1 / 22

Snorra-Edda Gylfaginning, kaflar 46-54

Snorra-Edda Gylfaginning, kaflar 46-54. Framhaldsskólinn á Húsavík Ísl 212 Herdís Þ. Sigurðardóttir. Úr Gylfaginningu. Kafli 46: Keppni Þórs og félaga í íþróttum Þór kemur ásamt föruneyti sínu til Útgarða. Útgarða-Loki tekur á móti samferðafólkinu í höll sinni.

zola
Download Presentation

Snorra-Edda Gylfaginning, kaflar 46-54

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Snorra-EddaGylfaginning, kaflar 46-54 Framhaldsskólinn á Húsavík Ísl 212 Herdís Þ. Sigurðardóttir

  2. Úr Gylfaginningu • Kafli 46: Keppni Þórs og félaga í íþróttum • Þór kemur ásamt föruneyti sínu til Útgarða. • Útgarða-Loki tekur á móti samferðafólkinu í höll sinni. • Hann býður Þór og liði hans að reyna sig við hans menn í íþróttum. • Loki úr liði Þórs reynir sig í kappáti við Loga úr liði Útgarða-Loka. • Svo fer að Loki tapar fyrir Loga • Þá er Þjálfa boðið að keppa á móti Huga úr liði Útgarða-Loka. • Þrjár atrennur eru háðar og tapar Þjálfi þeim öllum.

  3. Úr Gylfaginningu • Kafli 46: Keppni Þórs og félaga í íþróttum, frh. • Að lokum er Þór boðið að keppa. • Hann fær það verkefni að klára að drekkar úr drykkjarhorni nokkru. • Þór gerir þrjár tilraunir til að klára úr horninu en tekst það ekki. • Þá biður Útgarða-Loki Þór um að reyna að lyfta ketti sínum. • Þetta getur Þór ekki, hvernig sem hann reynir. Hann nær aðeins að lyfta einum fæti kattarins frá jörðu. • Að lokum er Þór boðið að reyna sig í glímu. Andstæðingur hans er fóstra Útgarða-Loka að nafni Elli. • Eftir miklar sviptingar nær kerling að koma Þór niður á annað hnéð.

  4. Úr Gylfaginningu • Kafli 47: Skilnaður Þórs og Útgarða-Loka • Næsta morgun býst Þór og föruneyti hans til brottfarar. • Þór er ekki ánægður og finnst hann hafa farið mikla sneypuför. • Þá segir Útgarða-Loki honum hið sanna um hvernig í öllu liggi. • Hann segist hafa gert Þór og félögum miklar sjónhverfingar. • Hann segist sjálfur hafa verið Skrýmir. • Þegar Þór reyndi að leysa nestisbagga Skrýmis hafði Útgarða-Loki bundið hann með járnbandi, Þór hafi bara ekki fundið festinguna á því. • Þegar Þór barði Skrými í hausinn með Mjöllni hafði hann í rauninni barið í setberg. Úr þeim höggum urðu miklir dalir.

  5. Úr Gylfaginningu • Kafli 47: Skilnaður Þórs og Útgarða-Loka, frh. • Logi, sem Loki háði kappát við, var í raun villieldur sem brenndi bæði trogið sem etið var úr og matinn í því. • Hugi, sem Þjálfi atti kapphlaup við, var hugur Útgarða-Loka. • Þegar Þór var boðið að drekka úr drykkjarhorninu sá hann ekki að annar endi hornsins var úti í sjó. Þór náði að drekka svo mikið af sjónum að til urðu fjörur. • Kötturinn sem Þór reyndi að lyfta var Miðgarðsormur og náði Þór að hefja hann mjög hátt upp. • Þegar Þór glímdi við gömlu kerlinguna var hann í raun að glíma við elli. Hún fellir alla að lokum en náði aðeins að koma Þór niður á annað hnéð. • Þegar Þór heyrir þetta reiðist hann mjög og bregður hamrinum á loft. • Þá hverfur hins vegar Útgarða-Loki og allt ríki hans fyrir sjónum Þórs.

