1 / 38

Virðing eða vantrú: Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Virðing eða vantrú: Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir. Sagt frá rannsókn á hegðun nemenda í grunnskólum Reykjavíkur skólaárið 2005-2006. Rannsóknarskýrsla. Ingvar Sigurgeirsson og Ingibjörg Kaldalóns „Gullkista við enda regnbogans“ Rannsókn á hegðunarvanda í grunnskólum Reykjavíkur

gaye
Download Presentation

Virðing eða vantrú: Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Virðing eða vantrú: Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir Sagt frá rannsókn á hegðun nemenda í grunnskólum Reykjavíkur skólaárið 2005-2006

  2. Rannsóknarskýrsla Ingvar Sigurgeirsson og Ingibjörg Kaldalóns „Gullkista við enda regnbogans“ Rannsókn á hegðunarvanda í grunnskólum Reykjavíkur skólaárið 2005–2006 Skólinn okkarer gullkistavið enda regnbogansVið vinnum samanmeð bros á vörþá blómstrar vináttan(Úr skólasöng Víkurskóla)

  3. Efni – eftir því sem tíminn leyfir • Um rannsóknina • Nokkrar meginniðurstöður • Umfang • Munur eftir skólum ... kynjum ... aldursstigum • Nokkur einkenni skóla þar sem ekki þurfti að glíma við agavanda • Um kennsluhætti og hegðun • Ályktanir og tillögur

  4. Yfirlit um þau gögn sem aflað var • Megingögn: • Viðtöl við rýnihópa í 35 skólum (alls 40 viðtöl) skólaárið 2005–2006 (alls 233 viðmælendur) • Spurningalisti (208 svör) • Önnur gögn • Viðtöl við starfsfólk tveggja sérkennslustofnana, tveggja þjónustumiðstöðva, starfsmann Fardeildar í Borgarhluta 4 og fulltrúa frá Menntasviði • Viðbótarupplýsingar frá skólunum, skólareglur, reglur um meðferð agamála, lýsingar á úrræðum, lög, reglugerðir, skýrslur, minnisblöð

  5. Viðmælendur í rýnihópum

  6. Spurningar • Hvernig lýsið þið hegðun og framkomu nemenda? • Eru hegðunarvandkvæði í skólanum og hvernig lýsa þau sér? Hversu þungt brenna þau á ykkur? • Hversu margir nemendur koma við sögu? • Hverjar eru helstu orsakir og áhrifavaldar hegðunarvanda? • Hvernig er tekið á hegðunarvandkvæðum í skólanum? Hvaða aðferðum hefur helst verið beitt? Hvernig hafa þessar aðferðir gefist? • Hvernig gengur samstarf við foreldra? • Hvaðan fá starfsmenn ráðgjöf eða stuðning? • Hvað vantar helst til að starfsfólk skóla nái tökum á hegðunarmálum? Hugmyndir til úrbóta? 

  7. Fyrirvarar • Viðtöl – spurningalistar • Fáar vettvangsathuganir • Hvorki var rætt við nemendur né foreldra • Skólastjórar völdu viðmælendur • Annar aðalstjórnenda var viðstaddur flest viðtöl • Hvenær á barn (hópur) í hegðunarvanda? • Hegðunarvandi sem vandi starfsmanns?

  8. Á móti má segja ... • Mjög innihaldsríkar samræður • Aflað var ítarlegra viðbótarupplýsinga af ýmsu tagi • Farið var í alla (almenna) skóla í Reykjavík • fjölbreyttar aðstæður – hver skóli er sérstakur! • Góð / a.m.k. sæmileg heildarmynd • Rannsóknin ætti að skapa forsendur til að fylgjast með þróun þessara mála • Umræðurgrundvöllur

  9. Einnig þetta • Hegðunarvandamál eru ákaflega snúin, viðkvæm og vandmeðfarin • Nöfn skóla koma ekki fram nema í undantekningartilvikum • Niðurstöður benda til mikillar hreyfingar ... breytileika ... sveiflna ... • Skiptir miklu varðandi ákvarðanir um fyrirkomulag ráðgjafar- og sérfræðiþjónustu

