110 likes | 250 Views
Að efla útrásina enn frekar - tækifæri sjávarútvegsins. Örn Viðar Skúlason, starfandi forstjóri SÍF. Þróun á starfsemi SÍF. Upprunalegt hlutverk SÍF er útflutningur sjávarafurða og sala á erlendum mörkuðum.
E N D
Að efla útrásina enn frekar- tækifæri sjávarútvegsins Örn Viðar Skúlason, starfandi forstjóri SÍF
Þróun á starfsemi SÍF • Upprunalegt hlutverk SÍF er útflutningur sjávarafurða og sala á erlendum mörkuðum. • Útrás sem tilfærsla eða útvíkkun á starfseminni á í raun ekki við hjá SÍF, þar sem hlutverk félagsins er að reka hluta sölukerfis á erlendri grundu. • Útvíkkun á starfseminni hefur falist í því að fóta sig á öðrum tengdum sviðum s.s. fullvinnslu og dreifingu.
1965 Fiskréttaverksmiðja í Bandaríkjunum (Icel. Seafood) 1990 Kaup á Nord Morue í Frakklandi 1996 Fiskvinnsla og útgerð í Noregi (1996-1999) 1997 Fiskréttaverksmiðja í Bandaríkjunum flutt/endurbyggð 1997 Kaup á fiskréttaverksmiðjunni Gelmer í Frakklandi 1997 Kaup á saltfiskfyrirtækinu Sans-Souci í Kanada 1998 Kaup á reykingarfyrirtækinu Delpierre í Frakklandi 1999 Kaup á saltfiskdreifingarfyrirtækinu Armengol á Spáni 2002 Yfirtaka á hluta af starfsemi keppinautar í Frakklandi 2003 Kaup á síldarreykingarfyrirtæki í Frakklandi 2003 Kaup á skelfiskfyrirtækinu Lyons Seafoods í Bretlandi Margþætt reynsla SÍF
Auk þess • Söluskrifstofur víða um heim • Bretlandi, Þýskalandi, Ítalíu, Frakklandi, Noregi, Grikklandi, Japan og Brasilíu. • Hlutdeildarfélög • Bretlandi, Færeyjum • Þátttaka í stærri verkefnum • Kamchatka, Namibía
Sala eða niðurlagning • 2001 Fiskvinnslufyrirtæki og útgerð í Noregi • 2003 Sala á hlut í útgerðarfyrirtæki í Namibíu • 2003 Lokun söluskrifstofa í Brasilíu og Japan
Í samræmi við stefnu SÍF leggur áherslu á að skapa sér sterka markaðsstöðu á kjarnamörkuðum fyrirtækisins en nýtir um leið þekkingu sína og aðstöðu til að skapa sér sterka stöðu á öðrum arðvænlegum markaðshlutum eða markaðssvæðum. SÍF skilgreinir Bandaríkin, Bretland, Frakkland og Spán sem kjarnamarkaði fyrirtækisins.
Niðurstaða markvissrar vinnu • Verkefnið hófst með greiningu á stöðu og þróun á breska markaðnum 2001 • Í byrjun árs 2002 lágu fyrir þeir markaðshlutar sem álitlegir voru til fjárfestingar • Á árinu 2002 voru fjölmörg bresk fyrirtæki skoðuð og greind • Um mitt ár 2002 beindust sjónir SÍF að Lyons Seafoods, en fresta varð samningagerð vegna samrunaviðræðna SÍF og SH • Samningaviðræður hófust að nýju í mars 2003
Forsendur fyrir skoðun • Að fyrirtækið sé rekið með hagnaði • Að fyrirtækið styrki SÍF á Bretlandsmarkaði • Að fyrirtækið styrki aðrar einingar innan SÍF • Að fyrirtækið starfi á markaðshluta sem vex vel umfram meðalvöxt í markaðnum • Að fyrirtækið hafi sterka markaðsstöðu í Bretlandi • Að fyrirtækið veiti SÍF nýjan aðgang að smásöludreifingu og dreifingu til veitingahúsa • Að framleiðsluvörur fyrirtækisins breikki vöruframboð SÍF
Samantekt - lykilatriði • Flóknara fyrir stærri fyrirtæki að fjárfesta í litlum frumkvöðlafyrirtækjum sem gera kröfu um beina þátttöku eigenda í rekstri og framþróun. • Að útrás/fjárfesting sé trú stefnu félagsins og þannig í takt við helstu styrkleika þess. • Leita markvisst að rétta tækifærinu þar sem lang flest fyrirtæki eru í raun til sölu. Ekki grípa bara það sem rekur á fjörur þínar. • Hafa þor til að bakka, breyta og selja.