170 likes | 354 Views
Fjölmenningarlegur skóli 1. Menningarlegur margbreytileiki í skólum: Straumar og stefnur 2. Foreldrasamstarf og samskipti 3. Viðhorf kennarans. Hanna Ragnarsdóttir. Rammar laga og reglna um íslenskt skólakerfi. Mannréttindi Bann við mismunun Krafa um frelsi og umburðarlyndi
E N D
Fjölmenningarlegur skóli1. Menningarlegur margbreytileiki í skólum: Straumar og stefnur2. Foreldrasamstarf og samskipti3. Viðhorf kennarans Hanna Ragnarsdóttir Hanna Ragnarsdóttir lektor KHÍ okt. 2006 hannar@khi.is
Rammar laga og reglna um íslenskt skólakerfi • Mannréttindi • Bann við mismunun • Krafa um frelsi og umburðarlyndi Grundvöllur t.d. í Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, Lögum um mannréttindasáttmála Evrópu, Barnasáttmála SÞ, lögum um grunnskóla og Aðalnámskrá grunnskóla Hanna Ragnarsdóttir lektor KHÍ okt. 2006 hannar@khi.is
Hvers vegna fjölmenningarlegir skólar? • Algengar hugmyndir: “Af hverju látum við börnin ekki bara vera? Börn vita ekkert um fordóma og staðalmyndir. Þau taka ekki eftir litarhætti fólks. Ef við látum þau í friði og leyfum þeim að leika saman, verður allt í lagi. Vinátta þróast auðveldlega milli alls konar barna”. Rannsóknir sýna að raunveruleikinn er annar. Hanna Ragnarsdóttir lektor KHÍ okt. 2006 hannar@khi.is
1. Menningarlegur margbreytileiki í skólum Straumar og stefnur Hanna Ragnarsdóttir lektor KHÍ okt. 2006 hannar@khi.is
Fjölmenningarleg menntun • Grundvallaratriði: • Áhersla á samkennd, samstöðu, virðingu og umburðarlyndi • Markvisst unnið gegn mismunun og fordómum • Gagnkvæm fræðsla fólks af mismunandi þjóðerni, fólks af mismunandi menningarlegum og trúarlegum uppruna: Allir læra af öllum • Ensk heiti, t.d. Multicultural education, Intercultural education, Transcultural education, Transnational education Hanna Ragnarsdóttir lektor KHÍ okt. 2006 hannar@khi.is
Nám/námskrá gegn mismunun • Ensk heiti: t.d. • Anti-discriminatory teaching • Anti-discriminatory practice • Anti-bias curriculum • Áhersla á • Sterka sjálfsmynd • Eflingu • Jákvæð samskipti • Gagnrýna hugsun um staðalmyndir og fordóma • Samstöðu gegn hvers konar mismunun Hanna Ragnarsdóttir lektor KHÍ okt. 2006 hannar@khi.is
Hnattræn menntun (global education) og þegnskaparmenntun (citizenship education) • Áherslur: • Mannréttindi • Ábyrgð í samfélaginu og í hnattrænu samhengi (alþjóðlega) • Réttlæti • Friður og lausn átaka • Samstaða og jöfnuður í samfélaginu og í alþjóðasamfélaginu • Virðing fyrir ólíkum skoðunum • Sjálfbær þróun • Þegnskaparmenntun • Sammannleg gildi Hanna Ragnarsdóttir lektor KHÍ okt. 2006 hannar@khi.is
Kennslufræði í fjölmenningarlegum skólum: Algengar áherslur • Aldursblandaðir hópar – samvinna, virðing • Getublandaðir hópar – umburðarlyndi, virðing • Samvinnunám – mikilvægi allra, bætt staða, samvinna • Fjölgreindakennsla – styrkleikar allra metnir og nýttir • Einstaklingsmiðað nám – nám lagað að þörfum hvers nemanda • Samþætting námsgreina • Námið fært út úr skólastofunni – vettvangsnám, rannsóknarnám, t.d. könnunaraðferð • Samfélagstengt nám – samvinna heimila, skóla og samfélags, svo sem atvinnulífs og þjónusta við samfélagið • Nemendalýðræði – virk þátttaka nemenda í mótun skólastarfs Hanna Ragnarsdóttir lektor KHÍ okt. 2006 hannar@khi.is
