260 likes | 420 Views
Jafnrétti lífsskoðunarfélaga. Siðmennt, félag siðrænna húmanista er lífsskoðunarfélag sem óskar eftir breytingum á lögum til þess að njóta jafnræðis á við trúfélög í landinu. Tillögur Siðmenntar.
E N D
Jafnrétti lífsskoðunarfélaga • Siðmennt, félag siðrænna húmanista er lífsskoðunarfélag sem óskar eftir breytingum á lögum til þess að njóta jafnræðis á við trúfélög í landinu.
Tillögur Siðmenntar • Siðmennt, leggur til að samin verði sérstök lög um skráð lífsskoðunarfélög sem eru sambærileg við núgildandi lög um skráð trúfélög • Að auki leggjum við fyrir Allsherjarnefnd tillögur um að breytingar verði gerðar á lögum um sóknargjöld, (nr. 91 1987),
Staðan í dag • Samkvæmt núgildandi lögum frá 1999 eru aðeins trúfélög viðurkennd sem lífsskoðunarfélög • Með lífsskoðunarfélögum á ég hér við félög sem fjalla um siðferði og lífsskoðanir og sjá meðlimum fyrir félagslegum athöfnum eins og nafngift, fermingu, giftingu og greftrun.
Breyttir tímar • Í dag eru breyttar aðstæður og það eru ekki eingöngu trúfélög sem eru starfandi lífsskoðunarfélög á Íslandi. • Trúlausir einstaklingar um allan heim hafa í vaxandi mæli viljað sjá um þessar félagslegu athafnir sjálfir og hafa myndað lífsskoðunarfélög í þeim tilgangi.
IHEU • Stærst lífsskoðunarfélaga án trúar á æðri mátt er Félag siðrænna húmanista (International Humanist and Ethical Union) sem var stofnað árið 1952.
Mismunun vegna lífsskoðana • Við hjá Siðmennt teljum að íslenskum þegnum sé mismunað eftir því hvort þeir aðhyllast trú sem felur í sér hefðbundin átrúnað á yfirnáttúruleg fyrirbrygði eða hvort þeir aðhyllast lífsviðhorfi óháðu trúarsetningum.
Mismunun vegna lífsskoðana • Stjórnvöld styrkja eiginleg trúfélög beint meðal annars með innheimtu sóknargjalda á meðan lífsskoðunarfélög, sem þó vilja veita sömu þjónustu og eiginleg trúfélög, fá engan stuðning.
Mismunun vegna lífsskoðana • Eins og lögin um skráð trúfélög og sóknargjöld standa í dag telur Siðmennt því að hallað sé á trúfrelsi, lífsskoðunarfrelsi og jafnræði í íslensku samfélagi.
Sótt um skráningu sem trúfélag • Siðmennt, hefur í tvígang á síðastliðnum fjórum árum sótt um að vera skráð sem trúfélag og njóta þannig sömu þjónustu og réttinda sem trúfélög njóta hér á landi.
Réttindi trúfélaga • Þessi réttindi fela m.a. í sér að þeir félagar í Siðmennt sem standa utan trúfélaga og borga árlega svokölluð sóknargjöld til Háskóla Íslands geta látið upphæðina renna til Siðmenntar í staðinn (um 7200 krónur á ári).
Réttindi trúfélaga • Samkvæmt nýjustu tölum sem ég hef greiða þeir sem standa utan trúfélaga um 60 milljónir á ári til Háskóla Íslands umfram það sem aðrir þurfa að greiða til sömu stofnunnar.
Trúfélag eða lífsskoðunarfélag? • Samkvæmt núgildandi lögum er aðeins hægt að láta svokölluð sóknargjöld renna til skráðra trúfélaga en hvergi er kveðið á um rétt einstaklinga til að láta þessa upphæð renna til lífsskoðunarfélaga.
Trúfélag eða lífsskoðunarfélag? • Þó að Siðmennt sé lífsskoðunarfélag en ekki trúfélag í hefðbundinni skilgreiningu þessara orða þá taldi stjórn Siðmenntar hér áður það reynandi að fá félagið skráð sem trúfélag, enda höfum við talið að mikið óréttlæti felist í núverandi fyrirkomulagi.
