60 likes | 226 Views
Yfir aldarfjórðungs reynsla auðveldar okkur að finna þann eina rétta. STRÁ Starfsráðningar ehf. - Suðurlandsbraut 30 - 108 Reykjavík - sími 588 3031 – www.stra.is – stra@stra.is. Fagmennska, traust og trúverðugleiki
E N D
Yfir aldarfjórðungs reynsla auðveldar okkur að finna þann eina rétta STRÁ Starfsráðningar ehf. - Suðurlandsbraut 30 - 108 Reykjavík - sími 588 3031 – www.stra.is – stra@stra.is
Fagmennska, traust og trúverðugleiki Við leggjum metnað okkar í fagleg og vönduð vinnubrögð, þjónustugæði og ánægju viðskiptavina okkar. STRÁ Starfsráðningar ehf. Suðurlandsbraut 30 - 108 Reykjavík - sími 588 3031 – www.stra.is - stra@stra.is
STRÁ Starfsráðningar ehf. STRÁ ehf. auðveldar vinnuveitendum leitina að hæfum starfsmönnum • STRÁ ehf. hefur þúsundir umsækjenda á skrá. Umsækjendur í leit að almennum störfum, sérfræði- og/eða ábyrgðar- og stjórnunarstörfum. • STRÁ ehf. hefur milligöngu um ráðningar hvort sem er í stöðu framkvæmdastjóra eða sendils. • STRÁ ehf. hefur milligöngu um ráðningar í framtíðar- og skammtímastörf. • STRÁ ehf. býr að öflugum gagnabanka, sem sparar vinnuveitendum auglýsingaútgjöld og flýtir ráðningarferlinu. STRÁ Starfsráðningar ehf. Suðurlandsbraut 30 - 108 Reykjavík - sími 588 3031 – www.stra.is – stra@stra.is
STRÁ Starfsráðningar ehf. Þjónusta STRÁ ehf. sparar þér tíma, fé og fyrirhöfn • STRÁ ehf. sérþjónusta veitir sérfræðingum og stjórnendum þjónustu við leit að ábyrgðar- og stjórnunarstörfum. • STRÁ ehf. býður traustum viðskiptavinum viðskiptasamninga. Því fylgir aukin þjónusta s.s. frammistöðumat, hönnun og gerð auglýsinga og afsláttur vegna birtinga. • STRÁ ehf. veitir ráðgjöf og aðstoðar vegna uppsagna og skipulagsbreytinga í starfsmannamálum hjá fyrirtækjum. • STRÁ ehf. annast starfsmannamál fyrir fyrirtæki, sem velja að úthýsa af m.a. hagkvæmniástæðu. STRÁ Starfsráðningar ehf. Suðurlandsbraut 30 - 108 Reykjavík - sími 588 3031 – www.stra.is – stra@stra.is
Ferli ráðninga STRÁ ehf. var stofnað 10. september 1994, en býr að meira en aldarfjórðungs reynslu og þekkingu á sviði starfsmanna- og ráðningarmála enda hafa mörg helstu fyrirtæki landsins leitað aðstoðar við milligöngu um ráðningar við fjölbreytileg sérfræði- og stjórnunarstörf, sem og önnur alhliða störf. Þess skal getið að fjöldi vel menntaðra umsækjenda með reynslu af ýmsum störfum eru á skrá í gagnabanka STRÁ. Kostnaðarsamt er að auglýsa í fjölmiðlum og vill oft lengja ráðningarferlið. Styrkur STRÁ liggur m.a. í öflugum gagnabanka, sem bæði styttir ferlið og sparar verkbeiðanda birtingarútgjöld. Vefauglýsingar á heimasíðu STRÁ falla undir fastagjald fyrir umbeðna þjónustu og því án aukakostnaðar fyrir verkbeiðendur. Ferlið í stuttu máli: Verkbeiðnir berast, greiningarvinna hefst, fundnir fram hæfastir umsækjendur í viðkomandi starf, þeim kynnt starfssvið og starfsemi fyrirtækisins. Umsagnir eru síðan kannaðar og umsækjendur boðaðir í forviðtöl. Að jafnaði er þremur jafnhæfum umsækjendum komið á framfæri til verkbeiðanda, sem fær ferilskrár í hendur og getur kynnt sér gögn til hlítar áður en að viðtali kemur. Umsækjendur eru þá boðaðir í viðtöl og gefinn kostur á að kynna sig og kynnast umræddu fyrirtæki. Í lokin er umsækjendum kynnt niðurstaða um ráðningu og gengið frá ráðningarsamningi. STRÁ Starfsráðningar ehf. Suðurlandsbraut 30 - 108 Reykjavík - sími 588 3031 – www.stra.is – stra@stra.is
Ferli þjónustunnar rakið, annars vegar hefðbundið ferli með hágæðaþjónustu og hinsvegar svokallað hraðaferli, með lægra þjónustustigi, sem og verðlagningu. STRÁ Starfsráðningar ehf. Suðurlandsbraut 30 - 108 Reykjavík - sími 588 3031 – www.stra.is – stra@stra.is