Orð af orði - orðaforði. Aníta Jónsdóttir Hrafnagilsskóla. Upphafið. Markmið. Orðaforðakennslu er ætlað að auka lesskilning og að nemendur efli orðaforða og hæfni til að ráða í merkingu orða, nýti orðasafnið á fjölbreyttan hátt og efli þannig skilning. Framkvæmd.
E N D
Orð af orði - orðaforði Aníta Jónsdóttir Hrafnagilsskóla
Markmið • Orðaforðakennslu er ætlað að auka lesskilningog að nemendur efli orðaforða og hæfni til að ráða í merkingu orða, nýti orðasafnið á fjölbreyttan hátt og efli þannig skilning.
Framkvæmd • Námskeið fyrir kennara, fræðilegar undirstöður og áætlanir. Kennsluleiðir og útfærsluhugmyndir. • Markviss orðaforðakennsla í 10 vikur, minnst þrisvar í viku í tveimur fögum. • Lesskilningspróf I lagt fyrir nemendur. • Ráðgjöf til kennara (litlir hópar) mánaðarlega. • Lesskilningspróf II lagt fyrir nemendur. • Skýrsla um verkefnið.
Kennslan Kennarar 3. – 7. bekkjar, auk kennara í bóklegum fögum annarra bekkja tóku þátt í verkefninu og hófust strax handa. Útbúnar voru kennsluáætlanir, verkefni framleidd og út um allan skóla mátti sjá afraksturinn.
Helstu niðurstöður - nemendur • Áhugi og vitund nemenda um orð jókst, vitund um hvernig við notum orðhluta í málinu og hvernig hægt er að finna leiðir til skilnings. • Nemendur urðu áhugasamari um orð. • Nemendur taka orð til skoðunar þegar þeir skilja ekki með því að skoða orðhlutana. • Nemendur eru vakandi fyrir orðum og taka eftir ef þeir rekast annars staðar á orð sem tekin hefðu verið til umfjöllunar í skólanum.
Helstu niðurstöður - kennarar • „..ég sá áhuga nemenda á orðum og orðaforða glæðast með hverjum degi eftir að ég fór að vinna markvisst með verkefnið.“ • „Með orði dagsins notuðum við okkur mikið að fara í málfræðiþætti, eins og samheiti, andheiti, rím, kyn orða og tala, tvöfaldur samhljóði, sérnöfn og samnöfn.“ • „Almennur áhugi á lestri hefur aukist samhliða yndislestri.“ • „Þessi vinna féll mjög vel að íslenskukennslu 10. bekkjar þar sem á sama tíma var verið að vinna með forskeyti, rót, viðskeyti, hljóðskipti og beygingarendingar.“
Framhaldið • „Kennsluaðferðir í íslensku næsta vetur verða byggðar á orði af orði og höfum við hugsað okkur að bæta við aðferðum í stafsetningarkennslu. Yndislestur verður áfram, svo og vinna við gagnvirkan lestur og hugtakakort.“