1 / 10

DRÖG SIÐAREGLUR ALMANNAHEILLA

DRÖG SIÐAREGLUR ALMANNAHEILLA ÞRIÐJI GEIRINN: SIÐLEGIR STARFSHÆTTIR OG ÁBYRGÐ STJÓRNA ALMANNAHEILLASAMTAKA. Nefnd um siðareglur: Anna Ólafsdóttir Eva Þengilsdóttir Guðrún Snorradóttir Þuríður Hjartardóttir. DRÖG AÐ SIÐAREGLUM ALMANNAHEILLA. Tilgangur siðareglna

urvi
Download Presentation

DRÖG SIÐAREGLUR ALMANNAHEILLA

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. DRÖGSIÐAREGLUR ALMANNAHEILLA ÞRIÐJI GEIRINN: SIÐLEGIR STARFSHÆTTIR OG ÁBYRGÐ STJÓRNA ALMANNAHEILLASAMTAKA Nefnd um siðareglur: Anna Ólafsdóttir Eva Þengilsdóttir Guðrún Snorradóttir Þuríður Hjartardóttir

  2. DRÖG AÐ SIÐAREGLUM ALMANNAHEILLA • Tilgangur siðareglna • Ábyrgð gagnvart almenningi, fjölmiðlum og samfélagi • Ábyrgð gagnvart skjólstæðingum, félagsmönnum,notendum, umbjóðendum og styrktaraðilum • Ábyrgð starfsfólks og sjálfboðaliða • Fjármál • Aðild að Almannaheillum – almennar og sértækar siðareglur • Viðbrögð við brotum á siðareglum

  3. TILGANGUR SIÐAREGLNA • Að veita aðilum Almannaheilla stuðning í veigamiklu hlutverki sínu að vinna að almannaheill í gegnum mannrækt, heilsuvernd og -eflingu, umhverfisvernd og annað sem aðilar að samtökunum standa fyrir. • Að styrkja ímynd aðila Almannaheilla, viðhalda og auka traust almennings á starf þeirra með því að upplýsa um gildi sem móta starfið. • Að efla gegnsæi, góða stjórnarhætti og faglegt starf í þágu almennings. • Að veita starfsmönnum viðmið um breytni og þá faglegu ábyrgð sem á þeim hvílir umfram lagalegar skyldur.

  4. Á B Y R G ÐGAGNVART ALMENNINGI, FJÖLMIÐLUM OG SAMFÉLAGI • Upplýsingar sem aðilar Almannaheilla veita eru áreiðanlegar og gefa rétta mynd og samhengi þess sem verið er að kynna. Tölfræði og hugtök eru vel skilgreind og stuðla að skýrum og réttum fréttaflutningi til almennings. • Aðilar Almannaheilla starfa sjálfstætt að markmiðum sínum, með hagsmuni félagsmanna , skjólstæðinga og umbjóðenda sinna að leiðarljósi, án þrýstings eða skuldbindinga gagnvart stjórnvöldum, styrktaraðilum eða öðrum utanaðkomandi aðilum.  • Aðilar að Almannaheillum hafa umhverfissjónarmið ávallt að leiðarljósi í rekstri sínum og sýna með því gott fordæmi í umgengni við náttúru og samfélag.

  5. Á B Y R G ÐGAGNVART SKJÓLSTÆÐINGUM, FÉLAGSMÖNNUM,NOTENDUM, UMBJÓÐENDUM OG STYRKTARAÐILUM • Aðilar að Almannaheillum bera ábyrgð á starfi sínu og sýna skjólstæðingum, félagsmönnum, notendum þjónustu, umbjóðendum og öðrum virðingu og trúnað. • Aðilar Almannaheilla hafa sett sér sértækari siðareglur í samræmi við starfsvettvang sinn. • Áreiðanlegar og skýrar upplýsingar eru veittar fúslega og án óþarfa tafa. Notendum þjónustu eru gefnar aðgengilegar upplýsingar um alla þætti hennar og þeim auðveldað að nota hana. • Aðilar Almannaheilla mismuna ekki þeim sem þeir eiga í samskiptum við hvorki á grunni þjóðernis, kyns, kynhneigðar, fötlunar, trúar, skoðana eða annars sem er ólíkt með fólki. Almannaheill og aðilar að samtökunum misnota ekki stöðu sína sem veitendur þjónustu / gæða til að misbjóða, kúga, niðurlægja eða svíkja traust þeirra sem til þeirra sækja.