Lögfræðiálit • Eftir að ljóst varð að seinni umsókn okkar um skráningu sem trúfélag hafði verið hafnað ákvað stjórn Siðmenntar að leita álits lögfræðings á stöðu Siðmenntar og lögunum um skráð trúfélög.
Álitsgerð lögfræðings • Lögfræðingur Siðmenntar, Oddný Mjöll Arnardóttir hdl • Lög um skráð trúfélög (nr. 108/1999) taka einungis til lífsskoðunarfélaga sem byggja á trúarlegum grunni.
Álitsgerð lögfræðings • “Það er niðurstaða undirritaðrar að í ljósi framangreinds séu Siðmennt og “eiginleg trúfélög” í sambærilegri aðstöðu og eigi því lagalega kröfu til þess að njóta sambærilegrar meðferðar”
Álitsgerð lögfræðings • Annað mikilvægt atriði sem kemur fram í álitsgerð lögfræðingsins er að í trúfrelsiskafla stjórnarskrár Íslands er einnig sneitt framhjá öðrum lífsskoðunum en trúarlegum og segir m.a. í álitsgerðinni:
Álitsgerð lögfræðings • “Vernd íslensku stjórnarskrárinnar er samkvæmt því í raun lakari en vernd mannréttindasáttmálanna og er beinlínis kveðið á um mismunandi meðferð trúarlegra lífsskoðana og annarra lífsskoðana í henni.“
Álitsgerð lögfræðings • “Það er álit undirritaðrar að það veki áleitnar spurningar um þörf á endurskoðun á 63. gr. stjórnarskrárinnar og hvort ekki sé rétt að svara kalli Sameinuðu þjóðanna um að ríki heims tryggi að stjórnskipun þeirra og lög veiti virka og jafna vernd hugsana-, samvisku-, trúar- og sannfæringarfrelsis.”
Erindi til stjórnarskrárnefndar • Það er í höndum stjórnarskránefndar, sem nú er að störfum, að breyta umræddum greinum stjórnarskrárinnar og hefur Siðmennt þegar sent nefndinni erindi þessa efnis.
Fyrirmynd frá Noregi • Í Noregi hafa lífsskoðunarfélög eins og Siðmennt notið sömu réttinda og hefðbundin trúfélög. • Norsku systursamtökum Siðmenntar, Human-Etisk Forbund fengu viðurkenningu sem trúfélag af norskum stjórnvöldum árið 1981 (þar sem þá voru ekki til sérstök lög um lífsskoðunarfélög)
Fordæmi Norðmanna • Skömmu eftir 1981 var lögunum í Noregi breytt þannig að sóknargjöld í Noregi renna nú til lífsskoðunarfélaga, auk trúfélaga. • Í HEF eru nú um 65 þúsund manns og eru margir af helstu framámönnum og fræðimönnum Noregs í því.
Jafnrétti í íslenskum lögum • Við viljum því með þessum fundi óska eftir því að allsherjarnefnd beiti sér fyrir því að lögum verði breytt í þá veru að staða ólíkra lífsskoðana verði jöfnuð.
Framkvæmd / útfærsla • Annars vegar með því að breyta lögum um skráð trúfélög þannig að þau tryggi rétt allra lífsskoðunarfélaga • Hins vegar með því að setja sérstök lög um stöðu lífsskoðunarfélaga eins og gert var í Noregi.
Að lokum • Það er einlæg von okkar að þessi fundur og meðfylgjandi tillögur verði til þess að íslenskum lögum verði breytt í átt til jafnræðis lífsskoðana. • Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi
Ítarefni • Meðfylgjandi eru eftirtalin gögn: 1. Álit lögfræðings Siðmenntar dagssett 09/06/2005. 2. Tillaga að lögum um skráð lífsskoðunafélög. 3. Tillaga að breytingum á lögum um sóknargjöld. 4. Norsk lög um trú- og lífsskoðunarfélög (LOV 1981-06-12 nr 64: Lov om tilskott til livssynssamfunn og Forskrift om tilskot til livssynssamfunn). 5. Lausleg þýðing á norsku lögunum. • Nánari upplýsingar á vef Siðmenntar: www.sidmennt.is