260 likes | 422 Views
Kynning á kjarasamningum þar sem samið var um launatöflu án aldursþrepa. Ásta Lára Leósdóttir. Í þessari kynningu verður stuðst við breytingar á kjarasamningi BHM Gildistími frá 1. febrúar 2005 til 30. apríl 2008. Hækkanir. Frá 1. febrúar 2005 3,25%
E N D
Kynning á kjarasamningumþar sem samið var um launatöflu án aldursþrepa Ásta Lára Leósdóttir
Í þessari kynningu verður stuðst við breytingar á kjarasamningi BHMGildistími frá 1. febrúar 2005 til 30. apríl 2008
Hækkanir • Frá 1. febrúar 2005 3,25% auk þess hækka launatöflur einstakra stéttarfélaga mismikið • Frá 1. janúar 2006 2,50%
1. maí 2006 • Ný launatafla tekur gildi. • Breyttir stofnanasamningar taka gildi. • Til að útfæra stofnanasamninga og koma starfsmönnum fyrir í nýju kerfi fá stofnanir 3,8%. • Miðað skal við að hver stofnun fái þetta fjármagn óskipt til ráðstöfunar. • Tryggt skal að enginn lækki í mánaðarlaunum fyrir dagvinnu við yfirfærslu í nýtt launakerfi.
1. maí 2007 • Stofnanir fá 2,6% til frekari þróunar og samræmingar stofnanasamninga. • Samstarfsnefnd hverrar stofnunar skal koma sér saman um samræmingu stofnanasamninga og þróun.
Áfangahækkanireftir gildistöku nýrrar launatöflu • 1. jan. 2007 2,25% • 1. jan. 2008 2,00%
Mæling á launaþróun • Samflot BHM, verk- og tæknifræðingar:Framkvæma skal mat á launaþróun hvers stéttarfélags á öllu tímabilinu og skal það eigi vera lægra en 15%.- verður framkvæmt í mars og október 2007.
Röðun starfa og mat álags • Við ákvörðun um röðun starfa skal fyrst og fremst meta þau verkefni og skyldur sem í starfinu felast. • Meta skal persónu- og tímabundna þætti sem fjallað er um í kaflanum um stofnanasamninga sem álag á launaflokka. • Meta má vægi álags til hækkunar um allt að 20% samanlagt af viðkomandi launaflokki í 2,5% bilum(8 álagsflokkar). • Þetta álag er háð endurmati. • Í stofnanasamningi skal kveðið á um hvort og með hvaða hætti álagið skiptist.
Röðun starfa og mat álags • Tímabundnir þættir geta verið breytilegir. • Forsendur álagsþátta skulu endurskoðaðar við breytingar á starfssviði starfsmanns eða eftir nánari útfærslu í stofnanasamningi.
Sérstök tímabundin umbun • Heimilt er að greiða sérstaka umbun umfram mánaðarlaun þó aldrei hærri fjárhæð en 30.000 kr. á mánuði. • Umbunin greiðist vegna sérstakra tímabundinna þátta sem ekki falla undir þá þætti sem reiknaðir eru sem álag á launaflokka og greiðist aldrei lengur en áhrif hinna tímabundnu þátta, sem réttlæta greiðslu hennar, vara. • Ákvörðun um greiðslu umbunar skal tekin af forstöðumanni og byggjast á skriflegum reglum sem hann hefur kynnt starfsmönnum.
Stofnanasamningur • Gera skal einn samning hjá hverri stofnun fyrir félögin sem eiga aðild að samningnum. • Stofnanasamning skal að jafnaði endurskoða á tveggja ára fresti. • Í samningnum skulu vera ákvæði um röðun starfa og hvaða þættir ráði röðun þeirra. • Einnig ákvæði um persónubundna og tímabundna þætti sem geta haft áhrif á laun.
Persónu- og tímabundnir þættir • Persónubundnir þættir eru t.d.: • Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi. • Starfsreynsla. • Tímabundnir þættir eru t.d.: • Viðbótarábyrgð, álag v. sérstakra verkefna. • Hæfni, sérstakur árangur og frammistaða.
