260 likes | 440 Views
Menntun og menning. Leiðsöguskóli Íslands Íslenskt samfélag – ÍSA 101. Skólakerfið. Með fræðslulögunum frá 1907 var komið á skólaskyldu hér á landi fyrir 10-13 ára börn. Heimilin báru ábyrgð á fræðslu barna frá 7 ára aldri, m.a. að kenna þeim að lesa.
E N D
Menntun og menning Leiðsöguskóli Íslands Íslenskt samfélag – ÍSA 101 Steinn Jóhannsson
Skólakerfið • Með fræðslulögunum frá 1907 var komið á skólaskyldu hér á landi fyrir 10-13 ára börn. • Heimilin báru ábyrgð á fræðslu barna frá 7 ára aldri, m.a. að kenna þeim að lesa. • Í þorpum og bæjum var skóli með daglegri kennslu en í sveitunum var farskóli, þ.e. farkennari fór á milli staða og kenndi. • Síðar komu einnig fram heimavistarskólar. • Frá 1936 var skólaskyldan lækkuð í 7 ára en þó ekki í sveitum landsins. Steinn Jóhannsson
Skólakerfið • Frá 1946 var skólaskylda fyrir 7-14 ára. • Barnastigið var fyrir 7-12 ára og gagnfræðastigið fyrir 13-16 ára. • Menntaskólar höfðu inntökupróf og gerðu mismunandi kröfur fyrir inngöngu. • Landspróf var tekið upp í lok gagnfræðastigs sem átti að veita aðgang að menntaskólum landsins. Steinn Jóhannsson
Skólakerfið • Verslunarskólinn og síðar einnig Kennaraskólinn veittu þó nemendum aðgang án landsprófs og voru með eigin inntökupróf. • Í grunnskólalögunum frá 1974 var skólakerfið stokkað upp. • Heimilað var að bæta við 6 ára bekk og varð hann síðar að fyrsta bekk 10 ára skylduskóla. • Samræmt grunnskólapróf varð inngönguleið að hvers konar framhaldsnámi, bæði menntaskólum og sérskólum. Steinn Jóhannsson
Skólakerfið • Ný gerð framhaldsskóla kom fram, þ.e. fjölbrautaskólinn. • Hægt að velja á milli ólíkra brauta, bæði bóklegra og verklegra. • Áfangakerfið kemur fram. • Sérskólar (t.d. iðnskólar) aðlöguðu nám sitt að fjölbrauta- og áfangakerfinu. Steinn Jóhannsson
Skólakerfið í dag • Leikskólar eru fyrir börn undir skólaskyldualdri og þurfa foreldrar að greiða fyrir þá sjálfir. • Skólaskylda er frá 6-16 ára aldurs í grunnskólum landsins. • Sveitarfélögin sjá um rekstur grunnskólanna og þurfa foreldrar að jafnaði ekki að greiða fyrir kennslu né námsgögn. • Einkareknir grunnskólar eru mjög fáir. Steinn Jóhannsson
Fjöldi í skólum haustið 2010 • Samtals á öllum skólastigum: 106.449 (voru 105.483 haust 2008) • Leikskólar: 18.961 (16.864 2005) • Grunnskólar: 42.539 (44.695 2005) • Framhaldsskólar: 25.090 (23.345 2005) • Háskólastig: 19.859 • Fjölgun um rúmlega 8000 nemendur frá 2000. • Nemendur erlendis á háskólastigi: 2.248 • Hefur fækka en voru 2380 árið 2008. • Flestir í Danmörku eða 972 og þar næst í BNA eða 285. Steinn Jóhannsson
Grunnskólar • Skólaárið eru tæplega 10 mánuðir, frá seinnihluta ágúst fram í miðjan júní. • Meðal skyldunámsgreina eru stærðfræði, íslenska, enska, danska, samfélagsfræði, kristinfræði og íþróttir. • Foreldrar geta beðið skólastjóra um að sækja um undanþágu frá skyldunámi í einstökum námsgreinum, t.d. kristinfræði. Steinn Jóhannsson
Grunnskólar • Nemendur sem hafa ekki íslensku að móðurmáli eiga rétt á sérstakri íslenskukennslu. • Tilgangur: Veita erlendum nemendum aðlögun og stuðning í námi til að geta stundað nám í íslenskum skólum. • Nemendur geta stundað nám í móðurmáli sínu utan skóla og fengið það metið í skólanum. Steinn Jóhannsson
Ýmis tölfræði um grunnskólanna • 4.886 (4.978 = 2009) starfandi við kennslu(ka. 20% vs. ko. 80%) en 4.509 með kennsluréttindi • Um 9 nemendur per kennara • 10.883 (af. tæpl. 43.þús) nemendur sem njóta sérkennslu og stuðnings 2010 • Drengir 6684og stúlkur 4199 • 2.318 nemendur með annað móðurmál en Íslensku (768 með Pólsku, 209 með filippseysk mál,157 með ensku og 136 með Tælensku) • Hver grunnskólanemandi kostar sveitarfélag um 1. milljón króna, mism. eftir sveitarfélögum Steinn Jóhannsson
Skólasókn 16-26 ára 2010 • 16 ára 95% • 17 ára 88% (-2) • 18 ára 81% (+1) • 19 ára 74% • 20 ára 56% (-5) • 21 ára 55% (-1) • 22 ára 53% (+3) • 23 ára 48% (+2) • 24 ára 42% (+2) • 25 ára 36% (+2) • 26 ára 29% (+1) Skólasókn farið vaxandi í öllum árgöngum síðustu tvö ár Steinn Jóhannsson
Samanburður á skólagöngu Steinn Jóhannsson
Framhaldsskólar • Skyldunámi lýkur við 16 ára aldurinn og þá geta nemendur farið í framhaldsskóla. • Mismunandi brautir standa nemendum til boða út frá námsárangri þeirra í grunnskóla. • Nemendur þurfa að greiða innritunargjöld sem eru mismunandi eftir námsbrautum. • Nemendur þurfa ekki að greiða fyrir kennsluna en þurfa að greiða sjálfir fyrir námsbækur. • Ríkið sér um rekstur framhaldsskólanna. Steinn Jóhannsson
Framhaldsskólar • Nám í framhaldsskólum tekur 1-4 ár og skiptist í margar námsbrautir, eins og starfsnámsbrautir, bóknámsbrautir og almenna námsbraut. • Öldungadeild er í mörgum framhaldsskólum. • Sumir framhaldsskólar hafa sérstakar brautir fyrir nemendur með skerta námshæfni. • Skólaárið er um 9 ½ mánuður, eða frá seinnihluta ágúst fram í lok maí. Steinn Jóhannsson
Framhaldsskólar og viðbótarstig – haustið 2010 • Samtals stunduðu rúmlega 28.057 nám (48,8% karlar og 51,2% konur) • Náttúrufræðibraut er fjölmennust með 5.293 nemendur. • Þar næst koma félagsfræðabrautir með 5.233 • Sjúkraliðanám vinsælasta starfsnámið með 566 nemendur, rafiðnir með 517 og húsasmíði með 426 nemendur • FÁ með flesta nemendur 2.624Tækniskólinn með 2.506 Steinn Jóhannsson
Brautskráningar á úr framhaldsskólum 2009-2010 • Alls brautskráðust 5.795 (3.863 = 1999-2000) á skólaárinu. • Konur voru nokkru fleiri en karlar eða um 60% brautskráðra. • Stúdentspróf voru 3.163 af öllum brautskráningum á framhaldsskólastigi. • Brautskráningar úr réttindaprófi starfsgreina voru 661. • Brautskráningar með sveinspróf 644. • Karlar rúmlega 80% þeirra sem luku sveinsprófi. Steinn Jóhannsson
Háskólar • Skólar á Íslandi sem bjóða upp á menntun á háskólastigi eru 7. • Inntökuskilyrði til náms á háskólastigi miðast oftast við stúdentspróf. • Kennsla fer yfirleitt fram á íslensku en kennslubækur eru oft á erlendum málum. • Bæði til ríkisreknir háskólar og einkareknir (Háskólinn í Reykjavík og Háskólinn Bifröst). Hinir ríkisreknu rukka nemendur um innritunargjöld og efnisgjöld (þar sem við á) en einkaskólar um skólagjöld. Steinn Jóhannsson
Háskólar – haustið 2010 • Nemendum á háskólastigi hefur fjölgað gríðarlega síðustu ár og eru 19.889 á Íslandi (árið 2000 voru þeir 10.468) • 482 stunda doktorsnám (50 árið 2000) og 4.243 meistaranám • Flestir stunda viðskiptafræði eða 1268 og 1233 stunda nám í lögfræði • 912 stunda grunnskólakennarafræði • 13.619 stunda nám í HÍ sem er stærstur ísl. háskóla • Konur eru 61% og karlar 39% af nemendum á háskólastigi Steinn Jóhannsson
Brautskráningar úr háskólum 1997-2009 Steinn Jóhannsson
Fullorðinsfræðsla – menntun í starfi • Núgildandi lög um fullorðinsfræðslu eru innan laga um framhaldsskóla frá 1996 og reglugerð Menntamálaráðuneytis frá 1997. • Mikið framboð á fullorðinsfræðslu og námskeiðum fyrir almenning • Námsflokkar Reykjavíkur, Námsflokkar Hafnarfjarðar, Tölvu- og verkfræðiþjónustan, NTV, o.m.fl. • Margir vinnuveitendur farnir að leyfa starfsfólki að sækja námkskeið á vinnutíma • Framboð sérhæfðra námskeiða margfaldast undanfarin ár Steinn Jóhannsson
Fullorðinsfræðsla – menntun í starfi • Er víða í hinu formlega skólakerfi, t.d. í framhaldsskólum (gjarna í öldungadeildum) • Níu símenntunarstöðvar á landsbyggðinni bjóða upp á fullorðinsfræðslu (t.d. Símenntunarstöð Vesturlands, Þekkingarnet Austurlands, Fræðslumiðstöð Vestfjarða, o.m.fl. • Endurmenntun í boði á háskólastigi • Endurmenntun HÍ • Opni háskólinn í HR • Hólaskóli • Háskólinn að Bifröst Steinn Jóhannsson
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins • Alþýðusamband Íslands(ASÍ) og Samtök atvinnulífsins(SA) stofnuðu fræðslumiðstöðina í des. 2002. • Hlutverk hennar er að vera samstarfsvettvangur stofnaðilanna um fullorðinsfræðslu og starfsmenntun í samstarfi við aðrar fræðslustofnanir á vegum aðildarsamtaka ASÍ og SA. • Fræðslumiðstöð atvinnulífsins er einkum fyrir fólk sem hefur ekki próf úr framhaldsskóla og vill bæta stöðu sína á vinnumarkaði Steinn Jóhannsson
Námslán • Lánasjóður íslenskra námsmanna (LÍN) veitir íslenskum nemendum lán til framhaldssnáms, aðallega á háskólastigi. • Framfærslutafla LÍN • Norðurlandabúar sem hafa dvalið hér í 2 ár eða lengur hafa sama rétt og íslenskir námsmenn. • Heimilt er að láta þetta ákvæði taka til annarra erlendra ríkisborgara ef íslenskir námsmenn njóta sömu réttinda í þeirra heimalandi. Steinn Jóhannsson
Forvarnir og forvarnarstarf á Íslandi • Árangusríkt samkvæmt niðurstöðum Rannsóknar og greiningar • Dæmi: Hlutfall 9.-10. bekkinga sem aldrei hefur drukkið áfengi hefur hækkað og var tæp 80% árið 2009, um 90% 9-10 bekkinga hefur aldrei orðinn drukkin(n) um ævina • Lögð æ ríkari áhersla á forvarnarstarf • fulltrúar fara í grunnskóla, lögregla, félagsþjónustan, heilsugæslan Reykjavík, o.fl. halda uppi öflugu forvarnarstarfi • Fulltrúar ÍTR eru í forvarnarnefndum í RVK. Steinn Jóhannsson
Bókasöfn og söfn • 57 bókasöfn starfrækt reglulega 2001 • 2.4 millj. útlána 2001 • Landsbókasafn-Háskólabókasafn stærst með rúmlega 900.000 bækur, tímarit og önnur gögn • 7 háskólabókasöfn 2004 með 66.000 útlán • 121 lista- og byggðasöfn starfrækt reglulega 2003. • Fjöldi gesta tæplega 1,2 millj. (684 þús. á höfuðborgarsvæði) Steinn Jóhannsson
Heimildir og lesefni • Hagstofa Íslands: www.hagstofa.is (Landshagir 2005) • Árni D. Júlíusson, Jón Ó. Ísberg og Helgi S. Kjartansson (ritstj) 1993. Íslenskur söguatlas: Saga samtíðar – 20. öldin. Reykjavík: Iðunn. • Minjasvæði á Íslandi Steinn Jóhannsson