  10. Nokkrar meginniðurstöður • Mikill meirihluti nemenda (89%) á yfirleitt góð samskipti við félaga og starfsfólk • Mikill munur á umfangi mála eftir skólum, kynjum, aldursstigum (?) • Meirihluti viðmælenda telur að agavandi sé vaxandi!? • Erfiðustu málin eru að sliga starfsfólk ... úrræðaleysi ... árekstrar við önnur kerfi

  11. Þreyta og bið ... … allar greiningar og annað eða beiðnir um greiningar fara í gegnum nemendaverndarráðið. Og þar er mættur sálfræðingur skólans sem … tekur við greiningunum og svo fer ákveðinn tími í að fjalla um börnin … það pirraði mig svolítið í fyrra … að þetta bar engan árangur. Við vorum alltaf að tala um sömu börnin … og í einhverju ergelsi mínu því ég er fundaritari taldi ég hve oft ákveðin tvö börn hefðu verið nefnd þennan veturinn á nemendverndararáðsfundi. Þá var annað fimmtán sinnum og hitt sautján sinnum … þetta eru vikulegir fundir … og allir að tala um sömu hlutina vegna þess að það gerðist ekkert. Við erum að kalla á hjálp – við öskrum á hjálp. Og það eru einn og tveir og alveg upp í þrír aðilar frá … [þjónustumiðstöðinni] á fundi hjá okkur. Og það gerðist ekki neitt.

  12. Umfang hegðunarvandans

  13. Skólunum má skipta í þrjá meginflokka (?) • Lítil eða engin vandamál (sjö skólar) • Nokkur vandi, en starfsfólk telur sig almennt hafa tök á málum (21 skóli) • Mörg erfið mál sem hvíla þungt á starfsfólki (sjö skólar)

  14. Mér finnst ekki nein sérstök hegðunarvandamál. Mér finnst þetta ganga mjög vel. Kannski hávaði í matsalnum – það eina sem er þreytandi ... Samband kennara og nemenda er einstaklega gott ... nemendur flykkjast að manni í frímínútum til að spjalla ... Fara ekki að fyrirmælum … hleypa upp … taka alla einbeitingu kennarans … þessi áreiti jafnt og þétt… ógna öðrum nemendum … … leiðinlegar athugasemdir … hnoð og pot … svo er það líka skemmdarverk … reyna að eyðileggja … frammíköll ef kennarinn er að tala … almenn ókurteisi … dagleg vandamál … alla daga … í hverri kennslu-stund. Dæmi um ólíkt ástand

  15. Fyrst fleiri dæmi um vanda … eilíf truflun, áhugaleysi, viljaleysi … andfélagslegt atferli … virðingaleysi, hroki, kjaftbrúk … Það eru nemendur sem eru mjög ókurteisir við kennara og ókurteisir við alla. Þeir æða um hér ... þeir sparka hikstalaust í þá sem fyrir eru og þá skiptir engu máli hvort það er fullorðinn maður eða ekki. Þannig að .. fullorðið fólk sem vinnur hérna getur orðið fyrir barsmíðum.

  16. Lítill eða enginn vandi: Jákvæð viðhorf

  17. Jákvæð viðhorf: Lítill eða enginn vandi: Þetta byggist á viðhorfum ... Fyrir hvern er skólinn? Hann er fyrir nemendurna ... Við eigum að sníða okkur að þeirra þörfum. Það er ekki þannig að ef þau passa ekki „boxin“ að þau eigi að vera annars staðar. Það er bara ekki þannig ... Þeim er strokið réttsælis og sagt að þau séu frábær. Ekki endalaust verið að pikka í þau fyrir það sem þau geta ekki ... Það geta allir blómstrað einhvers staðar ... Hér er ríkjandi það viðhorf að velferð barnsins sé til grundvallar. Það er það viðhorf sem gerir þennan skóla að því sem hann er. Í þeim skólum þar sem agavandamál eru minnst eru viðhorf til foreldra mjög jákvæð og mikil áhersla lögð á öflugt foreldrasamstarf

  18. Jákvæð viðhorf • Gagnkvæm virðing. Við virðum þau og þau okkur. [Jákvæður skólabragur] helgast af því að þau finna að okkur þykir vænt um þau. Viljum þeim vel, berum virðingu fyrir þeim. Þá verður líka auðveldara að stýra þeim fyrir vikið. • Við sendum skýr skilaboð og reynum að vera fyrirmyndir. Áhersla á samvinnu og traust. Að þau finni sig örugg í skólanum. Við erum vinir þeirra. Við erum hérna til að vinna með þeim.

