110 likes | 251 Views
Embættisskilningurinn er ekki einn. Erindi á Prestastefnu 17. apríl 2013 Sigríður Guðmarsdóttir. Boðun í síbreytilegu samhengi.
E N D
Embættisskilningurinn er ekki einn Erindi á Prestastefnu 17. apríl 2013 Sigríður Guðmarsdóttir
Boðun í síbreytilegu samhengi „Holdtekja Guðs átti sér stað í ákveðnu samhengi. Á sama hátt fer boðun alltaf fram í ákveðnu samhengi – félagslegu, trúarlegu og menningarlegu. Samhengi nútímans er vissulega frábrugðið því sem ríkti í Júdeu fyrir 2000 árum. Þess vegna þarf að greina tímanna tákn og lesa samviskusamlega úr aðstæðum og umhverfi með bæn um leiðsögn.“ Sigríður Guðmarsdóttir
Limaskýrslan (1982) Vígð þjónusta skal vera: • Persónuleg • Samábyrg • Samfélagsleg Sigríður Guðmarsdóttir
Gordon Lathrop: Holy People „Leiðtogar þessa móts ættu að miða að því að efla þátttöku safnaðarins í því að lyfta upp reisn og virðingu hvers og eins meðlims hans og að skilja eftir opnar dyr til umheimsins. Reyndar ætti safnaðarrýmið að gefa kost á opnum dyrum, gegndræpum skilum milli hins ytra og innra, aðgengi að hinum ytra veruleik, og merki um gestrisni. Það sem fram fer í guðsþjónustunni á að vera merkingarbært og halda áfram eftir að móti safnaðarins er lokið. Þessi merking gefur kost á því að lýsa að nýju og ímynda sér að nýju hið hversdagslega líf.“ Sigríður Guðmarsdóttir
Hirðisbréf sænskra biskupa (1990) Sigríður Guðmarsdóttir
Kjell Nordstokke, „The Diaconate: Ministry of Prophecy and Transformation“ (2000) „Helsta verkefni kirkjunnar núna er að dreifa valdi, að gefa nýjan gaum að jaðrinum, að muna hinn biblíulega vitnisburð sem lyftir upp hinum fátæku, kúguðu og útilokuðu og muna sérstaklega hvernig Jesús mætti þessum hópum.“ Sigríður Guðmarsdóttir
Jón Helgason, Hirðisbréf (1917) Fá söfnuðirnir í prédikunum vorum þá leiðbeiningu, til að greiða úr vandaspurningum lífsins, sem þeir þrá heitast? Tölum vér af prédikunarstólnum þá tungu sem nálægur tími skilur? Eru prédikanir vorar fyllilega tímabærar? Sigríður Guðmarsdóttir
Sigurgeir Sigurðsson, Hirðisbréf (1940) „Prestar á Íslandi lifa meira lífi fólksins, en flestar, ef ekki allar, aðrar stéttir í þjónustu hins opinbera... Það er því mikilvægt að sérhver prestur geri sér far um að skilja þessa hlið á starfi sínu og þroska sig til þess, sem bezt hann getur. „Prédikunin á stéttunum“ er enn í sínu fulla gildi og verður án efa alltaf.“ Sigríður Guðmarsdóttir
Karl Sigurbjörnsson, Í birtu náðarinnar (2001) „Kirkjan á að vera opin, víðsýn, umburðarlynd og halda opnu samtali við heiminn og gefa fólki færi á að vaxa í þekkingu, skilningi, náð. Hún á að hafa lága þröskulda jafnframt því sem hún stendur först á óhagganlegum grunni postulanna og heldur fast í játningu trúarinnar. „ Sigríður Guðmarsdóttir
Karl Sigurbjörnsson, Í birtu náðarinnar (2001) „Orðið embætti er stórt orð og hátíðlegt. Ósjálfrátt segjum við það í samband við háttsetta opinbera starfsmenn. Frummerking orðsins er þjónusta. Það er af sömu rót og orðið ambátt. Ég vil að við notum þetta ofhlaðna orð, „embætti“, sparlega og af varúð og minnumst þessarar frummerkingar: Þjónusta, en ekki tignarstaða. Og þó er sú þjónusta æðsta tign, já eina raunverulega tignarstaða á jörðu er að líkjast Jesú Kristi.“ Sigríður Guðmarsdóttir