250 likes | 488 Views
Menning - fjölmenning. Um samfélög, þjóðir þjóðarbrot og fjölmenningu. Samfélag. Hvað er samfélag? Það er hópur fólks sem býr saman í skipulögðum félagsskap Samskiptahættir tengja saman fólk með sömu menningu. Helstu verkefni allra samfélaga.
E N D
Menning - fjölmenning Um samfélög, þjóðir þjóðarbrot og fjölmenningu Garðar Gíslason
Samfélag • Hvað er samfélag? Það er hópur fólks sem býr saman í skipulögðum félagsskap • Samskiptahættir tengja saman fólk með sömu menningu. Garðar Gíslason
Helstu verkefni allra samfélaga • Nýliðun:Börn fæðast inn í samfélagið eða nýir einstaklingar flytja inn í það. • Félagsmótun:Einstaklingar læra hvað felst í því að vera meðlimur í samfélaginu. Garðar Gíslason
Helstu verkefni allra samfélaga • Framleiðsla og skipting gæða:Sjá til þess að lífsnauðsynjar séu framleiddar og þeim skipt með einhverjum hætti milli íbúanna. Garðar Gíslason
Helstu verkefni allra samfélaga • Verkaskipting:Verkum skipt milli hópa eða einstaklinga. • Skipting valda og miðstýring:Hver ræður? Garðar Gíslason
Þjóðir og þjóðarbrot • Þjóð: Hópur fólks sem myndar eina heild. Hópurinn talar yfirleitt sama mál og á sér sameiginlega sögu og menningu. Þjóðin býr í eigin ríki eða sækist eftir að stofna eigið ríki. Garðar Gíslason
Þjóðir og þjóðarbrot • Þjóðarbrot: Minnihlutahópar í tilteknum ríkjum. Tungumál, menning og saga þjóðarbrotsins og meirihlutans sem ræður ríkinu eru oft ólík. Þjóðarbrotin skipa því venjulega lágan sess í ríkinu. Garðar Gíslason
Þjóðir og þjóðarbrot • Mikilvægasti munurinn á þjóð og þjóðarbroti eru tengslin við ríkið. • Geturðu nefnt nokkur dæmi um þjóðir annars vegar og þjóðarbrot hins vegar? Garðar Gíslason
Þjóðhverfur hugsunarháttur: • Þegar fólk dæmir framandi siði og venjur út frá eigin menningu. • Þegar fólk staðsetur eigin þjóð í miðju og raðar öllum öðrum þjóðum á kvarða eftir því hversu mikið þær líkjast því sjálfu. Garðar Gíslason
Þjóðhverfur hugsunarháttur • Getur reynst gagnlegur við að styrkja samstöðu innan þjóðar og trú hennar á eigin hefðum og siðum. • Getur reynst mjög skaðlegur þar sem hann getur ýtt undir kynþáttafordóma og hvers konar mismunun, skapað óvild og staðið í vegi breytinga. Garðar Gíslason
Afstæðishyggja • Andstæða þjóðhverfs hugsunarháttar. • Segir að menning sé afstæð og ekki sé hægt að skilja menningu nema út frá henni sjálfri. • Allir menningarheimar eru jafn réttháir. Garðar Gíslason
Afstæðishyggja • Útilokað að flokka menningu eftir gæðum, siðgæði eða þróunarstigi. Allt er jafn gott svo framarlega sem það er hluti menningar. • Gagnleg við að berjast gegn ýmis konar fordómum. Garðar Gíslason
Afstæðishyggja • Skaðleg þegar reynt er að afsaka t.d. limlestingar á kynfærum stúlkna út frá menningunni. • Getur þú nefnt fleiri dæmi um þjóðhverfan hugsunarhátt og afstæðishyggju út frá punktunum hér að framan? Garðar Gíslason
Ísland sem fjölmenningarsamfélag • Innflytjendum hefur fjölgað mikið á Íslandi síðustu árin. • Árið 2002 voru þeir 4% af íbúum landsins. Garðar Gíslason
Ísland sem fjölmenningarsamfélag • Af hverju flyst fólk hingað? • Sumir í leit að betri lífskjörum • Sumir eiga maka eða skyldmenni hér á landi • Sumir hafa ákveðið að setjast hér að fyrir fullt og allt en aðrir eru hér bara tímabundið Garðar Gíslason
Ísland sem fjölmenningarsamfélag • Fjölmennustu hóparnir (2004) • Pólverjar (1903 • Danir (890) • Ríki í fyrrum Júgóslavíu (670) • Filippseyjingar (647) • Þjóðverjar (540) • Bandaríkjamenn (515) • Taílendingar (490) Garðar Gíslason
Ísland sem fjölmenningarsamfélag Er Ísland fjölmenningarsamfélag? • Nauðhyggjumenn tala um óhjákvæmilega þróun – með nauðhyggju er átt við að allt sem gerist verði að nauðsyn og ákvarðast af því sem á undan er gengið. Maðurinn hefur því lítið viljafrelsi, ákvarðanir hans ráðast – eins og annað – af náttúrulegum orsökum Garðar Gíslason
Ísland sem fjölmenningarsamfélag • Hversu vel/illa líkar “okkur” við fjölmenningarlegt samfélag? • Eru “Íslendingar” fordómafullir? • Hvað er það að vera íslendingur? Garðar Gíslason
Ísland sem fjölmenningarsamfélag • Hvað er fjölmenning ekki? • Hún felst ekki í því einu að útlendingar flytji hingað og setjist hér að. • Ísland verður ekki fjölmenningarsamfélag þó við tökum upp á því að ráða útlending í stöðu Garðar Gíslason
Ísland sem fjölmenningarsamfélag • Fjölmenning felst í því að leyfa útlendingum að auðga menningu okkar – við ættum að læra eitthvað af því og bæta reynslu þess við okkar. Garðar Gíslason
Ísland sem fjölmenningarsamfélag • Hvað veistu um fjölmennustu innflytjendahópana hér á landi svo sem pólverja, fólk frá fyrrum Júgóslavíu eða dani? Garðar Gíslason
Ísland sem fjölmenningarsamfélag • Fjölmiðlar/skólarnir ættu að miðla menningu þessara hópa hér á landi – þessir aðilar hafa ekki staðið sig í stykkinu hvað það varðar Garðar Gíslason
Ísland sem fjölmenningarsamfélag • Andstæða fjölmenningar er hin gríðarmikla ameríkanasering sem tröllríður öllu hér á landi • Ameríkanísering er andstæða fjölmenningar vegna þess að hún gerir allt eins Garðar Gíslason
Ísland sem fjölmenningarsamfélag • Að kitla þjóðarstoltið • Afreksmenn í hópi nýbúa eru öllum til sóma. Sumir þeirra hafa góðu heilli fengið íslenskan ríkisborgararétt og borið hróður landsins víða. Garðar Gíslason
Ísland sem fjölmenningarsamfélag • Að kitla þjóðarstoltið • Dæmi um það eru píanóleikarinn Vladimir Ashkenazy, handboltamennirnir Róbert Julian Duranona og Roland Valur Eradze, fimleikamaðurinn Rúnar Alexandersson og skákkonan Lenka Ptácnikova. Garðar Gíslason