  6. Á B Y R G ÐSTARFSFÓLKS OG SJÁLFBOÐALIÐA • Starfsfólk og sjálfboðaliðar halda tryggð við markmið og orðstír Almannaheilla. • Starfsfólk og sjálfboðaliðar Almannaheilla nýta ekki trúnaðarupplýsingar sjálfum sér til framdráttar. • Starfsfólk og sjálfboðaliðarAlmannaheilla veita ekki fyrirgreiðslu vegna persónulegra tengsla eða vensla. • Starfsfólk og sjálfboðaliðar Almannaheilla og aðila að þeim virða störf annarra félaga og samtaka og kynna sig í krafti eigin starfs. • Starfsfólk og sjálfboðaliðar  Almannaheilla og aðila þeirra sýna hver öðrum virðingu, samstarfsvilja og stuðning og stuðla að framgangi verkefna.

  7. FJÁRMÁL • Meðferð fjármuna er samkvæmt viðurkenndum bókhalds- og reikningsskilavenjum og endurskoðun reikninga í höndum löggiltra aðila. • Upplýsingar um fjárhag og rekstur eru gegnsæjar, settar fram á einfaldan og skýran máta. • Ávallt er skýrt til hvers fjár er aflað og tilskilin leyfi fyrir söfnunum fengin. • Ágóðahlutur af hvers kyns sölu og kostnaðarhlutfall við fjáraflanir liggja fyrir og eru aðgengilegir þeim sem þess óska. • Aðilar að Almannaheillum gæta ráðvendni og taka ekki við styrkjum frá aðilum sem með framgöngu sinni eða starfsemi, vinna gegn baráttumálum þeirra. • Aðilar að Almannaheillum afla ekki fjár með vafasömum hætti. • Starfsfólk er meðvitað um að það vinnur með almannafé og gætir ráðdeildar í hvívetna.

  8. AÐILD AÐ ALMANNAHEILLUM – ALMENNAR OG SÉRTÆKAR SIÐAREGLUR • Aðilar að Almannaheillum eru skráð félög eða samtök með stjórn og lög um starfsemi sína. • Aðilar að Almannaheillum gangast undir siðareglur Almannaheilla. Þeir starfa að auki eftir eigin siðareglum í samræmi við sitt starfssvið.

  9. VIÐBRÖGÐ VIÐ BROTUM Á SIÐAREGLUM • Vakni grunur um eða verði ljóst að siðareglur þessar hafi verið brotnar má hver sem þess verður var, tilkynna það stjórn Almannaheilla. Skal stjórnin taka málið til umfjöllunar og afgreiðslu með hliðsjón af eftirfarandi: • Brjóti aðili að Almannaheillum gegn siðareglum þessum skal hann í samráði við stjórn Almannaheilla bæta fyrir brotið eins og hægt er með því að birta, leiðrétta upplýsingar eða gera aðra þá bragarbót sem þurfa þykir og hægt er. • Annað brot jafngildir því að segja sig frá siðareglum Almannheilla og felur í sér að aðild fellur niður. • Þess skal gætt að sá sem leggur fram upplýsingar um ætlað brot á siðareglunum, beri ekki skaða af.

  10. „Maðurinn einn er ei nema hálfur, með öðrum er hann meiri en hann sjálfur.“ Einar Benediktsson

More Related