90 likes | 296 Views
Hlutverk okkar. Hlutverk Slysavarnafélagsins Landsbjargar er að sinna björgunar-, slysavarna- og fræðslustarfi. Hver erum við. Slysavarnafélagið Landsbjörg eru skipulögð heildarsamtök sjálfboðaliða á landsvísu um slysavarnir og björgunarstörf.
E N D
Hlutverk okkar Hlutverk Slysavarnafélagsins Landsbjargar er að sinna björgunar-, slysavarna- og fræðslustarfi.
Hver erum við • Slysavarnafélagið Landsbjörg eru skipulögð heildarsamtök sjálfboðaliða á landsvísu um slysavarnir og björgunarstörf. • Félagsmenn eru um 18.000 og koma úr öllum stigum þjóðfélagsins. • Félagið hefur yfir að ráða, búnaði, þekkingu, reynslu og faglegri hæfni til að annast slysavarnir, stýra aðgerðum og takast á við leit og björgun á landi og sjó. • Rekstur félagsins byggir á sjálfsaflafé og styrkjum.
Gildin okkar • Fórnfýsi Störf okkar byggja á fórnfýsi og hjálpsemi við landsmenn og hvort annað. Við erum fús til að leggja alltaf allt í sölurnar fyrir þá sem á þurfa að halda. • Fagmennska Við erum traustsins verð og vinnubrögð okkar einkennast af fagmennsku. • Forysta Við erum öflug liðsheild og sýnum metnað og frumkvæði í störfum okkar með það að markmiði að verða í forystu á okkar sviði.
Framtíðarsýn og markmið næstu 5 ára • Slysavarnafélagið Landsbjörg ætlar: • að byggja upp öflugri björgunarsveitir • Aukin þjálfun • Aukið námskeiðshald og fræðsla til félagsmanna • Áhersla á þróun björgunarbúnaðar • að efla slysavarnir • Með aukinni áherslu á slysavarnir barna með fræðslu í skólum • Umferðarmál • Slysavarnir ferðamanna • Með auknum slysavörnum aldraðra • að gefa fleirum tækifæri til að starfa með félaginu • Efla nýliðun allra þjóðfélagshópa • Gera átak í að nálgast kvenna starfsstéttir
Framtíðarsýn og markmið næstu 5 ára • að efla unglingastarfið • Koma á tengingu við skólakerfið • Efla útivistarstarfið • Stuðla að unglingastarfi um land allt • að efla Slysavarnaskóla sjómanna og auka öryggi sjófarenda • Að auka framboð og fjölbreytni af námskeiðum sbr. árangursmarkmið skólans • Bæta aðstöðu fyrir verklegar æfingar • að efla Björgunarskólann • Fá viðurkenningu skólakerfisins • Koma upp matskerfi á þekkingu og reynslu • Fjölga starfsmönnum skólans og framboði námskeiða
Framtíðarsýn og markmið næstu 5 ára • að starfsrækja öflugar höfuðstöðvar sem styðja við starfsemi félagsins • Starfsmenn í afgreiðslu fái þjálfun og fræðslu um alla starfsemi félagsins • Ný og betri heimasíða • Vera til fyrirmyndar, sýnileg og fylgja siðareglum • Fræðsla til almennings (opin hús,sjónvarpsþættir, greinarskrif, heimasíða o.fl.) • Merkingar og fatnaður séu í lagi (fræðsla) • Setja upp vinnuhóp um framkvæmd erindrekstrar • Setja upp vinnuhóp um framkvæmd vegna fatnaðarmála • Setja upp vinnuhóp um útgáfustarfsemi og upplýsingamiðlun • Setja upp vinnuhóp um starfsmannastefnu (starfsmannasamtöl, starfslýsingar, ráðningarstefnu og endurmenntun)
Framtíðarsýn og markmið næstu 5 ára • að auka upplýsingastreymi til almennings og félagsmanna • Með því að koma auknum upplýsingum um starfsemina á framfæri í fjölmiðlum og á heimasíðu (kvóti á starfsmenn að skrifa) • Nota nýja heimasíðu sem grunnupplýsingaveitu félagsins • Fjöldasendingar með tölvupósti um almenn málefni eða til að minna á verði notaðar í meira mæli en áður