310 likes | 474 Views
Rannsóknir og þróun þekkingar á háskólasjúkrahúsi. Heilbrigðisþing 7. nóvember 2003 Guðmundur Þorgeirsson. Háskólasjúkrahús. Er líklegt að hlutverk háskólasjúkrahússins breytist á næstu árum? Fara rannsóknir og þekkingarþróun annað? Fyrirtæki? Sérstakar rannsóknarstofnanir?
E N D
Rannsóknir og þróun þekkingar á háskólasjúkrahúsi Heilbrigðisþing 7. nóvember 2003 Guðmundur Þorgeirsson
Háskólasjúkrahús • Er líklegt að hlutverk háskólasjúkrahússins breytist á næstu árum? • Fara rannsóknir og þekkingarþróun annað? • Fyrirtæki? • Sérstakar rannsóknarstofnanir? • Sjúkrahús ótengd háskólum?
Háskólasjúkrahús • Jafnframt því sem þjónusta er innt af hendi við rúmstokk, á aðgerðarstofu, í göngudeild eða á bráðamóttöku • fer fram kennsla
Háskólaspítali • Þjónusta – Kennsla – Rannsóknir Samofnir starfsþættir Uppbygging, skipulag, stjórnun og starfshættir stefna að samþættingu Allt á sama rúmstokknum
Háskólaspítali • Flókin stofnun með fjölbreytilegar skyldur • Þjónusta: Allir hugsanlegir sjúkdómar og allt litróf sjúklinga • Kennsla: Allar heilbrigðisstéttir • Rannsóknir • Lykilorð: Þekking
Háskólaspítali • Frjó og gagnvirk starfstengsl • Ný grunnþekking mótar þjónustuna • Klínisk vandmál verða kveikja rannsókna • Kennsla fer fram á vettvangi þjónustunnar
Gildi rannsókna fyrir spítalastarfið • Þar sem ný þekking verður til verður þekkingu • betur miðlað • betur hagnýtt og á gagnrýnni hátt • Virkar rannsóknir • laða að hæfasta vinnuaflið • tryggja háan gæðastaðal á allri starfseminni • Hin akademiska starfsemi styrkir spítalann sem þjónustustofnun
Annað módel • Sérhæfður spítali með enga unglækna og enga læknanema • Áhersla á • Hágæðaþjónustu • Hátækniþjónustu • Skilvirkni og afköst • Oft ríkulegir fjármunir til rannsókna • Eykur trúverðugleika • Laðar að hæfa (þekkta) starfsmenn • Engin kennsla
Vandamál • Hvaðan koma hinir þrautþjálfuðu sérfræðingar framtíðar? • Hagnýting þekkingar aðskilin frá miðlun þekkingar • Skammtímamarkmið. Rjómabú sem fleyta rjómann ofan af • Rányrkja. Unnt að stunda um skamman tíma en leiðir til uppblásturs og jarðvegseyðingar
Háskólasjúkrahús munu halda velli sem rannsóknarstofnanir • Stofnanir og fyrirtæki ótengd háskólum munu taka að sér mikilvæg verkefni í heilbrigðis- og lífvísindum • Hlutverk þeirra er afmarkaðra • Þau sem dafna best hafa sterk háskólatengsl eða þróast yfir í háskólastofnanir • Háskólar hafa frá alda öðli verið samfélög helguð þekkingunni og þekkingarleitinni
Háskóli: Alþjóðlegt samfélag • “Háskólar hafa frá því á miðöldum kynt undir alheimsmenningu vísinda og fræða þar sem fólk lærir að skynja sig sem þátttakendur í samfélagi sem þekkir engin önnur landamæri en þau sem þekkingin á veruleikanum setur okkur. Þessi hugsunarháttur hefur smám saman fest rætur víða um heim... • Páll Skúlason, 2003
Að vera samkeppnisfær á alþjóðlega vísu • Rannsóknir snúast um nýja þekkingu • Ef maður er ekki samkeppnisfær á einhvern hátt þá er maður ekki með
Framtíðarsýn • Byggja á styrk • Draga úr veikleikum • Nýta tækifæri • Horfast í augu við ógnanir og bregðast við þeim
Styrkur • Alþjóðleg menntun og alþjóðleg tengsl. Margir hafa hlotið þjálfun í grunnvísindum í sinni framhaldsmenntun • Sérstaða á ýmsum sviðum - verðug verkefni • faraldsfræðilegar rannsóknir, ísl. erfðamengið • Stuttar boðleiðir • Tölvuvæðing almenn-einangrun hins ísl. vísindasamfélags löngu rofin
Styrkur • Áhugi og vilji almennings til þátttöku í margs konar rannsóknum, faraldsfræðilegum, erfðafræðilegum og meðferðarprófunum. • Viðhorfið: “Þetta reddast”.Hefur stundum stuðlað að þokkalegum árangri við fátæklega aðstöðu og bágan fjárhag.
