400 likes | 762 Views
Jarðhiti. Há- og lághitasvæði og köld svæði Jarðhitastigull og uppruni jarðhitans Vatnshverir, leirhverir, gufuhverir og goshverir Nýting jarðhitans Goshverir. Jarðhitasvæði eru flokkuð eftir hitafari. Á háhitasvæðum er hitastig á 1 km dýpi yfir 150 – 200 °C
E N D
Jarðhiti Há- og lághitasvæði og köld svæði Jarðhitastigull og uppruni jarðhitans Vatnshverir, leirhverir, gufuhverir og goshverir Nýting jarðhitans Goshverir
Jarðhitasvæði eru flokkuð eftir hitafari • Á háhitasvæðum er hitastig á 1 km dýpi yfir 150 – 200 °C • Á lághitasvæðum er hitastig á 1 km dýpi undir 150 °C • Köld svæði eru þau svæði kölluð þar sem engin virkni sést á yfirborði á stórum svæðum.
Uppruni háhitans • Talið er að háhitasvæði séu nær undantekningalaust í tengslum við kólnandi kviku. • Háhitasvæði eru á gosbeltunum. • Virkni á yfirborðinu er mikil, berg ummyndað og leir og gufuhverir einkenna gróðurlaust yfirborðið.
Uppruni lághitans • Lághitasvæði eru svæði þar sem jarðhitavökvi hitnar við það að leika um berg á 1-3 km dýpi. • Vatnið berst hratt upp á yfirborðið um jarðskjálftasprungur eða sprungur meðfram berggöngum. • Varminn kemur úr bergi eða frá innskotum.
Uppruni lághitans • Talið er að lághiti á yfirborði reiði sig á tvennt: Varmauppsprettu og vatnsleiðandi jarðlög. • Varmauppsprettan er í sumum tilvikum heitt berg í hraunlagastafla sem ekki hefur náð að kólna eftir að hafa rekið út úr gosbeltunum nema niður tiltekið hitagildi. • Í öðrum tilvikum er kólnandi berginnskot talið varmauppspretta og í sumum tilvikum jafnvel kvika.
Köld svæði • Köld svæði eru svæði þar sem berggrunnurinn er þéttur. Þar getur vatn (jarðhitavökvi) runnið um vatnsleiðandi jarðlög á miklu dýpi án þess að komast upp á yfirborð. • Boranir á köldum svæðum geta leitt þennan vökva upp á yfirborðið í vinnanlegu magni.
Grunnvatn og jarðhitavökvi • Lekt jarðlaga og úrkoma stjórna grunnvatnsbúskap tiltekinna svæða. • Hér er úrkoma og lekt víðast hagstæð fyrir grunnvatnsmyndun. Grunnvatn er upprunalega regnvatn sem lekur ofan í jarðlög. • Vatnið í jarðhitavökvanum er grunnvatn sem leitar ofan í berggrunninn og hitnar. Grunnvatn við yfirborð er ekki alltaf heitt þó það streymi djúpt í jarðlögum og hitni þar. • Eins berst grunnvatn mis djúpt. • Rennslið er mjög hægfara og til að mynda getur grunnvatn hér verið yfir 10.000 ár á leið til sjávar.
Leir og gufuhverir • Leir í leirhver eru í raun steindir sem orðið hafa til við efnahvörf milli jarðhitavökvans og bergsins sem hann leikur um. • Auk þess hjálpar það til að brennisteinssýra myndast við efnahvörf milli brennisteinsvetnis og grunnvatns rétt við grunnvatnsborð. • Sýran leysir bergið hratt upp. • Leirsteindir er fjölbreyttur hópur steinda. • Gufa í gufuhverum er vatnsgufa, oft um 110-130 °C sem berst upp um sprungur í jarðlögum hverasvæðanna.
Virkjun háhitans Borhola á Hellisheiði. Í fjarska sér til Esju; Kistufell, Móskarðs- Hnjúkar og Skálafell.
Umhverfisáhrif af virkjun háhitasvæða eru að verulegu leiti sjón- ræn og afturkræf en þó ekki að öllu leiti. Virkni í hverum minnkar og dynjandi hverir þagna.
Goshverir • Goshverir koma bæði fyrir á há- og lághitasvæðum. • Þeir myndast er jarðhitavökvi sýður á nokkurra tuga metra dýpi í vatnsæð. • Suðan verður er vatn fer yfir suðumark vegna þess að þrýstingur fellur er vökvinn nálgast yfirborð.