300 likes | 548 Views
Sól, tungl og stjörnur. Glósur úr 3. kafla. 3-1: Sólkerfið verður til. Geimþokukenninging: Kenning um að sólkerfið eigi upptök sín í gríðarstóru gas- og rykskýi Efnin í skýinu voru aðallega vetni og helín
E N D
Sól, tungl og stjörnur Glósur úr 3. kafla
3-1: Sólkerfið verður til • Geimþokukenninging: • Kenning um að sólkerfið eigi upptök sín í gríðarstóru gas- og rykskýi • Efnin í skýinu voru aðallega vetni og helín • Sprengistjarna hafði þau áhrif á þetta ský að þungum frumefnum rigndi inn í hana og urðu hráefni í plánetur seinna meir. • Við þetta fór þokan líka að falla saman. Þrýstingur í miðju hennar varð svo mikill að vetniskjarnar fóru að renna saman og mynda helín – og þar með myndaðist sólin.
3-1: Sólkerfið verður til • Plánetur (Reikistjörnur) mynduðust þegar efnið í kringum hina nýmynduðu sól fór að safnast í kekki – þeir stærstu urðu frumplánetur • Á plánetum næst sólu var hitinn svo mikill að lofttegundir gufuðu upp og hnettirnir eru því aðallega úr málmum og grjóti • Á plánetum fjær sólu tolldu gastegundir við hnettina sem urðu risastórir ,,gasrisar”
3-1: Sólkerfið verður til • Tungl eru fylgihnettir pláneta, og mynduðust úr efni umhverfis pláneturnar eftir að þær fóru að kólna • Milli Mars og Júpíters myndaðist smástirnabelti • Við ystu mörk sólkerfisins er efnisský þar sem halastjörnur eru taldar eiga uppruna sinn
3-2: Hreyfing reikistjarnanna • Kenningin um að jörðin væri flöt var einungis við líði meðal þjóða sem hvorki ferðuðust né bjuggu við sjó. • Kenningin um að jörðin sé kúlulaga er studd athugunum manna í daglegu lífi: • Ef við göngum á fjall sjáum við lengra út á sjó • Skuggi sólar við tunglmyrkva er alltaf bogadreginn
3-2: Hreyfing reikistjarnanna • Jarðmiðjukenningin var viðurkennd allt fram á 17. öld. Rök fyrir henni: • Við sjáum himinhnetti sveima umhverfis jörðu • Maðurinn er æðsta sköpunarverkið, því rökrétt að hann búi í miðju alheimsins • Hlutir detta alltaf niður – leita í átt að miðju alheims • Aristóteles og Ptólemaíos voru helstu hugsuðirnir að baki þessari kenningu
3-2: Hreyfing reikistjarnanna • Sólmiðjukenningin er sú kenning sem við höfum nú um Sólkerfið. • Fyrst sett skipulega fram af Kópernikusi. • Skv. henni er Jörðin er ein af reikistjörnunum sem eru á braut um sólu, og tungl snúast um reikistjörnurnar
3-2: Hreyfing reikistjarnanna • Umferðartími plánetu er sá tími sem það tekur hana að fara einn hring í kringum sólu. • Snúningstími plánetu er sá tími sem það tekur hana að snúast einn hring um sinn eigin möndul
Kepler setti fram kenninguna um að brautir reikistjarna umhverfis sólu væru sporbaugar Newton skýrði ástæður þess að pláneturnar hreyfast eins og þær gera með því að skilgreina þyngdarlögmálið 3-2: Hreyfing reikistjarnanna
3-3: Yfirlit um sólkerfið • Í sólkerfinu eru: • Sólin • Pláneturnar (reikistjörnur) • Tungl (fylgihnettir) • Halastjörnur • Geimgrýti • Röð reikistjarnanna frá Sólu er: • Merkúr – Venus – Jörðin – Mars – Júpíter – Satúrnus – Úranus – Neptúnus - Plútó
3-4: Innri reikistjörnurnar Merkúríus
3-4: Innri reikistjörnurnar • Merkúríus: • Merking nafnsins: sendiboði guðanna • Lofthjúpur nær enginn • Alsettur gígum eftir loftsteina • Umferðartími (árið) er 88 dagar • Snúningshraði (sólarhringur) er 59 jarðar-sólarhringar • Hver dagur mjög langur hiti verður mjög hár á daginn og mjög lágur á nóttinni: frá – 170°C til 400°C
3-4: Innri reikistjörnurnar Lofthjúpur Venusar
