110 likes | 245 Views
Skólasóknarreglur. Reglur um mætingar, veikindi og aðrar fjarvistir. Skyldumæting í alla tíma. Nemendur skulu sækja allar kennslustundir og koma stundvíslega til kennslu.
E N D
Skólasóknarreglur Reglur um mætingar, veikindi og aðrar fjarvistir.
Skyldumæting í alla tíma • Nemendur skulu sækja allar kennslustundir og koma stundvíslega til kennslu. • Kennari merkir við í upphafi kennslustundar. Komi nemandi eftir það telst hann koma of seint. Nemandi telst fjarverandi úr kennslustund ef hann kemur eftir að 20 mínútur eru liðnar af kennslustundinni.
Fjarvistarstig • Sé nemandi fjarverandi hlýtur hann 1 fjarvistarstig fyrir hverja kennslustund. Komi nemandi of seint í kennslustund hlýtur hann ½ fjarvistarstig. • Ef nemandi er mikið fjarverandi telst hann hættur í áfanganum (fallinn á mætingu). ÍSL1024 hámark 10 fjarv.STÆ1026 og NÁT1036 hámark 15 fjarv.
Verklegir áfangar • Verklegir og próflausir áfangar geta haft aðrar viðmiðunarreglur. Nemendum er gerð grein fyrir þessu í kennsluáætlun áfangans. (Spyrja kennara og fylgjast vel með eigin mætingum.)
Veikindi • Veikindi reiknast ekki til frádráttar á fjarvistarstigum, þ.e. nemandi er skráður fjarverandi, en undir ákveðnum kringumstæðum er heimilt að taka tillit til þeirra,. • Það er algerlega á hendi nemenda að koma skýringum á fjarvistum (t.d. vottorðum vegna lengri veikinda) til kennslustjóra.
Eftirlit • Skólastjórnendur og umsjónarkennarar fylgjast með mætingum nemenda og áminna þá sem ekki mæta sem skyldi. • Skólinn mun jafnframt hafa samband við foreldra/forráðamenn þeirra nemenda sem ekki eru sjálfráða (16 og 17 ára) fari fjarvistir þeirra úr böndum. • Fari nemandi yfir hámark fjarvista mun kennari vísa honum úr áfanga og tilkynna það kennslustjóra.
Réttmætar fjarvistir • Nemandi sem fallinn er í áfanga á mætingu getur leitað til kennslustjóra telji hann sig hafa réttmætar ástæður fyrir fjarveru. Ef kennslustjóri tekur skýringar nemanda gildar getur hann, að höfðu samráði við kennara, heimilað nemanda áframhaldandi setu í áfanganum með ströngum skilyrðum.
Mjög fáar undanþágur • Undanþága frá þessum reglum er yfirleitt ekki veitt og þá einungis af skólameistara eða aðstoðarskólameistara.
Tilkynna fjarvistir • Forráðamenn nemenda eiga að hringja í skólann og tilkynna veikindi og aðrar óviðráðanlegar fjarvistir. Ef nemandi hefur aðsetur fjarri heimili má hann hringja sjálfur. • Segja frá nafni og umsjónarkennara og/eða braut og ástæðum fjarvista.
Umsjónarkennarar fylgjast með • Það er hlutverk umsjónaraðila að fylgjast með mætingum umsjónarnemenda sinna og áminna þá ef þær eru ekki sem skyldi. • Ef nemandi er yngri en 18 ára þá er það jafnframt hlutverk umsjónaraðila að hafa samband við heimili ef ástæða er til. • INNA sýnir fjarvistir og mætingar. Nemendur og kennarar hafa aðgang að Innu. Foreldrar nemenda undir 18 ára aldri geta fengið aðgang að INNU.
Nemendur bera ábyrgð! • Nemendur bera ábyrgð á eigin mætingu. Þeir geta fylgst með stöðu sinni í upplýsingakerfinu INNU og eiga að þekkja þær reglur sem gilda um skólasókn. • Þeir bera jafnframt ábyrgð á því að ganga frá sínum málum ef fjarvistir þeirra verða fleiri en heimilt er samkvæmt reglum skólans.