  19. Jákvæð viðhorf ... og ... • Hlustað eftir röddum nemenda • Nemendasamtöl (sbr. starfsmannasamtöl) • Bekkjarfundir • Nemendum falin ábyrgð • Hlýlegt og fallegt umhverfi • Söngur • Vinaverkefni • Samverustundir, samkomur, uppákomur

  20. ... og ... • Jafningjakennsla, „meistarakerfi“ • Unglingar aðstoða við gæslu eða kenna leiki (frímínútnavinir) • Öflug lífsleiknikennsla • Námsefni um samskipti • Blöndun innan árgangs eða aldurhópa • Samstaða kennara

  21. Dæmi: Öflug samstaða kennara Við höldum fundi tvisvar sinnum í viku – alltaf. Allt árið í kring. Og þar tökum við bara fyrir allt sem brennur á kennurum bæði sem við kemur nemendum og öllu því … sem hugsast getur. Þannig að við vitum nákvæmlega hvað er að gerast hjá öðrum kennurum og allir taka eins á öllum málum og við ákveðum nákvæmar leiðir… Sérgreinakennarar koma þarna inn líka þannig að það eru allir … meðvitaðir um vandamálin … það er alveg útilokað, til dæmis, að það gerist að einhver einn kennari lendi í einhverjum algjörum ógöngum sem enginn fréttir neitt af eða er kominn út í móa með málið. Kominn í einhverjar ógöngur með foreldra eða eitthvað slíkt … við bara gerum þetta í sameiningu. Gjörsamlega. Leggjum sameiginlegar línur sem við stöndum saman um algjörlega. Og ef að eitthvað gengur ekki upp þá ræðum við það og finnum einhverja aðra lausn. Þetta er team-vinna algjörlega.

  22. Hvernig byrjar skóladagurinn?(Athyglisverðar hliðarniðurstöður!) Það er eitt sem að mér hefur fundist breyta heilmiklu … einhvern tímann voru krakkar settir í röð fyrir utan skólann áður en skólinn byrjaði ... þar skapaðist ægilegur hiti oft og æsingur og læti … á morgnana þá opnum við húsið korteri áður en tíminn byrjar … nemendur mega fara inn … í kennslustofu og bíða eftir kennaranum. Þetta breytti alveg rosalega miklu. Þau spjalla saman, setjast inn í heimakrók, spila.

  23. Framganga stjórnenda • Taka á móti nemendum og foreldrum í upphafi dags • Fylgjast með í mötuneyti eða borða með nemendum • Hitta nemendur reglulega • Kenna öllum nemendum nokkra tíma í viku • Stýra reglulegum samkomum með nemendum • Halda reglulega fundi með nemendum • Koma við á öllum starfsstöðum daglega / vikulega • Einföld (og snjöll) hugmynd: • Aðstoðarskólastjóri kennir nokkra tíma í 1. bekk

  24. Til umhugsunar Krakkarnir hringja sjálfir heim ... í einstaka tilvikum reyna foreldrar að verja ... yfirleitt er þessu tekið vel ... hefur gríðarlega góð áhrif vegna þess að það eru foreldrarnir sem skamma krakkana en ekki við stjórnendurnir ... þannig að krakkarnir fara ekki út með neikvæða skoðun á okkur ... þau geta heldur ekki breytt sögunni ... þau segja sannleikann þegar þau eru fyrir framan okkur

  25. Munur eftir aldursstigum • Yngsta stigið: Erfiðari eða kotrosknari? • Sex ára stjórnunarreynsla! • Miðstigið: Oft erfiðustu málin – oftast drengir • Óþekkt, vesen og vandamál. Þar er fimmti til sjöundi bekkurinn algjörlega afgerandi. Það er þessi aldurshópur sem ekki er að höndla Ísland í dag … Þessi hópur er ekki að höndla tölvutæknina, msn-ið. sms-ið og … • Unglingastigið: Öðruvísi vandi

  26. ... öðruvísi vandi hjá unglingunum Það er allt of mikil vinna hjá unglingum utan skóla … skelfilegt hvað þau vinna mikið. Þau eru grútsyfjuð, áhugalaus, en hafa nóg af peningum. Kaupa kók og gotterí, endalaus velmegunarneysla … og viðhorfið er þannig að þau segja kennaranum að hann megi ekki hafa próf af því þau séu að vinna … tilætlunarsemin ótrúleg.