3-4: Innri reikistjörnurnar Yfirborð Venusar
3-4: Innri reikistjörnurnar • Venus • Merking nafnsins: ástargyðja Rómverja • Frá jörðu sést hún aðeins á morgnana eða á kvöldin • “Tvíburi jarðar”: svipuð að stærð og þéttleika • Mjög þykkur lofthjúpur, m.a. Brennisteinssýra og Koltvísýringur. Veldur gífurlegum gróðurhúsaáhrifum, háu hitastigi (480°C) sem breytist lítið milli dags og nætur • Möndulsnúningur frá austri til vesturs, öfugt við flestar aðrar plánetur (bakhreyfing) • Umferðartími: 225 jarðarsólarhringar • Snúningstími: 243 jarðarsólarhringar (ATH! lengri en árið)
3-4: Innri reikistjörnurnar • Mars: • Merking nafnsins: hernaðarguð Rómverja • Rautt yfirborð stafar af ryðjárni sem þekur jarðveginn • 2 tungl: Fóbos (ótti) og Deímos (ógn) • Frosið vatn á pólunum Suðurpóll Mars
3-4: Innri reikistjörnurnar • Mars, frh: • Yfirborðið þakið uppþornuðum árfarvegum • Óvirk eldfjöll, hið stærsta er Ólympsfjall, 25 km hátt • Miklir sandstormar geisa um alla plánetuna Sandstormar hylja yfirborð Mars, sumarið 2001
3-4: Innri reikistjörnurnar • Smástirnabeltið: • Milli Mars og Júpíters er belti af hundruðum þúsunda grjóthnullunga og kletta • Stærsta smástirnið er 1000 km í þvermál Loftsteinn
3-5: Ytri reikistjörnurnar Júpíter og nokkur tunglanna á sveimi í kringum hann
3-5: Ytri reikistjörnurnar • Júpíter: • Merking nafnsins: æðsti guð Rómverja • Langstærsta pláneta sólkerfisins • Á ýmsan hátt líkur sólinni (kalt yfirborð en heitur kjarni; aðalefni vetni og helín) • Er að öllu eða langmestu leyti úr lofttegundum • Yfirborðið er síbreytilegt skýjamynstur • Rauði bletturinn á yfirborðinu er risastór stormsveipur Rauði bletturinn er á sífelldrei hreyfingu
3-5: Ytri reikistjörnurnar • Júpíter, frh: • Hefur gríðarstórt segulhvolf, sem teygir sig a.m.k. inn á braut Satúrnusar • Hefur 63 tungl. • Stærstu tunglin kallast Galíleótunglin og eru: • Jó: mikil eldvirkni • Evrópa: • Ganímedes: stærsta tunglið • Kallistó: alþakið gígum Eldgos á Jó
3-5: Ytri reikistjörnurnar Satúrnus
Satúrnus • Helsta einkenni Satúrnusar eru hringirnir • Nefndur eftir guði landbúnaðar og uppskeru • Hringirnir eru 7 en hver er gerður úr smærri hringjum. • Vegna snúningshraðans er hnötturinn flatur til pólanna og í lofthjúpinum geisa vindar sem ná allt að 1800 km/klst hraða. • Tungl eru 60 • Stærst tunglanna er Títan
Úranus • Fannst undir lok 18. aldar • Hefur 27 tungl • var himnaguð Rómverja • Gashjúpurinn er blágrænn að lit, aðallega úr metani, helíni og vetni • Hitinn er um -210°c efst í skýjahulunni • Möndulhallinn er svo mikill að Úranus liggur eiginlega á hliðinni. • Hefur um sig hringi gerða úr metanís
Neptúnus • Þegar brautarreikningar Úranusar stemmdu ekki við raunveruleikann tóku stjörnufræðingar að gera ráð fyrir reikistjörnu utar sem hafði áhrif á Úranus • Þessi stjarna var Neptúnus sem fannst 1846 • Hefur 8 tungl og það stærsta nefnist Tríton, sem hreyfist í gagnstæða stefnu við möndulsnúning Neptúnusar
Geimgrýti • Geimgrýti eru grjót og málmhnullungar af ýmsum gerðum og stærðum. Þeir skella á lofthjúpi jarðar í milljónatali hvern sólarhring • Flestir brenna upp í lofthjúpinum og kallast þá loftsteinar sem orsaka stjörnuhröp • Komist loftsteinn í gegnum lofthjúpinn til jarðar kallast hann hrapsteinn Leoníta loftsteinadrífan utan úr geimnum 1997
Lífhvolf • Lífhvolf er það fjarlægðarbil sem reikistjarna þarf að uppfylla til að líf geti hugsanlega þrifist á yfirborði hennar • Úrslitaatriði eru hæfilegur hiti og fljótandi vatn