330 likes | 541 Views
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og ný hugmyndafræði. Fatlað fólk á tímamótum. Eru mannréttindi faltaðs fólks virt? Helga Baldvinsd. Bjargardóttir, þroskaþjálfi, lögfræðingur og MA nemi í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands. Hugmyndafræðilegur grunnur.
E N D
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og ný hugmyndafræði Fatlað fólk á tímamótum. Eru mannréttindi faltaðs fólks virt? Helga Baldvinsd. Bjargardóttir, þroskaþjálfi, lögfræðingur og MA nemi í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands
Hugmyndafræðilegur grunnur • Þróun frá ölmusu og góðgerðar sjónarhorni yfir í réttindamiðað sjónarhorn • Hvers vegna hafa fyrri mannréttindasáttmálar ekki duga? • Ósýnileiki fatlaðs fólks • Viðfangsefni annarra • Félagsleg vandamál
Mannréttindasjónarhorn • Fjögur grundvallargildi mannréttinda: • 1) Mannleg reisn • 2) Sjálfræði, frelsi til að taka eigin ákvarðanir • 3) Jafnrétti • 4) Samstaða og félagslegur stuðningur
Mannleg reisn • Hornsteinn allra mannréttinda • Sérhver manneskja er óendanlega verðmæt • Virðing er ekki tengd notagildi • Brýtur gegn mannlegri reisn að útskúfa þá sem teljast öðruvísi og gera þá að samfélagslegu “vandamáli” • “Vandamál” fötlunar er staðsett hjá samfélaginu: • Skylda stjórnvalda til að uppræta hindranir
Sjálfræði • Gamlar hugmyndir um sjálfstæði • Tvö vandamál: • Tilhneiging til að láta fötlun jafngilda skort á hæfileikanum til að njóta sjálfræðis • Sjálfræði fatlaðs fólks ekki tekið alvarlega, vanrækt að gera fötluðu fólki kleift að nýta þennan hæfileika sinn.
Jafnrétti og fjölbreytileiki • Allir jafnir að virði óháð fjölbreytileika • Krafan um jöfn tækifæri: => Grípa þarf til aðgerða til að koma til móts við ólíkar þarfir fólks => Koma þarf á jafnréttislöggjöf sem bannar mismunun => Vinna þarf markvisst gegn fordómum og neikvæðum staðalímyndum => Skapa þarf samfélag án aðgreiningar sem virkjar og eflir vald einstaklingsins yfir eigin lífi
Samstaða: félagslegur stuðningur • Erum öll tengd órjúfanlegum böndum • Frelsi verður ekki til í tómarúmi, það krefst aðgerða til að gera það áþreifanlegt • Löggjöf ein og sér ekki nóg • Geta allir lært verkfræði? • Ef aðgengi og næg þjónusta eru til staðar • Félagsleg þjónustukerfi eiga ekki að leiða til ófrelsis og einangrunar • Markmiðið er full þátttaka fatlaðs fólks á öllum sviðum
Afhverju sérstakur sáttmáli? • Fatlað fólk á sama tilkall til allra mannréttinda sem áður hafa verið tryggð • Samt sem áður hefur það ekki haft sömu tækifæri og aðrir. • Álitið þiggjendur velferðarþjónustu frekar en einstaklingar sem eiga réttindi. • Sáttmálinn sýnir hvaða breytingar þarf að gera til að fatlað fólk hafi í raun sömu réttindi og aðrir.
Nýi sáttmálinn • Samþykktur frá allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 2006. • Ísland undirritaði þann 30. mars 2007. • Í dag hafa hafa 147 lönd undirritað sáttmálann og 98 þjóðir fullgilt hann. • Tók gildi sem mannréttindasattmáli 3. maí 2008
Markmið (1. grein) • Að fatlað fólk hafi í raun sömu mannréttindi og frelsi og aðrir. • Passa upp á að þessi réttindi og frelsi séu virt. • Auka virðingu fyrir fötluðu fólki sem manneskjur.