Umhverfi og efniviður í fjölmenningarlegum skólum • Áhersla á að fjölbreytileiki mannlífsins endurspeglist í umhverfinu: • Sýnilegt umhverfi – námsefni, myndir og teikningar á veggjum • Leikföng og annað efni – t.d. bækur, efniviður fyrir leikræna tjáningu, tungumál, tónlist, litir, pappír, brúður, pússluspil, kubbar • Ekki talið nóg að hafa eitt eintak af efnivið sem endurspeglar minnihlutahópana í samfélaginu: Fjölbreytileikinn þarf að vera eðlilegur hluti af skólastarfinu • Efniviður sem endurspeglar nútímann Hanna Ragnarsdóttir lektor KHÍ okt. 2006 hannar@khi.is
2. Foreldrasamstarf og samskipti í fjölmenningarlegum skólum Hanna Ragnarsdóttir lektor KHÍ okt. 2006 hannar@khi.is
Grunnur foreldrasamstarfs í fjölmenningarlegum skólum • Að kennarar stuðli að samræðu heimila og skóla • taki tillit til þess sem foreldrar óska eða vænta fyrir börnin sín • kynni sér ólíkan uppruna foreldra eða fjölskyldna • kynni sér menningarleg gildi og markmið sem foreldrar hafa fyrir börn sín • kynni sér væntingar foreldra er varða nám barna þeirra • kynni sér hugmyndir foreldra um uppeldi og nám Hanna Ragnarsdóttir lektor KHÍ okt. 2006 hannar@khi.is
Dæmi um foreldrasamstarf • Að hjálpa til – Foreldrar koma í heimsókn, kynnast umhverfinu og aðstoða. Lítil ábyrgð, en góð hjálp • Að nota móðurmál – Foreldar færa móðurmál barnsins inn í skólann • Að taka virkan þátt í þróun skólastarfs – Staða foreldra styrkist, samvinna við skólann eykst • Að sýna hæfileika og störf – Foreldrar eru auðlind sem geta auðgað starfið • Að vinna með menningarþætti – Foreldrar fræða um menningu sína og trúarbrögð á ýmsan hátt • Mikilvægt er að efla þátttöku foreldra í skólastarfi Hanna Ragnarsdóttir lektor KHÍ okt. 2006 hannar@khi.is
Ólík menning, trúarbrögð og samskipti • Menningarmunur og munur á trúarlegri afstöðu fólks: • Fjölbreytni innan menningar- og trúarhópa er að mörgu leyti meiri en fjölbreytni milli menningar- og trúarhópa • Samt sem áður er mikilvægt að þekkja til menningar- og trúarlegs bakgrunns viðkomandi • Mikilvægt: Samskipti eiga sér fyrst og fremst stað milli einstaklinga innan viðkomandi hópa, ekki hópanna í heild Hanna Ragnarsdóttir lektor KHÍ okt. 2006 hannar@khi.is
Trúarbrögð – meira en trú á guð eða guði • Sex birtingarform trúarbragða • Trúarkenningar, trúaratriði • Mýtur, upprunasögur, goðsagnir • Siðakerfi, hegðunarreglur • Helgisiðir, trúarsiðir • Trúarleg reynsla • Samfélag manna Hanna Ragnarsdóttir lektor KHÍ okt. 2006 hannar@khi.is
3. Viðhorf kennara til margbreytileikans og áhrif þeirra • Kennarar hafa valdamikla stöðu gagnvart börnum • Kennarar þurfa stöðugt að skoða eigin viðhorf og meta hvernig þau berast til barnanna • Fordómar og staðalmyndir eru helstu óvinir kennara og barna í fjölmenningarlegum skólum • Gagnrýnin hugsun og samræður kennara og barna geta unnið gegn því að fordómar og staðalmyndir festist í sessi Hanna Ragnarsdóttir lektor KHÍ okt. 2006 hannar@khi.is
Fordómar og staðalmyndir • Fordómar(prejudice) eru viðhorf eða afstaða, yfirleitt neikvæð og byggð á ónægri þekkingu á málefni eða manneskju og yfirleitt tengd sterkum tilfinningum • Staðalmyndir(stereotypes) eru einfaldaðar lýsingar á vissum menningareinkennum hópa • Með staðalmyndum er fólk flokkað og þegar staðalmynd verður til, gerir hún ráð fyrir að allir í tilteknum flokki fólks hafi viss einkenni Hanna Ragnarsdóttir lektor KHÍ okt. 2006 hannar@khi.is
Viðhorf kennara: Til umhugsunar • Er menningarlegur margbreytileiki ógnun eða vandamál í skólastarfi? eða • Er menningarlegur margbreytileiki ögrandi og skemmtilegt viðfangsefni sem gefur ýmsa möguleika á nýbreytni í skólastarfi? Hanna Ragnarsdóttir lektor KHÍ okt. 2006 hannar@khi.is