220 likes | 431 Views
Vinnuvernd og áfengi. Kristinn Tómasson, dr.med Yfirlæknir Vinnueftirlitsins. Inngangur. Aukin hætta á vinnuslysum í tengslum við áfengisnotkun
E N D
Vinnuvernd og áfengi Kristinn Tómasson, dr.med Yfirlæknir Vinnueftirlitsins
Inngangur • Aukin hætta á vinnuslysum í tengslum við áfengisnotkun • Í Svíþjóð eru þeir sem stunda s.k. líkamleg störf með aukna áhættu á að greinast með áfengiskvilla eða látast vegna áfengisnotkunar (Sweden - Hemmingsson Tet al, 2001) • Í Bandaríkjunum er algengi áfengissýki hæst í byggingariðnaði (20% –25%) og í landflutningastarfsemi (17%) (US -Mandell W et al,1992)
Inngangur • Á Íslandi hefur algengi áfengismisnotkunar og -sýki verið talið liggja á milli 3.5% og 6.3%, u.þ.b. 4 sinnum algengara meðal karla en kvenna. • Algengi misnotkunar annarra fíkniefna (t.d. kannabis, amfetamins, róandi o.s.frv) verið áætlað í kringum 1%
Vinnuvernd áfengi og önnur fíkniefnanotkun • Nauðsynlegt er að vita umfang vandans til að hægt sé að meta hugsanlegar afleiðingar. Þ.e. hversu margir eru með áfengis- eða önnur fíkniefnavandamál eftir starfstéttum • Slíkar upplýsingar eru grundvöllur aðgerða til að varðveita heilsu starfsmanna – þ.e. 1. stigs forvörn • Slíkar upplýsingar eru líka grundvöllur aðgerða til að vernda hag og öryggi fyrirtækisins vegna hættu af neyslu þessara efna
Gögn • Upplýsingar hér á eftir byggjast á rannsókn áfengis – og vímuvarnarráðs frá 2001. • Gögnin byggja 4000 manna úrtaki fólks á aldrinum 18 til 75 ára. Svarhlutfall var 63.6% • Einvörðungu er fjallað um þá sem eru á vinnumarkaði í 8 mismunandi starfshópum
Hundraðshluti einstaklinga eftir starfsgreinum þar sem notkun áfengis hefur haft slæm áhrif á vinnu þeirra á s.l. 12 mánuðum
Hundraðshluti sem segir áfengi vandamál eftir starfsgreinum
Hundraðshluti sem hefur ekið bifreið undir áhrifum áfengis eftir starfsgreinum
Hundraðshluti eftir starfsgreinum sem hefur einhvern tíma misnotað lyfseðilsskyld lyf eða einhvern tíma notað örvandi lyf
Hundraðshluti sem hefur reykt hass eða kannabisefni um ævina og á s.l. 4 vikum eftir starfsstéttum
Hefur þú verið einhvern tíma ölvaður við störf? • Á árinu 2004 svörðu • 11,3% karla þessu játandi • 3.2% kvenna þessu játandi • Þeir sem viðurkenna drykkjuvanda eru 1,7 sinnum líklegri til að hafa lent í vinnuslysi sem leiddi til læknisskoðunar • Úr samanburðarúrtaki vegna rannsóknar á heilsufari bænda – galli tæp 50% svörun
Afleiðingar áfengismisnotkunar í umönnunargeiranum • Starfsfólk, hjúkrunarheimila og stofnana, hefðbundin kvennastétt er um 1% af öllu vinnuafli í landinu • Byggt á þessu var ákveðið að rannsaka algengi áfengismisnoktunar meðal allra kvenna sem vinna við umönnun aldraðra á stofnunum á Íslandi með tilliti til lýðfræðilegra, heilsu- og vinnutengdra breyta.
Efniviður • Öllum starfsmönnum í öldrunarþjónustu á stofnunum með 10 starfsmenn eða fleiri var boðin þátttaka í þverskurðarrannsókn. • Svarhlutfall var 80% (n=1515), 96% voru konur (n=1432). • Karlar voru ekki teknir með í úrvinnslu.
Hlutfallsleg áhætta á sjúkdómum leiðrétt fyrir reykingum hjá þeim sem misnota áfengi á öldrunarstofnunum
Hlutfallsleg áhætta á sjúkdómum leiðrétt fyrir reykingum hjá þeim sem misnota áfengi á öldrunarstofnunum
Til fróðleiks • Þær sem misnota áfengi eru 2,5 cm lægri en hinar • Algengi misnotkunar er ekki háð stöðu eða menntun, en er heldur algengari meðal þeirra sem eru á vöktum.
Umræða • Skynsamlegt er að nota víða skilgreiningu á áfengismisnotkun við starfsmannaheilsuvernd. • Áfengismisnotkun þannig skilgreind hrjáir frekar þá sem höllum fæti standa, vinnulega, sálfélagslega, geðrænt, og/eða heilsufarslega að öðru leiti og einnig m.t.t vinnuslysa.
Umræður • Verulegur breytileiki er til staðar milli mismunandi hópa í samfélaginu varðandi misnotkun áfengis og annarra fíkniefna • Áfengi er aðalvandinn, með áberandi fjölda sem hefur ekið undir áhrifum. Sennilega er þetta þó akstur í frítíma • Þessi gögn benda til þess að um 1% noti ólögleg fíkniefni reglulega, en hins vegar hafa margir prófað slíkt.
Ályktanir 1 • Í ljósi algengis vandans sem án efa tengist fyrst og fremst frítíma og helgarnotkun er kerfisbundin skimun með sýnatöku ekki líkleg til þess að greina nema mjög fáa sem eru í vanda. • Margir munu greinast falskt jákvæðir og hafa af því óþægindi og fyrirtækið umtalsverðan kostnað án ávinnings.
Ályktanir 2 • Áhersla á slíkar forvarnir eykur hættu á því að verkstjórar, starfsmenn og stjórnendur verði minna vakandi fyrir “mánudagssleni” þar sem öll efni eru farin úr einstaklingnum en þreytan og þar með slysa- og mistaka hættan er enn mikil
Lokaorð • Skýr stefna er varðar alla vímuefnanotkun, þ.m.t. tóbak, áfengi og önnur efni er nauðsynlegur hluti af vinnuverndarstefnu hvers fyrirtækis og þar með einn af þeim þáttum sem fyrirtæki þurfa að vega og meta í sínu áhættumati.