  6. Úr Gylfaginningu • Kafli 48: Veiðiför Þórs • Gangleri spyr hvort Þór hafi aldrei hefnt sneypufarar þeirrar er hann fór til Útgarða-Loka. • Hár segir að það hafi hann eitt sinn gert. • Hann dulbjó sig sem ungan dreng og fór til Hymis jötuns. • Hann bað um að fá að róa til fiskjar með honum. • Hymi leist í fyrstu ekki á að róa með svo ungum pilti en tók að lokum við Þór. • Þór skar höfuðið af uxanum Himinhrjóðri til að hafa sem beitu. • Þór réri langt út á haf, mun lengra en Hymir taldi óhætt. • Hann renndi færi sínu í sjóinn og Miðgarðsormur beit á agnið. • Þór bjó sig undir að lemja með Mjöllni í höfuð ormsins en Hymir varð svo hræddur að hann skar á línuna sem ormurinn hékk í. • Ormurinn slapp en Þór reiddist svo mikið að hann sló Hymi. • Höggið var svo mikið að Hymir steyptist á hausinn í sjóinn svo að iljar hans vísuðu upp.

  7. Úr Gylfaginningu • Kafli 49: Dauði Baldurs • Gangleri spyr út í fleiri þrekvirki ása. • Hár segir að Baldur hafi dreymt að líf hans væri í hættu og sagt ásum frá því. • Frigg fór á stúfana og tók grið af öllum hlutum sem henni datt í hug að gætu grandað Baldri. • Eftir þetta gerðu æsir sér að leik að skjóta alls konar hlutum að Baldri enda beit ekkert á hann. • Loka Laufeyjarsyni leiddist þetta mjög. • Hann brá sér í líki konu og spurði Frigg hvort það væri virkilega ekkert sem gæti grandað Baldri. • Frigg sagði að það eina sem hún hefði ekki beðið um grið handa Baldri hefði verið mistilteinn sem yxi vestur af Valhöll. • Henni hafi þótt jurtin of ung til að vinna slík heit.

  8. Úr Gylfaginningu • Kafli 49: Dauði Baldurs, frh. • Loki fór þá af stað, sleit upp mistilteininn og settti hann í hendur Heði hinum blinda. • Hann sagði honum að taka þátt í leiknum og skjóta á Baldur. • Höður gerði þetta og Baldur datt samstundis dauður niður. • Nú varð mikil sorg meðal ása. • Þau báðu Hermóð hinn hvata, son Óðins, að fara til Heljar og biðjast lausnar fyrir Baldur. • Hermóður lagði af stað á Sleipni en á meðan var útför Baldurs gerð.

  9. Úr Gylfaginningu • Kafli 49: Dauði Baldurs, frh. • Til stóð að flytja lík Baldurs til sjávar á skipi hans, Hringhorna. • Þegar ekki tókst að koma skipinu á flot var sent eftir tröllkonu úr Jötunheimum að nafni Hyrrokkin. • Hún kom ríðandi á úlfi og hafði snák fyrir taum. • Hún gat komið skipinu á flot. • Þegar lík Baldurs var borið í skipið sprakk eiginkona hans, Nanna Nepsdóttir, af harmi. • Hún var borin á bál.

  10. Úr Gylfaginningu • Kafli 49: Dauði Baldurs, frh. • Að þessari brennu komu margar verur: • Óðinn kom ásamt Frigg, valkyrjum sínum og hröfnum. • Freyr kom akandi í kerru sem gölturinn Gullinbursti dró. • Freyja kom akandi í kerru sem kettir hennar drógu. • Hrímþursar og bergrisar komu einnig. • Óðinn lagði á bálið gullhringinn Draupni sem var þeirrar náttúru að níundu hverja nótt urðu til af honum átta jafnþungir hringir.

