150 likes | 428 Views
Breytingar á búvörusamningum 2009. Aðdragandi. Fjárlög 2009, hækkun 5,7% frá 2008, áætluð skerðing 800 milljónir. Réttarstaða sterk, en í málaferlum er aldrei hægt að treysta á niðurstöðu Málaferli taka ca. 3 ár
E N D
Aðdragandi • Fjárlög 2009, hækkun 5,7% frá 2008, áætluð skerðing 800 milljónir. • Réttarstaða sterk, en í málaferlum er aldrei hægt að treysta á niðurstöðu • Málaferli taka ca. 3 ár • Niðurskurður fjárlaga 2010-2012, áframhaldandi niðurskurður eða uppsögn með forsendubresti samninga • Fást bætur?
Hvað er til ráða? • Samningarofi mótmælt • Ályktanir bændafunda og mótmæli búnaðarþings 2009 • Samningar enda 2012 og 2013, nýir samningar í miðri niðursveiflu • Samningaviðræður og tillaga BÍ, LK og LS að lausn
Hvað næst fram? • Samningar „aftur í gildi“ og koma aftur á traustu sambandi á milli viðsemjenda • Rekstarforsendur búanna • Atvinnulíf og afurðastöðvar • Tryggja fæðuframboð og gæta þess að framleiðsla stöðvist ekki
Hver er lausnin? • 2009 sauðfé 4,021 m. mjólk 5,425 m. • 2010 +2% s. 4,101 m. Mj. 5,534 m. • 2011 +2% auk helmings þeirra verðbóta sem á vantar, hámark þó 5% hækkun • 2012 Samningsfjárhæð samkvæmt gildandi ákvæðum, þó að hámarki 5% • 2013 Samningar að fullu í gildi, samkvæmt grunnvísitölum við gerð þeirra.
Framhaldið • Mjólkursamningur gildir nú til 31. des 2014 lengist um 28 mánuði • Sauðfjársamningur gildir nú til 31. des 2015 lengist um 24 mánuði • Sömu forsendur og ákvæði og eru í gildandi samningum
Mjólkursamningur • Stefnt að verðlagsárið verði almanaksárið • Næsta verðlagsár verið 16 mánuðir, 1. september 2009 – 31. desember 2010 • Fresta frekari tilfærslu frá beingreiðslum í „græn hólf“ um tvö ár • Beingreiðslur á framleiðslu því hærri • Þegar ákveðin verkefni halda áfram • Mögulegt að færa fjármuni milli verkefna
Forsendur bænda • Búvörulög verði styrkt og gildi þeirra umfram samkeppnislög virt • Almennra forsendna búvörumarkaðar verði gætt • Bændur starfi allir eftir sömu löggjöf, með sömu réttindum og skyldum
Bókun • Samningsaðilar vinni að könnun á skuldastöðu í samvinnu við banka og leitað úrlausna • Áherslur í landbúnaðarmálum til framtíðar verði til umræðu • Samningar áfram í gildi þó gildandi landbúnaðarstefna verði tekin til endurskoðunar
Hvað er framundan? • Fyrirhugaður niðurskurður ríkisútgjalda… • Þjóðarsátt, engin frekari ákvæði eða yfirlýsingar bænda um verðstöðvun á afurðaverði • Bændur eiga síðasta orðið í atkvæðagreiðslu • Búnaðarlagasamningur enn opinn
Ef bændur fella? • Þá er aftur komin óvissa… • Stjórnvöld skera niður • Bændur hefja málsókn • Langur ferill ekki örugg niðurstaða • Álit lögmanna um að samningurinn sé betri en málshöfðun • Frekari „þvinganir“ í tengslum við samninga á almennum vinnumarkaði
Gallar/kostir • Áhætta 2010 og 2011, engin „fallhlíf“, þó hægt að reyna samninga • Kostur að lengri samningstími getur nýst til traustari áætlana á næstu árum • Nýir samningar verða gerðir þegar þjóðarhagur vænkast • Hagur bænda og allra að hefja hér markvissa uppbyggingu
Samkomulag um breytingar á samningi um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu frá 10. maí 2004 • Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og fjármálaráðherra f.h. ríkisstjórnar Íslands og Bændasamtök Íslands hafa með vísan til 30. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum, og gr. 8.1 í samningi um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu frá 10. maí 2004, orðið sammála um eftirfarandi: BREYTINGU á samningi um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu frá 10. maí 2004. • Síðari málsliður greinar 2.4. verður svohljóðandi: „Þó mun verðlagsár samningsins miðast við almanaksár frá og með árinu 2010. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið skal í samráði við Bændasamtök Íslands ákveða nánar með hvaða hætti yfirfærslan á sér stað.“ • Árleg framlög samkvæmt 6. gr. samningsins fyrir árin 2009 til 2012 verða sem hér segir, sbr. V-lið ákvæðis til bráðabirgða í lögum nr. 99/1993, sbr. 2. gr. laga nr. 173/2008. • 2009: 5.425,0 m.kr. • 2010: Framlag hækkar um 2% frá árinu 2009 og verður 5.534,0 m.kr. • 2011: Framlag hækkar um 2% frá árinu 2010 en auk þess bætist við helmingur af því sem upp á vantar að upphæðin sé samkvæmt 6. grein samnings. Þó skal hækkun milli áranna í heild ekki vera meiri en 5%. • 2012: Fjárhæð skv. 6. grein samnings, en þó skal hækkun frá fyrra ári ekki vera meiri en 5%. • Samningsaðilar eru sammála um að framlengja samning þennan um 28 mánuði eða til ársloka 2014. Í töflu 1 bætast þá við 2 ár, 2013 og 2014. Fjárhæðir lækka um 1% á ári hvort ár, að teknu tilliti til uppfærslu samkvæmt vísitölu neysluverðs, sbr. ákvæði 6. gr. samningsins. • Við 6. gr. bætist nýr liður, 6.5., svohljóðandi: „Verði samkomulag með samningsaðilum er þeim heimilt að ákvarða tilfærslu fjárhæða milli einstakra liða í töflu 1.“ • Í stað orðanna „31. ágúst 2012“ í lið 9.1 kemur „31. desember 2014“. • Samningsaðilar eru sammála um að beita sér fyrir könnun á skuldastöðu mjólkurframleiðenda í samvinnu við viðskiptabanka í þeim tilgangi að leita lausna til að bæta stöðu greinarinnar í þeim fjármálaþrengingum sem þjóðin býr nú við. Þá eru samningsaðilar sammála um að hefja vinnu við endurskoðun á landbúnaðarstefnunni í þeim tilgangi að treysta stöðu landbúnaðarins og búa hann undir breytingar á komandi árum. • Reykjavík, 18. apríl 2009. - Af hálfu ríkisstjórnarinnar er samningur þessi undirritaður með fyrirvara um nauðsynlegar lagabreytingar. - Með fyrirvara um samþykki í atkvæðagreiðslu meðal bænda.