270 likes | 560 Views
“Það skapar vellíðan að þurfa ekki að keppa við tímann” Áhrif skipulags á vellíðan barna í leikskóla. Sara Margrét Ólafsdóttir M.Ed . 9. n óvember 2013. Kynning á verkefni. Ástæða fyrir vali á viðfangsefni. Fræðilegur grunnur. Rannsóknin. Niðurstöður. Umræða/ályktun.
E N D
“Það skapar vellíðan að þurfa ekki að keppa við tímann”Áhrif skipulags á vellíðan barna í leikskóla. Sara Margrét Ólafsdóttir M.Ed. 9. nóvember 2013
Kynning á verkefni • Ástæða fyrir vali á viðfangsefni. • Fræðilegur grunnur. • Rannsóknin. • Niðurstöður. • Umræða/ályktun.
Ástæða fyrir vali á viðfangsefni • Reynsla mín í starfi sem leikskólakennari. • Ólíkar hugmyndir leikskólakennara á hversu mikið ætti að skipuleggja leikskólastarf. • Aðalnámskrá frá 2011.
Rannsóknarspurningar • Hvernig hefur skipulag leikskólanna áhrif á vellíðan barna? • Hvað hefur áhrif á hvernig skipulagi deildanna er háttað? • Hvernig er stuðlað að þátttöku barna í daglegu starfi? • Hvernig birtist vellíðan barnanna í leikskólastarfinu?
Fræðileg grunnur • Viðhorf til barna og bernsku (Anna Magnea Hreinsdóttir, 2008, 2012; Jóhanna Einarsdóttir, 2007, 2008a, 2012; Waller, 2009). • Síðtímahugmyndir um börn og nám (Dahlberg, Moss og Pence, 1999; Elkind, 1997; Jóhanna Einarsdóttir, 2008a). • Vellíðan barna (Bryndís Garðarsdóttir og Kristín Karlsdóttir, 2012: Carr, 2001; Kristín Karlsdóttir og Bryndís Garðarsdóttir, 2008; Waters, 2009). • Daglegt starf og skipulag í leikskóla (Gestwicki, 2011; Hrönn Pálmadóttir, 2004; Lewin-Benham, 2011; PramlingSamuelsson og Asplund Carlsson, 2008). • Leikur og nám (Csikszentmihalyi, 1990; Leavers, 1994; PramlingSamuelsson og Johansson, 2006).
Rannsóknin • Tilviksrannsókn • Þátttakendur • Gagnaöflun
Helstu niðurstöður Ólíkir starfshættir í Teigi og Brekku. • Í Teigi var skipulagið nákvæmt og dagurinn nokkuð oft brotinn upp. Skipulagið var fyrirfram ákveðið og sjaldan brugðið út af því. • Í Brekku var ákveðið skipulag, sem starfsfólkið fylgdi eftir, en börnin gátu gengið í þau viðfangsefni sem þau kusu helst.
Áhrifaþættir á skipulag deildanna • Viðhorf starfsfólks til barna og náms. • Efniviður, húsnæði og nánasta umhverfi. • Stefna leikskólanna. • Viðhorf utan veggja leikskólanna. • Aðalnámskrá leikskóla.
Viðhorf til barna og náms • Í Teigi fannst starfsfólki það þurfa að skipuleggja hvað börnin voru að fást við. • Í Brekku var börnunum treyst til að taka ákvarðanir og bera ábyrgð.
Efniviður, húsnæði og nánasta umhverfi • Í Teigi hafði nýting á húsnæði töluverð áhrif á skipulagið. • Í Brekku voru öll svæði leikskólans í boði yfir daginn, nema í hádeginu.
Stefna leikskólanna • Samkvæmt skólanámskrá Teigs byggir leikskólinn starf sitt hugmyndum Reggio Emilia en þær hugmyndir voru þó ekki leiðandi í skipulagningu starfsins á deildinni. • Á heimasíðu Brekku kemur fram að leikskólinn starfar eftir kenningu Csikszentmihalyisum flæði sem var ríkjandi í skipulagi leikskólans.