Skilgreining á fötlun (2. grein) • Fötlun er hugtak sem er breytingum háð • Fötlun verður til þegar: • 1) einstaklingar með skerðingar • 2) eiga í samspili við umhverfi og viðhorf • 3) sem hindra fulla og virka samfélags þátttöku þeirra til jafns á við aðra
Meginreglur (3. grein) • Virðing fyrir mannlegri reisn og sjálfræði • Bann við mismunun • Full og áhrifarík þáttaka • Virðing fyrir fjölbreytileika • Jöfn tækifæri • Aðgengi • Jafnrétti kynjanna • Virðing fyrir réttindum fatlaðra barna
Skilgreiningar (2. grein) • Mismunun: • Aðgreining, útilokun eða takmörkun af hvaða tagi sem er, sem kemur í veg fyrir að fatlað fólk njóti réttinda sinna • Eða þegar ekki er tekið tillit til fötlunar • T.d. Skortur á aðgengi eða þjónustu sem mætir þörfum allra
Skilgreiningar (2. grein) • Viðeigandi aðlögun: • Nauðsynlegar breytingar (lagfæringar) sem tryggja að fatlað fólk geti notið eða nýtt sér mannréttindi sín til jafns á við aðra • Skilyrði: • 1) Sérstakt tilvik • 2) Ekki meiri en eðlilegt getur talist • 3) Ekki of íþyngjandi • DÆMI: Lyftarapróf á 30 dögum í stað 5
Jafnrétti (5. grein) • Allir eru jafnir fyrir lögum • Mismunun vegna fötlunar á að banna með lögum • Fatlað fólk á rétt á viðeigandi aðlögun • Sértækar aðgerðir teljast ekki mismunun
Réttarstaða til jafns við aðra (12. grein) • Réttur til að fara með réttindi sín á öllum sviðum • Taka eigin ákvarðanir • Fara með fjármuni sína • Aðstoð! • Vilji og séróskir virtar • Laus við hagsmunaárekstra • Endurskoðað af sjálfstæðu og hlutlausu yfirvaldi
Frelsi frá misnotkun (15. og 16 grein) • Nauðsynlegar ráðstafnir til verndunar • Misnotkun í gróðaskyni • Ofbeldi • Misþyrmingar • Fræðsla og upplýsingar • Forvarnir • Hvernig koma skuli auga á ofbeldi • Hvernig beri að tilkynna • Stuðningur við þolendur ofbeldis
Sjálfstætt líf (19. grein) • Rétturinn til að velja og hafna: • Velja sér búsetustað. • Hvar og með hverjum. • Fjölbreytt þjónusta: • Heimaþjónusta. • Aðstoð við að taka þátt í samfélaginu. • Koma í veg fyrir einangrun. • Þjónusta fyrir almenning á að standa öllum til boða
Skoðanafrelsi (21.grein) • Réttur til að segja skoðanir sínar. • Réttur til að nota þá samskipta aðferð sem hentar hverjum og einum. • Aðgengi að upplýsingum sem eru fyrir alla: • Til dæmis á auðskildu máli. • Hvetja fjölmiðla og aðra sem veita upplýsingar til að gera þær aðgengilegar fyrir alla.
Virðing fyrir einkalífi (22. grein) • Enginn fatlaður einstaklingur skal, sæta því að einkalíf hans, fjölskyldulíf, heimilislíf, bréfaskipti eða samskipti af öðru tagi séu trufluð að geðþótta eða með ólögmætum hætti • Upplýsingar um persónulega hagi, heilsufar og endurhæfingu fatlaðs fólks skal farið með sem trúnaðarmál á sama hátt og gildir um aðra.
Fjölskyldulíf (23.grein) • Uppræta mismunun gagnvart fötluðu fólki í öllum málum sem lúta að hjónabandi, fjölskyldu, foreldrahlutverki og samböndum • Réttur til að eignast börn. • Fræðsla og stuðningur. • Réttur til að halda frjósemi sinni • Ekki má taka barn af foreldrum sínum eingöngu vegna fötlunar þeirra eða barnsins.