Samstarfsnefndir • Skulu skipaðar fulltrúum frá hvorum aðila, þ.e. stéttarfélögum/starfsmönnum og stofnunum. • Aðildarfélög BHM hjá hverri stofnun skulu tilnefna einn fulltrúa hvert í samstarfsnefnd. Þessir fulltrúar velja sér allt að þrjá talsmenn og jafnmarga til vara. Stofnunin tilnefnir allt að þrjá fulltrúa og jafnmarga til vara.
Sáttanefndfjármálaráðuneytis og BHM • Skal skipuð sex fulltrúum, þremur frá hvorum aðila. • Tekur fyrir þau mál sem ekki næst samkomulag um í samstarfsnefnd skv. reglum þar um. • Stefnumarkandi mál. • Ákvarðanir nefndarinnar taka mið af fjárheimildum stofnana.
Sérstök atriði • Tímakaup í dagvinnu og yfirvinnu reiknast af launaflokki og álagsþáttum. • Persónuuppbót og orlofsuppbót. • Tímabil sumarorlofs er samræmt og verður frá 1. maí til 15. september frá og með árinu 2006.
Kynning á kjarasamningum þar sem samið var um launatöflu með aldursþrepum
Í þessari kynningu verður einkum stuðst við kjarasamning SFR - stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu Gildistími frá 1. febrúar 2005 til 30. apríl 2008
Áfangahækkanir • 1. febrúar 2005 3,25% • einstaka hópar munu hækka sérstaklega • einstaka launatöflur hækka meira • gildistími þeirra sem búnir eru að semja er ýmistfrá 1. febrúar eða 1. mars • 1. janúar 2006 2,50%
Helstu breytingar frá 1. maí 2006 • Skilgreiningar starfa í ramma eru felldar brott. • Ný launatafla án ramma með 45 launaflokkum og 6 þrepum, sbr. SFR, tekur gildi. • 1. þrep: yngri en 23 ára • 2. þrep: frá 23 ára aldri • 3. þrep: frá 25 ára aldri • 4. þrep: frá 27 ára aldri • 5. þrep: frá 30 ára aldri • 6. þrep: frá 35 ára aldri
Ný launatafla og þróun launakerfis • 1. maí 2006 tekur gildi ný launatafla. • Til að útfæra stofnanasamninga og koma starfsmönnum fyrir í nýju kerfi fá stofnanir almennt 2,4%. • Enginn skal lækka í mánaðarlaunum fyrir dagvinnu við yfirfærslu í nýja launatöflu.
Ný launatafla og þróun launakerfis • 1. maí 2007 fá stofnanir almennt 2% til styrkingar eða þróunar launakerfisins. • Það hlutfall sem samið er um til launaþróunar skal fara óskipt til stofnunar. • Semja skal um í samstarfsnefnd hverrar stofnunar hvernig það greinist.
Áfangahækkanireftir gildistöku nýrrar launatöflu • 1. jan. 2007 2,25% • 1. jan. 2008 2,00%
Sérstök tímabundin umbun • Heimilt er að greiða sérstaka umbun umfram mánaðarlaun þó aldrei hærri fjárhæð en 30.000 kr. á mánuði. • Umbunin greiðist vegna sérstakra tímabundinna þátta sem ekki eru sambærilegir ákvæðum stofnanasamnings og greiðist aldrei lengur en áhrif þeirra vara. • Ákvörðun um greiðslu umbunar skal tekin af forstöðumanni og byggjast á skriflegum reglum sem hann hefur kynnt starfsmönnum.
Stofnanaþáttur • 1. maí 2006 fellur niður skilgreining starfa í miðlægum kjarasamningi. • Í stofnanasamningi skal semja um grunnröðun starfa og hvaða þættir og/eða forsendur ráða röðun þeirra. • Starfslýsingar eru ein af forsendum röðunar starfa í launaflokka. • Persónubundnir þættir. • Tímabundnir þættir.
Aðrar breytingar • Tímakaup í dagvinnu er 0,615% af launaflokki og þrepi hvers starfsmanns. • Persónuuppbót og orlofsuppbót. • Tímabil sumarorlofs er samræmt og verður frá 1. maí til 15. september frá og með árinu 2006. • Fatapeningar. • Fræðslusjóðir. • Slysatryggingar. • Fjölskyldu- og styrktarsjóður. • Uppsagnarfrestur.