240 likes | 374 Views
Alltaf er hann fallegur fjörðurinn. Viðfangsefnin ekki uppbyggileg frá síðasta aðalfundi. Afleiðingar bankahruns Birgðasöfnun Framvirkir samningar Niðurskurður aflaheimilda Áform um eignaupptöku. Niðurskurður aflaheimilda. Ótrúleg ákvörðun um niðurskurð á þorski
E N D
Viðfangsefnin ekki uppbyggileg frá síðasta aðalfundi. • Afleiðingar bankahruns • Birgðasöfnun • Framvirkir samningar • Niðurskurður aflaheimilda • Áform um eignaupptöku .
Niðurskurður aflaheimilda • Ótrúleg ákvörðun um niðurskurð á þorski • Illskiljanlegt með ufsann og grálúðuna • Fyrirtækin búin að fækka skipum. • Heimildir frá fyrra ári,nýttar til þess að treysta atvinnu þess fólks ,sem hjá fyrirtækinu starfar en ekki til þess að leigja öðrum.
Ekki sama hver er • Strandveiðikerfinu hleypt af stokkunum. • Ekki þarf lengur af fara að tillögum Hafró varðandi þorskinn. • Nauðsynlegt að bera saman skatttekjur sveitarfélaganna, eftir því í hvoru kerfinu þorskurinn er veiddur.
Endalaus niðurskurður aflaheimilda • Hér virðast margir fiskistofnar vera að dragast upp. • Fiskistofnar í Barentshafi dafna sem aldrei fyrr • Í hverju liggur munurinn? • Stækkandi hvalastofnar á Íslandsmiðum? • Erum við að taka of mikið úr fæðukeðjunni ( Gulldeplan )? • Náttúrulegar aðstæður.? • Skekkja í reiknilíkunum.?
Misvísandi rök stjórnvalda fyrir eignaupptöku í sjávarútvegi • Sjávarútvegurinn á hausnum og allur í eigu bankanna,hvort sem er. • Afkomubati sjávarútvegsins vegna gengisbreytinga hleypur á tugum milljarða. • Gengisfellingin hefur fært peninga frá launamönnum til sægreifanna. • Atvinnugrein sem ekki þolir innköllun heimilda og auðlindaskatt er ekki á vetur setjandi. • Atvinnugrein sem ekki getur lagt til samfélagsins er ekki upp á marga fiska.
Er þetta sýn og viðhorf stjórnvalda á sjávarútveg á Íslandi í dag og þátt hans í þeirri nauðsynlegu uppbyggingu í þjóðfélaginu sem framundan er ?
Mikil fjárfestingarþörf í sjávarútvegiFISK sem dæmi: • Aflaheimildir kr. 4.380 milljónir • Fiskiskip 775 milljónir • Vélar og tæki 423 milljónir • Fasteignir 614 milljónir.
Gengisfelling hefur fært peninga frá launamönnum til sægreifanna. • Veiking krónunnar hefur sínar jákvæðu hliðar. • Afkoma veiða og vinnslu hefur stór batnað. • Laun sjómanna hafa hækkað mikið. • Skatttekjur sveitarfélaga, þar sem sjávarútvegur skipar stóran sess eru að hækka mikið þessa mánuði, meðan önnur mynd blasir við öðrum sveitarfélögum.
Sægreifarnir í FISK • KS 120 ára gamalt samvinnufélag • Félagsmenn 1575 • Kostar 100 kr. að gerast sægreifi í Skagafirði.
Atvinnugrein sem ekkert leggur til samfélagins ( Samfélagsleg ábyrgð) • 50 ára sýn • Háskólinn á Hólum • Matís • Nýsköpunrmiðstöð • Iceprotein ehf.
Atvinnugrein sem ekkert leggur til samfélagins ( Samfélagsleg ábyrgð) • Framlög til skólamála( sáttmálasjóður) • Framlög til menningarmála. • Framlög til æskulýðs og íþróttamála
Samfélagsleg ábyrgð • Sumum ferst en öðrum ekki: • Embættismenn í Rvík.með ráðherrann í fararbroddi leggja til að yfir 600 ára gamalt embætti Sýslumanns í Skagafirði verði lagt niður og það án nokkurar umræðu. • Sýslumannsembættin gætu hæglega tekið að sér , stóran hluta af eftirlitsstörfum fiskistofu. • Hver sýnir samfélagslega ábyrgð.
Hóflegur auðlindaskattur • Sjávarútvegurinn eina atvinnugreinin sem greiðir auðlindagjald ( hvers vegna) • Landsbyggðarskattur. • Keppir við niðurgreiddan sjávarútveg í öðrum löndum og önnur matvæli. • Mikill kostnaður vegna fjarlægðar frá markaði og óhagkvæmni í flutningum til og frá landinu. • Miðstýringaráform stjórnvalda blómstra sem aldrei fyrr. • Peningunum betur varið í heimabyggð, með hag íbúanna á svæðinu í huga. • Fullt af rannsóknar og þróunarverkefnum framundan. Fyrirtækin kalla til sín menntað fólk út um allt land og gera þar með góð samfélög enn betri.
Eignaupptaka. Innköllun veiðiheimilda • Lamandi áhrif frá fyrsta degi. • Veiðiheimildirnar oft einu veðhæfu eignirnar úti um land, sem bankar taka gildar og innköllun þeirra því algjör eignaupptaka á stórum landssvæðum. • Sjávarútvegur á Íslandi í dag er ekki bara útgerð á einni trillu á sólbjörtum sumardegi. • Samkeppnishæfur íslenskur sjávarútvegur kallar á miklar fjárfestingar og slíkar ákvarðanir verða ekki teknar nema fyrirtækin hafi tryggan afnotarétt að auðlindinni til lengri tíma.
Hvað er til ráða: • Stjórnvöld afturkalli áformaða innköllun veiðiheimilda. • Stjórnvöld geri samning við núverandi handhafa veiðiheimilda um afnotarétt af auðlindinni næstu 25 árin. • Fundin verði leið til þess t.d.á 5 ára fresti að samningurinn verði framlengdur um næstu 25 ár þar á eftir. • Slíkur samningur styrkir eignarétt ríkisins yfir auðlindinni. • Skapar ríkinu möguleika við samningsgerðina að setja skilyrði t.d. 100% ísl. eignarhald fyrirtækjanna, sem kæmi í veg fyrir að Íslendingar tapi yfirráðum yfir þessum mikilvægu auðlindum.
Hvað er til ráða: • Fyrirtækin losnuðu við óvissuna sem hrjáð hefur atvinnugreinina til margra ára og tryggðu um leið atvinnuréttindi starfsmanna sinna. • Slíkur samningur skapaði fyrirtækjunum forsendur til þess að ráðast í nýjar fjárfestingar, á öllum sviðum : • Veiða • Vinnslu • Rannsókna og vöruþróunar • Sölu og markaðsmála.
Innköllun veiðiheimilda afturkölluð. • Sjávarútvegurinn getur tekið mikinn þátt í þeirri nauðsynlegu uppbyggingu sem þarf að eiga sér stað í þjóðfélaginu. • Í trausti þess að ríkið sjái að sér ætlar FISK að byggja nýtt hús til eflingar rannsóknar og þróunarstarfsemi á höfninni á Sauðárkróki. • Að sjálfsögðu er þá horft til langs tíma, en það er líka nauðsynlegt.
Verkefnin framundan: • Mynd sem almenningur og stjórnmálamenn hafa af ísl.sjávarútvegi er kolröng. • Okkur hefur ekki tekist að draga upp rétta mynd og því þarf að breyta. • Verkefnið snýr fyrst og síðast að fyrirtækjunum sjálfum sem í greininni starfa. • Einnig að samtökum eins og LÍU. • Áherslan á veiðarnar í umræðunni allt of mikil. • Vinnslan á lítið upp á pallborðið og enn síður markaðs og sölumál.
Samtök sjávarútvegsins: • Breyta um takt, stofna ný samtök sjávarútvegsins • Markmið þeirra að berjast fyrir hagsmunum sjávarútvegsins í heild • Veiða • Vinnslu • Sölu afurða. • Sérstaða ísl. sjávarútvegs er ekki síst, samtenging veiða, vinnslu og markaðsstarfs og þar mun styrkur hans verða til framtíðar ef rétt er á málum haldið.