Menntun (24. grein) • Menntakerfi á öllum skólastigum án aðgreiningar • Menntun á að gera fötluðu fólki kleift að vera virkir þátttakendur í frjálsu þjóðfélagi • Tryggja að fatlað fólk sé ekki útilokað frá hinu almenna menntakerfi vegna fötlunar • Stuðningur í samræmi við þarfir. • Viðeigandi aðlögun. • Kennarar hafi sérþekkingu á fötlunum og sérkennslu aðferðum.
Heilsa (25. grein) • Besta þjónusta sem völ er á. • Þjónusta nálægt heimabyggð. • Greining og þjónusta sem uppfyllir þarfir allt frá barnsaldri. • Réttur til líf- og sjúkdómatrygginga. • Bannað að neita fötluðu fólki heilbrigðisþjónustu.
Vinna og starf (27. grein) • Lög sem banna mismunun • Vinnumarkaðurinn á að vera opinn öllum. • Vinnu umhverfi sem er sanngjarnt og hvetjandi. • Jöfn tækifæri og sömu laun fyrir sömu vinnu. • Ekki má þvinga fatlað fólk til að vinna. • Vernd stéttarfélaga. • Vernd gegn áreitni. • Viðeigandi aðlögun
Stjórnmál (29. grein) • Nota stjórnmálaleg réttindi sín. • Taka þátt í stjórnmálaumræðu: • Beint eða í gegnum talsmann • Réttur til að kjósa: • Velja eigin aðstoðarmann • Réttur til að bjóða sig fram. • Réttur til að stofna hagsmuna samtök og berjast fyrir rétti sínum.
Menning(30. grein) • Þátttaka í menningarlífi og aðgengi: • Sjónvarpsþættir, kvikmyndir og leikhús • Hvetja til þátttöku í íþróttum og tómstundum í skólum. • Hvetja til þátttöku í algengum íþróttagreinum • Veita stuðning eftir þörfum • Hafa aðgengi að stöðum þar sem íþróttir, menning og tómstundir fara fram.
Skuldbindingar (4. grein) • Samþykkja lög og reglur svo réttindin verði virk • Afnema lög, reglur, venjur og starfshætti sem fela í sér mismunun • Stefnumótun og áætlanagerð • Taka mið af réttindum fatlaðs fólks
Skuldbindingar (4. grein, framh.) • Samvinna við fatlað fólk og hagsmuna samtök • Auka meðvitund starfsmanna um réttindi fatlaðs fólks • Fyrirvari um efnahagsleg og félagsleg réttindi: • Eins og efni þess frekast leyfa • Ekki afsökun fyrir aðgerðarleysi
Vitundarvakning (8. grein) • Viðeigandi ráðstafanir • Auka virðingu fyrir réttindum og reisn • Vinna gegn fordómum og staðalímyndum • Efla vitund um framlag og færni • Leiðir: • Börn læri um réttindi fatlaðra • Fjölmiðlar gefi ímynd í samræmi við þessi markmið • Átaksverkefni um fræðslu
Aðgengi (9. grein) • Sjálfstætt líf og full þátttaka krefst: • Aðgengi að efnislega umhverfi og samgöngum • Aðgengi að upplýsingum og samskiptum • Aðstaða innandyra jafnt sem utan • Bein aðstoð og þjónusta milliliða • Internetið og aðrar nýjungar • Ryðja hindrunum úr vegi og setja reglur um lágmarkskröfur.
Yfirfærslan og umbætur • Umbætur að verða lagaleg skylda • Ný hugsun og ný nálgun varðandi hvernig fötlun er skilin og skilgreind • Fatlað fólk á að hafa frelsi og tækifæri til að velja • Samvinna helstu hagsmunaaðila • Nú er sögulegt tækifæri til umbóta • Gerum þetta saman og gerum þetta vel!
Helga Baldvins- og Bjargardóttir Rannsóknasetur í fötlunarfræðum Félagsvísindasvið Háskóli Íslands http://www.fotlunarfraedi.hi.is