110 likes | 242 Views
Samvinna lögreglu og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga Stefán Eiríksson, lögreglustjóri 13. október 2010. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu. Yfirlit. Meginefni erindis: Samspil og samskipti heilbrigðiseftirlits í sveitarfélögum og lögreglu
E N D
Samvinna lögreglu og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga Stefán Eiríksson, lögreglustjóri 13. október 2010 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Yfirlit • Meginefni erindis: Samspil og samskipti heilbrigðiseftirlits í sveitarfélögum og lögreglu • Farið yfir hlutverk heilbrigðisnefnda og hlutverk lögreglu • Aðkoma lögreglu að starfi heilbrigðiseftirlits með tvennum hætti: • Aðstoðarhlutverk • Rannsóknarhlutverk • Dæmi um málaflokka og úrlausnarefni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Skipulag heilbrigðiseftirlits í sveitarfélögum • Fjallað um skipulag heilbrigðiseftirlits í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 • Þar má meðal annars sjá hvernig landinu er skipt í eftirlitssvæði – þrjú eftirlitssvæði sem falla undir starfssvæði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu • Hlutverk heilbrigðisnefnda tilgreint í 13. gr. laganna: • Framfylgja lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir • Vinna að bættu heilbrigðiseftirliti á sínu svæði • Annast fræðslu fyrir almenning • Efla samvinnu við önnur yfirvöld og aðila sem vinna að þessu málum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Hlutverk og verkefni lögreglu tilgreint í 1. gr. lögreglulaga • Öryggishlutverkið – gæta almannaöryggis, tryggja réttaröryggi o.fl. • Forvarnahlutverkið – stemma stigu við afbrotum • Rannsóknarhlutverkið – vinna að uppljóstrun brota, stöðva ólögmæta háttsemi o.fl. • Þjónustu- og hjálparhlutverkið – greiða götu fólks og aðstoða þegar hætta steðjar að • Aðstoðarhlutverkið – veita yfirvöldum vernd eða aðstoða við framkvæmd starfa sinna • Samstarfshlutverkið – starfa í samvinnu við önnur stjórnvöld og stofnanir sem hafa með höndum verkefni sem tengjast starfssviði lögreglu • Önnur verkefni – allt sem ótalið er Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Úrræði heilbrigðiseftirlits við framkvæmd starfa sinna • Valdsvið og þvingunarúrræði heilbrigðisnefnda og heilbrigðisfulltrúa tilgreind í VI. kafla laga um hollustuhætti og mengunarvarnir • Heimildir til að veita áminningu, frest til úrbóta, leggja á dagsektir, til að stöðva eða takmarka starfsemi og til að framkvæma úrbætur á kostnað hlutaðeigandi • Heimilt að leita aðstoðar lögreglu ef með þarf Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Aðkoma lögreglu að málum á verksviði heilbrigðisnefnda • Aðkoma lögreglu í megindráttum með tvennum hætti: • Aðstoðarhlutverk skv. lögreglulögum og lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir • Rannsóknarhlutverk – rannsókn refsiverðra brota sem heilbrigðisnefndir eða heilbrigðisfulltrúi beina til lögreglu með formlegum hætti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Aðstoðarhlutverk lögreglu • Mælt fyrir um þetta í lögreglulögum og lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir • Hvað er um að ræða? • Aðstoð við lokanir og stöðvun starfsemi • Aðstoð við að fjarlægja hluti eða dýr • Aðstoða við að framfylgja öðrum ákvörðunum sem teknar eru og kalla á aðstoð eða valdbeitingu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Rannsóknarhlutverk lögreglu • Lögregla annast rannsóknir brota, þ.e. brota á lögum þar sem refsing liggur við • Fjölmörg lög og reglugerðir sem falla undir eftirlitssvið heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga og refsiákvæði í þeim flestum • Hvernig skal málum komið til lögreglu þar sem grunur hefur vaknað um refsiverða háttsemi? • Ekki með einfaldri tilkynningu um að hér sé eitthvað grunssamlegt á ferð • Með rökstuddri kæru hins sérhæfða eftirlitsaðila, þ.e. heilbrigðisnefndar eða heilbrigðisfulltrúa Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Nánar um rannsóknarhlutverk lögreglu og aðkomu hins sérhæfða eftirlitsaðila • Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga flokkast sem sérhæfður eftirlitsaðili á tilteknu sviði. Hvað felst í því? • Mikilvægur skilgreiningar- og túlkunaraðili um gildissvið reglna og framkvæmd • Sá aðili sem hefur heildaryfirsýn yfir málaflokkinn og er því í lykilaðstöðu til að gæta að grundvallarsjónarmiðum eins og jafnræðisreglu • Mikilvægur skilgreiningar- og túlkunaraðili um þá háttsemi/athafnaleysi sem um ræðir og hvaða lagaákvæði sé verið að brjóta Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Nánar um rannsóknarhlutverk lögreglu • Kærur til lögreglu þurfa að vera skýrar og nákvæmar um öll framangreind atriði, þar á meðal þarf að skilgreina nákvæmlega háttsemina og brot á hvaða lögum um sé að ræða • Lögreglan hefur viðamikla reynslu af samspili af þessu tagi og samskiptum við sérhæfða eftirlitsaðila á ýmsum sviðum. Dæmi: Landhelgisgæslan, Fjármálaeftirlitið, Innheimtustofnun sveitarfélaga, Skattrannsóknarstjóri, Samkeppniseftirlitið o.m.fl. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Dæmi um samstarf á ákveðnum sviðum - dýramálefni • Munur á úrræðum eftir því hvort um er að ræða brot á reglum um dýravernd eða dýrahald • Dýraverndarlög geyma skýr úrræði og skýrar heimildir fyrir eftirlitsaðila og lögreglu ef grunur vaknar um brot á lögunum – sjá t.d. 18. gr. dýraverndarlaga • Dýrahald fer á hinn bóginn eftir samþykktum í hverju sveitarfélagi – sjá 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir – aðkoma lögreglu fyrst og fremst aðstoðarhlutverk Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu