290 likes | 619 Views
Kraftur og hreyfing. 2. kafli. 2-1 Kraftur. Kraftur verkar á hlut og veitir honum orku þannig að hann tekur að hreyfast, hættir að hreyfast eða breytir hraða sínum. Kraftur er mældur í njútonum (N). Njúton er þ.a.l. einingin fyrir kraft í SI kerfinu.
E N D
Kraftur og hreyfing 2. kafli
2-1 Kraftur • Kraftur verkar á hlut og veitir honum orku þannig að hann tekur að hreyfast, hættir að hreyfast eða breytir hraða sínum. • Kraftur er mældur í njútonum (N). Njúton er þ.a.l. einingin fyrir kraft í SI kerfinu. • Eitt njúton er sá kraftur sem þarf til þess að gefa hlut með massann 1 kg. hröðunina 1 m/sek2
Dæmi: • Hversu mikinn kraft þurfum við til að ýta af stað sleða sem er 10 kg. Við ætlum að breyta hraða hans úr 0 m/sek í 5 m/sek á einni sekúndu. • Mundu: Kraftur er massi hlutar margfaldaður með hraðabreytingu á tíma • Við þurfum því að margfalda massann með hraðabreytingunni, 10kg. x 5 m/sek = 50N
Prófaðu sjálf/ur • Prófaðu sjálf/ur • Hvað þarftu mikinn kraft til að ýta þér af stað á skíðum, ef þú ert 55 kg. og þú ætlar að fara úr kyrrstöðu (0 m/sek) í 30m/sek á einni sekúndu? • Svar:________________________________
Gormvog • Gormvog er notuð til að mæla kraft. • Kraftur er mældur í njútonum • (Newton á ensku, eftir enska eðlisfræðingnum Isaac Newton).
Munur á massa og þyngd • Massi er mælikvarði á efnismagn og er mældur í kg. • Þyngd er mælikvarði á það hversu mikill þyngdarkraftur verkar á hlut. Þar sem þyngd er kraftur er hún mæld í njútonum. • Þyngdarkrafturinn er 9.8 njúton á jörðinni og margföldum við því massa okkar með þyngdarkraftinum og fáum út þyngd í njútonum. • Dæmi: Hver er þyngd 80 kg. manns í njútonum? • 80 kg x 9,8N = 784 N
2-1 Kraftur Núningur: • Er kraftur sem hamlar gegn hreyfingu hlutar, þ.e. veldur því að hlutur á hreyfingu hægir á sér og stöðvast • 3 megin gerðir núnings: • Renninúningur (milli 2 fastra flata) • Veltinúningur (á mótum veltandi hlutar og undirstöðu) • Straummótstaða (milli hlutar og straumefnis, t.d. báts í vatni eða flugvélar í lofti)
2-2 Kraftar í straumefnum Straumefni: • Vökvar • Lofttegundir Straumefni skapa krafta: • Núning (straummótstaðan) • Þrýsting (kraftur sem verkar á ákveðinn flöt: Newton á fersentimetra, þ.e. N/cm2) • Flotkraft (lyftikraftur sem verkar á hlut í straumefni)
Flotkraftur Lítill kraftur verkar á efra borð hlutarins Kraftur (þrýstingur) eykst með dýpi Mikill kraftur verkar á neðra borð hlutarins og ýtir honum upp
Flotkraftur 2. • Þegar hlutur er á kafi í vatni verkar flotkraftur þannig að hann ýtir hlutnum upp, á móti þyngdarkraftinum sem dregur hlutinn niður • Stærð flotkraftsins ákveður hvort hlutur flýtur eða sekkur:flotkraftur minni en þyngd hlutarins hluturinn sekkurflotkraftur meiri en þyngd hlutarins hluturinn flýtur
Flotkraftur á hlut = Þyngd þess vökva sem hluturinn ryður frá sér Hlutur flýtur í vökva ef eðlismassi hlutarins er minni en eðlismassi vökvans Lögmál Arkímedesar
Lögmál Arkímedesar frh. • Eðlismassi er hlutfallið milli massa efnis og rúmmáls þess. • Eðlismassi = Massi Rúmmál • Hægt er að tengja lögmál Arkimedesar við hugtakið um eðlismassa. Hlutur flýtur í vökva ef eðlismassi hlutarins er minni en eðlismassi vökvans.
Vökvaknúin tæki • Þrýstingur sem verkar á einum stað í vökva dreifist jafnt um allan vökvann • Vökvahemlar og vökvalyftarar byggjast á því að þrýstingur verkar jafnt til allra hliða, Þess vegna getur kraftur sem verkar í lítinn flöt vökvans valdið gríðarmiklum krafti á margfalt stærri flöt. Þrýstingur
Lögmál Bernoullis 4 ólíkir kraftar verka á flugvél á flugi: Þyngd Viðnám Knýr Lyftikraftur
Lögmál Bernoullis • Loftið fer hraðar, minni þrýstingur • Þrýstingur í vökva/lofti á hreyfingu er minni en í vökva/lofti sem hreyfist ekki. Því hraðar sem vökvi/loft streymir því minni verður þrýstingurinn sem hann skapar
Lögmál Bernoullis • Lyftikraftur (þrýstikraftur): • Krafturinn sem verkar á flugvélavængi og lyftir vélunum upp • Þegar flugvél flýgur í jafnri hæð er þrýstikrafturinn jafn þyngd flugvélarinnar (kraftinum sem togar vélina niður til jarðar) • Knýr (spyrna): • Kraftur sem verkar á flugvél í lofti og spyrnir henni áfram • Viðnám (loftmótstaða): • Kraftur sem verkar í andstæða átt við knýinn og dregur því úr hraða flugvélar
2-3Vinna, orka og afl • Vinna er notað yfir það þegar kraftur færir hlut úr stað (hluturinn er dreginn, honum ýtt eða kastað) • Vinna = kraftur x vegalengd • Mælieiningin fyrir vinnu hefur 2 nöfn: • Newtonmetri (skammstafað Nm) • Júl (Joule) (skammstafað J) • 1 Nm = 1 J
Afl • Afl er mælikvarði á hversu hratt vinna er unnin, það er, hversu mikil vinna fer fram á tiltekna tímaeiningu • Afl = vinna = orka tími tími • Afl = kraftur x vegalengd tími • Mælieiningin fyrir afl er watt (W).1 W = 1 Júl á sekúndu = 1 J/sek • Dæmi: 60 W ljósapera skilar vinnu sem nemur 60 júlum á sekúndu
Spreytið ykkur • Helga ætlar að færa kennaraborðið um 5 metra. Það tekur hana nákvæmlega 10 sekúndur og hún þarf að nota 100N kraft til þess. • Hversu mikið afl notar hún? • Svar:_______________________________
2-4 Vélar • Vél er tæki sem léttir mönnum vinnu með því að breyta stærð eða stefnu þess krafts sem beitt er við vinnuna • Tvenns konar kraftar koma við sögu í vélum: • Inntakskraftur: sá kraftur sem beitt er á vélina • Skilakraftur: sá kraftur sem vélin skilar frá sér
Vélar 2. Kraftahlutfall: • skilakrafturinntakskraftur • segir til um hversu oft vél margfaldar inntakskraftinn inntakskraftur skilakraftur
Vélar 3. Vélar margfalda kraftinn, en sú vinna sem vél skilar verður aldrei meiri en sú vinna sem beitt er á vélina Nýtni er samanburður á inntaksvinnu og úttaksvinnu: • Nýtni er aldrei meiri en 100% Núningur kemur alltaf í veg fyrir það að nýtni vélar sé 100% - nýtnin er alltaf minni • Hagkvæmustu vélarnar eru þær sem hafa besta nýtni og því er mikilvægt að minnka núning með smurningsefnum
Vélar 4. • Einfaldar vélar framkvæma vinnu með einni hreyfingu. • Samsettar vélar eru gerðar úr tveimur eða fleiri einföldum vélum
Einfaldar vélar 1. Vogarstöng: • Stöng sem snýst um fastan punkt (vogarásinn) skilakraftur vogarstöng inntakskraftur
Einfaldar vélar 2. Trissa (talía): • Band sem brugðið er um hjól • Verkar á tvennan hátt: • Getur breytt stefnu krafts (föst trissa) • Getur breytt stærð krafts (hreyfanleg trissa) Föst trissa
Einfaldar vélar 3. Hjól og ás: • Hjól er kringlóttur hlutur sem snýst um minni kringlóttan hlut, ásinn • Ef krafti er beitt á hjólið, margfaldast hann við ásinn inntaks-kraftur skilakraftur
Einfaldar vélar 4. Skáborð: • Skáborð er beinn, hallandi flötur • Notaður til að koma hlutum upp á hærra svæði • Hluturinn fer lengri leið, en þá þarf líka minni inntakskraft til að koma honum upp Maðurinn þarf að koma steininum efst í rennibrautina. Á hann að lyfta steininum beint upp? Eða á hann að ýta honum upp rennuna?
Einfaldar vélar 5. Fleygur: • Tveir sléttir fletir sem mætast í hvössu horni – egginni • Þegar krafti er beitt á fleyginn, verður skilakrafturinn við eggina mikill • Við brýnum hnífa til að þynna eggina og stækka þar með kraftahlutfallið – þá þarf minni inntakskraft til að fá mikinn skilakraft
Einfaldar vélar 6. Skrúfa: • Skrúfa er í raun skáborð sem búið er að vefja um sívalning • Skrúfa fer því í raun langa vegalengd til að auka kraftahlutfallið. Það þarf mikinn kraft til að koma skrúfunni á kaf í spýtu, en með því að notfæra sér skáborðið getum við gert þetta með handafli!