120 likes | 255 Views
124. Ársfundur Alþjóðanefndar knattspyrnusambanda (IFAB). Zürich, Sviss 6. Mars 2010. Grein – leikvöllurinn (lagt fram af FIFA). Mörk. Ástæða Taka þarf af öll tvímæli um að markstangir annarrar lögunar séu ekki heimilaðar. 5. Grein – Dómarinn (lagt fram af skoska knattspyrnusambandinu).
E N D
124. Ársfundur Alþjóðanefndar knattspyrnusambanda (IFAB) Zürich, Sviss6. Mars 2010
Grein – leikvöllurinn (lagt fram af FIFA) Mörk Ástæða Taka þarf af öll tvímæli um að markstangir annarrar lögunar séu ekki heimilaðar.
5. Grein – Dómarinn (lagt fram af skoska knattspyrnusambandinu) Túlkun knattspyrnulaganna og leiðbeiningar til dómara Meiddir leikmenn Ástæða Það er talið ósanngjarnt að leikmenn sama liðs, sem lenda í samstuði, þurfa nú að yfirgefa leikvöllinn til þess að fá aðhlynningu og lið þeirra sé þannig fáliðaðra sem því nemur á meðan.
5. grein – Dómarinn(lagt fram af Skoska knattspyrnusamb.) Túlkun knattspyrnulaganna og leiðbeiningar til dómara Meiddir leikmenn Ástæða Sú skylda að börumennirnir fari ávallt inn á leikvöllinn þegar lækna er þörf veldur oft óþarfa töfum á leiknum.
Marklínutækni(frh. umræðu frá 122. ársfundi Alþjóðanefndar) Notkun marklínutækni, og reyndar hvers konar tækni innan leiksins, var alfarið hafnað af Alþjóðanefndinni.
Ráðandi tungumál Knattspyrnulaganna • Samþykkt var að bæta við setningu í kaflann “Ábendingar um Knattspyrnulögin” (á bls. 3 í 2009 útgáfu laganna) til þess að staðfesta að Enska útgáfa laganna ráði ef upp kemur ósamræmi milli mismunandi tungumálaútgáfa laganna. • Það orðalag byggir á 8. grein 4. málsgreinar Samþykkta FIFA.
Viðbótarfyrirmæli til dómara Borið hefur á því að einstök knattspyrnusambönd og álfusambönd hafi einhliða gefið út sín eigin fyrirmæli og leiðbeiningar til dómara innan sinna svæða varðandi hvernig framfylgja beri Knattspyrnulögunum, sem þannig eykur líkurnar á mismunandi túlkun þeirra um víða veröld. Við viljum því undirstrika að Alþjóðanefnd knattspyrnusambanda (eða FIFA fyrir hennar hönd) hefur ein heimild til þess að gefa út slík viðbótarfyrirmæli varðandi Knattspyrnulögin svo tryggja megi samræmi í túlkun þeirra um heim allan.
Aukafundur Alþjóðanefndar knattspyrnusambanda Zürich, Sviss 18. Maí 2010
14. grein – Vítaspyrna(lagt fram af FIFA) Túlkun Knattspyrnulaganna og leiðbeiningar til dómara Framkvæmd Ástæða Í ljósi aukinnar tilhneigingar leikmanna til að þykjast ætla að taka vítaspyrnu til þess að villa um fyrir markvörðum þykir nauðsynlegt að skýra betur hvað sé heimilt og til hvaða ráða dómurum beri að grípa þegar brot eiga sér stað.
Fjórði dómarinn(lagt fram af Skoska knattspyrnusamb.) Fjórði dómarinn og varaaðstoðardómarinn (7. punktur) Ástæða Lagt er til að svigrúm fjórða dómarans til þess að aðstoða dómarann verði aukið og honum ekki einungis heimilað að styðja við dómarann og ráðleggja honum í takmörkuðum fjölda tilfella líkt og nú er kveðið á um í Knattspyrnulögunum.
Gildistaka 2010/2011 útgáfu Knattspyrnulaganna • Alþjóðanefndin samþykkti samhljóða að ákvarðanir bæði 124. Ársfundar nefndarinnar og aukafundar hennar 18. maí 2010 skuli taka gildi 1. júní 2010 og þar með gilda í úrslitakeppni HM2010.