  11. Úr Gylfaginningu • Kafli 49: Dauði Baldurs, frh. • Hermóður kom nú til Heljar og bað um að Baldur fengi að snúa aftur frá Helheimi. • Hel svaraði því til að ef allir hlutir, dauðir og lifandi, fengjust til að gráta Baldur, myndi hann fá leyfi til að snúa til baka. • Hermóður bar ásum skilaboðin frá Hel og sendimenn ása báðu alla hluti um að gráta Baldur. • Tröllkonan Þökk neitaði hins vegar að gráta Baldur. • Svo er sagt að Loki Laufeyjarson sé sá sem mest hafi gert illt meðal ása.

  12. Úr Gylfaginningu • Kafli 50: Refsing Loka • Gangleri spyr hvort Baldurs hafi ekki verið hefnt. • Hár segir honum að goðin hafi orðið Loka mjög reið. • Loki faldi sig í húsi uppi á fjalli nokkru en á dagin brá hann sér í laxlíki og hélt þar til í fossi sem hét Fránangursfoss. • Goðin urðu vör við þetta og bjuggu sér til net. • Þór náði að fanga Loka með því að grípa um aftari hluta hans og nam höndin staðar við sporðinn. • Er þetta ástæðan fyrir því að laxinn er afturmjór. • Goðin fóru með Loka í helli nokkurn.

  13. Úr Gylfaginningu • Kafli 50: Refsing Loka, frh. • Synir Loka, Váli og Nari/Narfi, voru einnig teknir höndum. • Goðin brugðu Vála í úlfslíki og létu hann tæta bróður sinn í sig. • Síðan bjuggu þau til fjötra úr þörmum Narfa og bundu Loka með þeim yfir þremur eggsteinum. • Stóð einn eggsteinninn undir herðum Loka, annar undir mjöðmum hans en hinn þriðji undir hnjánum á honum. • Þessir fjötrar urðu svo að járni.

  14. Úr Gylfaginningu • Kafli 50: Refsing Loka, frh. • Skaði, kona Njarðar, festi eiturorm yfir Loka svo að eitrið úr honum drýpur nú í andlit hans. • Sigyn, kona Loka, situr svo með skál yfir manni sínum og drýpur eitrið úr orminum í hana. • Þegar skálin fyllist þarf Sigyn hins vegar að skvetta úr henni og þá drýpur eitur í andlit Loka. • Hann engist svo mikið um þegar þetta gerist að það verður jarðskjálfti.

  15. Úr Gylfaginningu • Kafli 51: Ragnarök • Gangleri spyr nú út í ragnarök. • Hár segir að fyrirboðar ragnaraka séu nokkrir. • Fyrst koma þrír harðir vetur og ekkert sumar á milli þeirra. • Síðan koma þrír vetur þar sem mikið verður um orrustur. Bræður munu berjast vegna ágirni og enginn mun vægja skyldmennum sínum. • Að lokum munu úlfar gleypa sólina og tunglið. Stjörnur hverfa af himni, jörðin skelfur, skógar eyðast, björg hrynja og allir fjötrar losna.

  16. Úr Gylfaginningu • Ragnarök, frh. • Miðgarðsormur færist í jötunmóð og sækir upp á land. • Naglfar losnar. Hrymur heitir jötunninn sem stýrir því. • Fenrisúlfur losnar og fer með gapandi munni. Ber efri skoltinn á honum við himin en hinn neðri við jörðu. Eldur brennur úr augum hans og nösum. • Miðgarðsormur blæs eitri yfir lönd og höf. • Himinninn rofnar og Múspellssynir koma ríðandi. • Surtur ríður fyrst og honum fylgir brennandi eldur. • Sverð Surts er mjög gott.

