110 likes | 311 Views
Gena- og gagnas öfn (GEG1103). Fyrirlestrar 3 & 4 Kortlagning erfðagagna Gagnasöfn. Upprifjun: tengslagreining og kortlagning gena. Gen eru tengd ( linked ) ef þau hafa tilhneygingu til að erfast saman Genin eru á sama litningi
E N D
Gena- og gagnasöfn (GEG1103) Fyrirlestrar 3 & 4 Kortlagning erfðagagna Gagnasöfn
Upprifjun: tengslagreining og kortlagning gena • Gen eru tengd (linked) ef þau hafa tilhneygingu til að erfast saman • Genin eru á sama litningi • Því nær sem genin eru hvert öðru, þess tengdari eru þau (hættir síður til að aðskiljast við endurröðun (crossover, recombination)) • Getum notað samsætutíðni í afkomendum til að áætla staðsetningu gena á litningum – Genetic Mapping • centiMorgan (cM): hlutfall afkomenda þar sem endurröðun hefur átt sér stað milli tveggja markera (gena) • 1 cM samsvarar um 1.000 kB í mönnum, um 500 kB í bananaflugum. Fig. 1.1, bls. 5.
Kortlagning með frumulíffræðiaðferð (cytological mapping) • Litningum skipt í p- (stutta) og q- (langa) arma • Sum litarefni (s.s. quinacrín og Giemsa-litur) lita litninga þ.a. bönd sjást (Giemsa-litarefnið bindst við AT-rík svæði) • Bönd talin frá deilikorni til litningsenda • Dæmi: Hox genið í mönnum er á 7p15 (litningur 7, stutti armur, band 15) Mynd frá www.vivo.colostate.edu
Kortlagning við raðgreiningu (physical mapping) • Genamengi raðgreind í bútum (t.d. BAC-bútum) • Contig: stytting á contiguous sequence • Ýmsar leiðir til að raða saman contig-um – oft stuðst við genetísk og cýtólógísk kort
Samanburður á kortum • Samlitni (synteny): geymni (conservation) röðunar (order) gena á litningi eða litningshluta • Chromosome painting: Litningar úr einni frumugerð litaðir með FISH, brotnir upp og bútarnir látnir parast við litninga úr annarri frumugerð • Sjáum hvaða litningar / litningshlutar eru samsvarandi milli lífveranna • „Qick & dirty“ aðferð til grófrar kortlagningar á erfðamengjum • Gerir ekki greinarmun á paralógum og orþólógum Myndir 1.4 og 1.5
Gagnasöfn • Mikill fjöldi vefgátta í hin ýmsu genagagnasöfn til • Mest notað: NCBI (http://www.ncbi.nlm.nih.gov/) og ENSEMBL (http://www.ensembl.org/index.html)
Um raðasöfn • Heilt genóm eða genómískar genaraðir: • inniheldur öll gen + innraðir • mikið af upplýsingum um tjáningarstjórnun • mjög gagnlegt við skyldleikagreiningu • ESTs (expressed sequence tags): • fengið úr umritamengi inniheldur ekki innraðir • sýnir oftast (en ekki alltaf!!) rétta amínósýruröð • hentar við hönnun þreifara til að meta tjáningu • Prótín (úr Edman raðgreiningu eða MS/MS): • mjög gagnlegt í prótínstúdíum • galli: smáir gagnabankar
Fiska-genagögn- oft af mjög skornum skammti fyrir efnahagslega mikilvægar tegundir(horfir þó mjög til batnaðar)
http://www.ncbi.nlm.nih.gov/ Gefur aðgang að GenBank, Entrez, OMIM, PubMed, o.fl. http://www.ensembl.org/ Gögn og upplýsingar um genamengi dýra http://www.tigr.org/tdb/mdb/mdbcomplete.html Genamengi baktería http://www.genomesonline.org/ Yfirlit og linkar í mörg genamengjasöfn http://www.brenda.uni-koeln.de/index.php4 Gagnabanki um ensím og lífefnafræði http://www.genome.jp/kegg/ Kyoto Encyclopedia of Genes and Genomes http://www.ebi.uniprot.org Vefgátt fyrir ýmislegt tengt prótínum http://staden.sourceforge.net/ Staden Package http://www.mbio.ncsu.edu/BioEdit/bioedit.html BioEdit forritið til vinnslu raða http://www.expasy.org/ Forrit og gagnabankar fyrir prótínmengjagreiningu http://www.isrec.isb-sib.ch/java/dotlet/Dotlet.html Dotlet sjónrænt pörunarforrit http://www.ebi.ac.uk/clustalw/ ClustalW pörunarforritið http://bioweb.pasteur.fr/seqanal/interfaces/boxshade.html Boxshade - býr til myndræna uppsetningu á pöruðum röðum Nokkrar gagnlegar vefsíður Gagnasöfn Nokkur forrit