  27. Á þetta við rök að styðjast?

  28. Er þetta náttúrulögmál ...? • Yfirgnæfandi meirihluti erfiðra nemenda eru drengir (81%)

  29. Skýringar á vanda skólanna Hlutfall þeirra sem eru mjög eða frekar sammmála

  30. Kennsluhættir og hegðun • Hegðunarvandi var yfirleitt ekki tengdur kennsluháttum • Aðeins 16% svarenda taldi einhæfa kennsluhætti skýra hegðunarvanda • Áhugaverðar undantekningar

  31. Kennsluhættir og hegðun!? V1: Ekki spurning. V2: Ég sé gjörbreytingu á miðstigi. Breyttum kennsluháttum … Sp: … hvaða breytingar voru þið að gera á kennsluháttum? V2: Þá vorum við meira með einstaklingsmiðað nám. Tókum … verkefni þannig að hver og einn … gat unnið verkefnið út frá eigin forsendum. Og þá sáum við agamálin eins flugu út um gluggann … …Nei, ég segi það ekki alveg en við sáum mikinn mun.

  32. Efling list og verkgreina … við kennum meiri list og verkgreinar en nokkur annar skóli í borginni, … þegar við fórum yfir í það þá fannst mér agamál minnka til muna … þegar við fengum allar þessar stofur þá bara ákváðum við að demba okkur í að kenna svona mikið list og verkgreinar, mér finnst það skipta miklu máli. Það skiptir miklu máli fyrir þessa krakka ... Enda kemur það líka í ljós að … nemendur sem eiga við hegðunarerfiðleika að stríða … eru oft að plumma sig rosalega vel í svona greinum.

  33. Hér talar skólastjóri Hver segir að þessi skóladagur þurfi að vera jafn brjálæðislega vitlaus og hann er ... við erum búin að bæta við þremur árum ... Hvað gerðum við við þessi þrjú ár ... getum við ekki aðeins slakað á og sagt að yfir daginn hef ég tíma til að gera miklu meira en áður og ef ég bara brýt það upp með hreyfingu og léttleika ... þá líður öllum betur og við komum miklu meira í verk ...

  34. Og svo eru það greiningarnar ... Það var líka einn um daginn sem … sem stóð fyrir smá ólátum hérna út á skólalóð og þegar hann var spurður þá sagði hann:„Ég bara réði ekki við þetta - ég er í ofvirknisathyglisbrestsæði!“

  35. Viðhorf til ofvirkra barna Það er eins og það er svona með þessa ofvirku nemendur. Þeir skemma alltaf út frá sér.

  36. Ályktanir • Sveigjanleiki er meginatriði! • Hegðunarvandi er ekki nýr af nálinni! • Engin ástæða er til að vænta annars en að við getum náð enn betri tökum á þessum málum • Jákvæð viðhorf – trú á nemendum og virðing draga langt – svo langt að við hljótum að undrast það! • Lausnir á erfiðustu málunum verða að hafa forgang

  37. Tillögur • Áríðandi er að prófa ólíkar leiðir og miðla reynslu á milli skóla • Koma þarf á fót sérfræðingateymum (sbr. fardeild í Grafarvogi) • Huga þarf sérstaklega að samhengi starfs- og kennsluhátta og hegðunarvanda • Leita þarf nýrra leiða til að reikna sérkennsluþörf • Breyta þarf kennaramenntun • Huga þarf að forvörnum • Efla rannsóknir

  38. Að lokum ... Víkurskólasöngurinn Skólinn okkarer gullkistavið enda regnbogans.Við vinnum samanmeð bros á vör,þá blómstrar vináttan.Vináttan vex í Víkurskólavináttan vex þar.Vináttan vex í Víkurskólaþví við erum þar. Takk fyrir!

More Related