Veikleiki • Smæð • samfélags • stofnana • rannsóknarhópa • rannsóknarsjóða • Astöðuleysi-jafnvel á stærstu stofnunum • Meðalmennska. Árátta lítilla samfélaga • Takmörkuð rannsóknarhefð (hobbý, lúxus, krydd í tilverunni-ekki mikilvæg skylda)
Veikleiki • Vantar dýrmæta hlekki í rannsóknarhópana. Stór hluti unga fólksins er erlendis við nám og störf. • Viðhorfið: “Þetta reddast”. Bæði styrkleiki og veikleiki.
Tækifæri • Rík þjóð getur stóraukið framlög til rannsókna án þess að herða sultarólina eða fórna félagslegum markmiðum. • Tækniþróun-iðnþróun-fyrirtæki-sprotar. • Heilbrigðiskerfið jarðvegur arðbærrar, nútímalegrar atvinnusköpunar. • Sameinaður háskólaspítali með stærri og öflugri deildir býður upp á nýja möguleika, meiri sérhæfingu, ný menntunar- og rannsóknartækifæri
Tækifæri • Öflugur háskólaspítali er eftirsóknarverður samstarfsaðili fyrir hverja þá stofnun eða fyrirtæki sem hyggst byggja rannsóknir á íslenskum efniviði. • Mannauður. Ekkert laðar fremur heim ungt hæfileikafólk en efling háskóla og annarra rannsóknarstofnana.
Tækifæri • Þverfaglegar rannsóknir-ríkuleg tækifæri. • Læknisfræði og verkfræði • Erfðafræði og lyfjafræði • Læknisfræði og siðfræði • Hjúkrunarfræði og félagsvísindi • Sjúkraþjálfun og lífverkfræði
Ógnanir • Hnignun almennrar vísindaþekkingar. Enginn vill kenna stærðfræði eða eðlisfræði. Gildir um öll skólastig. • Atgervisflótti. Veik samkeppnisaðstaða um besta fólkið. • Kostnaður við að vera samkeppnisfær vex. Öll aðstaða, tæki, bókakostur, tölvuforrit. • Búast má við rannsóknarþreytu meðal almennings
Ógnanir • Rannsóknir verði undir í starfi spítalans. • Þjónustan er kröfuhörð á tíma og athygli. • Afurðir rannsóknarstarfsins sjást ekki í bókhaldi spítalans en rekstrakostnaðurinn fær meginathygli • Skammtímasjónarmið (óþolinmæði) móta skipulag og knýja fram aðgerðir sem koma niður á rannsóknum og framtíðaruppskeru.
Hvað er brýnast • Efla grunnrannsóknir á LSH • Bæta umgjörð klíniskra rannsókna • Efla árangursrannsóknir • Efla rannsóknir sem lúta að öryggi sjúklinga og gæðamálum
Grunnrannsóknir • Leit að grundvallarskilningi • Hagnýting ekki á dagskrá þegar rannsóknarspurning er sett fram • Hagnýting oftast tímaspursmál • Vantar aðstöðu og fleira starfsfólk með þjálfun og getu til að takast á við grunnrannsóknir og skipulag sem ætlar mönnum tíma
Framtíðarsýn • Grunnvísindastofnun við LSH • Starfar í tengslum og samstarfi við rannsóknarstofnanir H.Í. en skapar aðstöðu fyrir klíniska starfsmenn spítalans til grunnrannsókna. • Sókn á rannsóknarsviði ætti að vera eitt af meginmarkmiðum hins sameinaðaháskólaspítala
Árangursrannsóknir • Nýting takmarkaðs fjármagns kallar á meiri rannsóknir á árangri þess sem við gerum – gagnreynsla • Framkvæmd klíniskra leiðbeininga lúti lögmálum vísindalegrar tilraunar
Árangursrannsóknir • Nýting takmarkaðs fjármagns kallar á meiri rannsóknir á árangri þess sem við gerum – gagnreynsla • Framkvæmd klíniskra leiðbeininga lúti lögmálum vísindalegrar tilraunar
Rannsóknir sem lúta að öryggi sjúklinga og gæðamálum • Faraldsfræði óæskilegra atburða • Vanrannsakað um allan heim • Forsenda alls gæðastarfs: Að vita hvað er að gerast