Viðhorf utan veggja leikskólanna • Hugmyndir um að ákveðnum þáttum væri sinnt í starfinu og að búa þyrfti börn undir nám í grunnskóla. • Efasemdir um að svo mikið frjálsræði væri gott fyrir börn eða að starfsfólkið væri ekki að gera neitt.
Aðalnámskrá leikskóla • Í Teigi var unnið að markmiðum með því að leggja upp með ákveðna þætti á tilteknum tímum. • Í Brekku var unnið að markmiðunum með því að bjóða upp á fjölbreytt viðfangsefni en börnin völdu í hverju þau tóku þátt.
Þátttaka barna í daglegu starfi • Í Teigi var starfinu yfirleitt að einhverju leyti stýrt af starfsfólki yfir daginn. Dagurinn var nokkuð oft brotinn upp og biðtími myndaðist. • Í Brekku tóku börnin ábyrgð og völdu leikfélaga, efnivið og svæði. Börnin skiptu um viðfangsefni á mismunandi tímum og því myndaðist sjaldan biðtími.
Vellíðan barna • Börnunum líður vel þegar þau eru örugg, glöð, afslöppuð og niðursokkin í leik. • Það skapar vellíðan að leika við vini sína. • Börnin eru fús að koma á morgnana og oft ekki tilbúin að fara heim í lok dags.
Umræða • Þátttaka barna og vellíðan • Öryggi • Einbeiting • Sjálfræði • Virkni • Sjálfsmynd og áhugi • Þarfir barna
Öryggi • Í Teigi voru börnin örugg að því leyti að þau vissu hvers var vænst af þeim og hvað var næst á dagskrá í skipulagi dagsins. • Í Brekku sýndu börnin sjálfstæði og voru örugg um hvaða reglur giltu. Þau sóttu sér þann efnivið sem þau þurftu og fóru með hann á milli svæða.
Einbeiting • Börnin í Teigi náðu oft ekki að gleyma sér í leik þar sem þau gátu átt von á því að hann yrði brotinn upp án fyrirvara . • Í Brekku voru börnin einbeitt og gleymdu stað og stund. • Ef áhugi barnsins á viðfangsefninu er til staðar kemur einbeitingin af sjálfu sér og barnið verður virkur þátttakandi.
Sjálfræði • Börnin í Teigi voru sjálfstæð innan þess ramma sem starfsfólkið skapaði. • Valskipulagið bauð upp á takmarkað sjálfræði. • Í Brekku var ýtt undir sjálfræði barna með því að þau báru ábyrgð á að velja viðfangsefni yfir daginn. • Frjáls aðgangur að leikefni.
Virkni • Í Teigi voru börnin virk innan þess ramma sem þeim var settur. • Dagurinn var nokkuð oft brotinn upp og biðtími myndaðist. • Börnin í Brekku voru virk í leik og starfi meirihluta dags. • Lítill sem enginn biðtími myndaðist.
Sjálfsmynd og áhugi • Í Teigi var unnið út frá áhuga barnanna í hópastarfi. • Í vali gátu börnin stundum valið viðfangsefni út frá áhuga sínum. • Börnin í Brekku völdu sér viðfangsefni út frá áhuga sínum meiri hluta dags. • Vinir vöktu áhuga á og kynntu ný viðfangsefni hver fyrir öðrum.
Þarfir barna • Í Teigi fóru öll börn eftir sama skipulagi þó þarfir þeirra væru ólíkar. • Í Brekku hafði starfsfólkið í huga að börn væru ólík og hafa mismunandi þarfir.
Það sem hafa ber í huga: • Vita hvað er í vændum en þurfa þó ekki að keppa við tímann. • Sjálfræði barna. • Áhugi barna. • Aðgangur að leikefni. • Ólíkar þarfir. • Samvinna og samskipti. • Skiptistundir og biðtími.
Takmarkanir og framtíðarsýn • Ein af takmörkunum rannsóknarinnar var sú að ég spurði ekki börnin álits um líðan þeirra í leikskólanum. • Næsta verkefni verður því að fá fram þeirra upplifun af leikskólastarfinu.