  17. Úr Gylfaginningu • Kafli 51: Ragnarök, frh. • Þegar þessi mikli óaldarflokkur ríður yfir Bifröst brotnar hún. • Múspellssynir sækja fram á völl sem heitir Vígríður og er geysistór. • Þar sameinast Múspellssynir Fenrisúlfi, Miðgarðsormi, Loka, Hrymi, öllum hrímþursum og Heljarsinnum. • Þegar þessi tíðindi verða blæs Heimdallur í Gjallarhorn og vekur öll goðin og einherjana. • Goðin ráða ráðum sínum og Óðinn ráðfærir sig við Mímisbrunn. • Askur Yggdrasils skelfur og enginn hlutur á himni eða jörð er óttalaus.

  18. Úr Gylfaginningu • Kafli 51: Ragnarök, frh. • Æsir hervæðast og halda til orrustu. • Óðinn berst við Fenrisúlf. • Óðinn fellur en Víðar hefnir föður síns. Hann stígur í kjaft úlfsins á sínum góðum skóm, rífur hann í sundur og drepur þar með úlfinn. • Þór berst við Miðgarðsorm. • Þór drepur orminn en fellur svo sjálfur vegna eiturgufanna frá honum. • Freyr berst við Surt. • Freyr fellur enda er hann sverðlaus. • Týr berst við hundinn Garm. • Þeir fella hvor annan. • Loki og Heimdallur berjast. • Þeir fella hvor annan. • Surtur brennir svo alla jörðina.

  19. Úr Gylfaginningu • Kafli 52: Ragnarök • Gangleri veltir því nú fyrir sér hvað taki við þegar þessi ósköp eru yfirstaðin. • Hann minnir á að áður hefur verið sagt að allir menn skuli eiga eilíft líf í öðrum heimi eftir dauðann í þessum heimi. • Þriðji segir að framhaldslífið sé misgott eftir því í hvaða heimi maður lendir eftir dauðann.

  20. Úr Gylfaginningu • Kafli 52: Ragnarök, frh. • Best er að lenda á Gimli. • Þar er (bjór)salurinn Brimir á fjallinu Ókólni. • Þar er einnig annar góður salur sem heitir Sindri. Hann stendur á Niðafjöllum og er úr rauðagulli. • Í þessum sölum fá góðir og siðlátir menn vist. • Á Náströndum er mikill og illur salur. • Dyr hans vísa í norður og hann er fléttaður úr ormahryggjum. • Ormahöfuðin vísa inn og blása eitri um salinn. • Eftir salnum renna eiturár og þær þurfa morðingar og meinsærismenn að vaða. • Verst er hins vegar að lenda í Hvergelmi. • Þar kvelur Níðhöggur hina látnu.

  21. Úr Gylfaginningu • Kafli 53: Ragnarök • Gangleri spyr nú hvort nokkur goð lifi ragnarökin af og hvort jörð og himinn verði til eftir þau. • Hár segir að jörðinni skjóti upp aftur úr sænum og þá verði hún græn og fögur. • Víðar og Váli lifa ragnarök af og hefja uppbyggingu á Iðavelli þar sem Ásgarður stóð áður. • Þá koma einnig Móði og Magni, synir Þórs, en þeir varðveita Mjöllni. • Baldur og Höður koma jafnframt frá Hel. • Haldinn er fundur þar sem fortíðin er rædd. • Gulltöflurnar, sem æsir höfðu áður átt, finnast í grasinu. • Sól hefur getið dóttur sem er jafnfögur henni. • Hún fetar sömu braut og móðir hennar gerði áður.

  22. Úr Gylfaginningu • Kafli 53: Ragnarök, frh. • Hár segir Ganglera að nú sjái hann ekki lengra fram í tímann en biður hann að njóta þess sem hann lærði. • Kafli 54: Ragnarök • Gangleri heyrir mikinn dyn og skyndilega er hann einn. • Höllin er horfin og sagnamennirnir, Hárl, Jafnhár og Þriðji, sömuleiðis. • Gangleri fer aftur í ríki sitt og segir frá því sem hann hefur lært. • Þessar sögur ganga svo mann fram af manni.

More Related