180 likes | 325 Views
Rannsóknamálstofa Viðskiptafræðistofnunar 10. febrúar 2011 Nýtt rannsóknarverkefni í mannauðsstjórnun. Snjólfur Ólafsson Prófessor í Viðskiptafræðideild. Formáli og yfirlit. Nokkur tilefni, m.a. Ingi Rúnar bætist í hópinn, en margir góðir eru þar fyrir
E N D
Rannsóknamálstofa Viðskiptafræðistofnunar 10. febrúar 2011Nýtt rannsóknarverkefni í mannauðsstjórnun Snjólfur Ólafsson Prófessor í Viðskiptafræðideild
Formáli og yfirlit • Nokkur tilefni, m.a. • Ingi Rúnar bætist í hópinn, en margir góðir eru þar fyrir • Áhugasamir doktorsnemar á sviði mannauðsstjórnunar • Endurnýjuð stefna deildarinnar • Ég þarf að velja mér fókus • Tvö áhugaverð umræðuefni: • Er æskilegt og mikilvægt að setja af stað stórt rannsóknarverkefni í deildinni? Þetta stendur ekki til að ræða hér! • Hvernig verkefni er vænlegt að setja af stað og hvernig? Spurningarnar á næstu glæru og málstofan snýst um þetta. • Fyrirkomulagið Vangaveltur Snjólfs og umræður í bland
Meðal spurninga Hvaða atriði eru lykilatriði til að stór rannsóknarverkefni takist vel? Hvernig væri heppilegt að skilgreina nýtt rannsóknarverkefni í mannauðsstjórnun, þ.e. afmarka viðfangsefnið? Hversu raunhæft er að fá stóra styrki í svona verkefni, úr hvaða sjóðum og hvernig er þá best að vinna að því? Er æskilegt að velja strax tímarit sem stefnt er að því að birta í og hver gætu þau verið í okkar tilviki? Er lykilatriði að vera sem fyrst í samstarfi við erlenda aðila og hverjir gætu það verið í okkar tilviki?
“Stórt” rannsóknarverkefni • Í mínum huga hefur stórt rannsóknarverkefni m.a. flest eða öll af eftirfarandi einkennum: • Nokkrir kennarar deildarinnar líta á það sem eitt af sínum meginverkefnum • Doktorsnemi eða nýdoktor tekur þátt í því • Samvinna við a.m.k. 2 útlendinga • Styrkir úr rannsóknasjóðum (> 10 m.kr.) • Greinar í fínum tímaritum
Um afmörkunina Hversu þröngt eða vítt á það að vera? Á að skilgreina einhvers konar rammaverkefni og í því væru nokkur undirverkefni? Á að byrja ansi vítt – jafnvel galopið – og síðan þrengja smátt og smátt? Hvenær er gott að stefna að því að skilgreiningu (afmörkun) verkefnisins ljúki?
Mögulegir þátttakendur? • Okkar deild • Ingi Rúnar Eðvarðsson Snjólfur Ólafsson • Gylfi Dalmann Aðalsteinsson Inga Jóna Jónsdóttir • Svala Guðmundsdóttir Fleiri kennarar? • Guðlaug Þóra Stefánsdóttir Sif Jónsdóttir • Fleiri doktorsnemar? • Aðrir á Íslandi • Ásta Bjarnadóttir • Arney Einarsdóttir • Fleiri? • Erlendir aðilar
Samvinna við útlendinga • Gagnið af því að vinna með útlendingum gæti verið • Auðveldara að finna mörk þekkingarinnar • Auðveldara að skilgreina góðar spurningar og verkefni • Meiri möguleikar á að fá styrki • Auðveldara að byggja upp gagnagrunn með alþjóðlegum gögnum • Auðveldara að skrifa mjög góðar greinar • Hvernig finna góða samstarfsmenn • Persónuleg tengsl • Nota ráðstefnur og félagasamtök (NFF, AOM, ...) • Leit með hjálp rannsóknaþjónustu HÍ, Félagsvísindastofnunar, ...
Erlendir samstarfsmenn • Við ættum að geta gert þokkalegan lista á viku • Fyrstu punktar • HRM Stracthclyde • HRM Ambassadors AOM • CBS • Ritstjóri HRM -Ítalíu og UK • Kannski gera lista með þessum atriðum: • Nafn og starfsvettvangur • Ástæður fyrir að viðkomandi er áhugaverður • Rannsóknaráhugasvið • Tengill í okkar hópi
Möguleg víð viðfangsefni Þekkingarstjórnun Fyrirtækjamenning Alþjóðleg mannauðsstjórnun ?
Möguleg þröng viðfangsefni Árangursmat, umbun og hvatning Ráðningar Árangursmælikvarðar og mannauðsstjórnun Útvistun og starfsmannamál Mannauðsstjórnun í smáfyrirtækjum Traust ?
Möguleg íslensk viðfangsefni Hver er sérstaða og sérkenni íslenskra starfsmannamála í alþjóðlegum samanburði? Hvaða módel einkennir íslenska mannauðsstjórnun? (Engilsaxneskt eða norrænt) Bera saman mannauðsstjórnun á Íslandi og á Írlandi Hvað einkennir mannauðsstjórnun þar sem frumvinnslugreinar eru áberandi í atvinnulífi? Hvað einkennir mannauðsstjórnun þar sem stuðningskerfi stjórnvalda miðast aðallega við frumvinnslugreinar? Hver eru áhrif efnahagshrunsins á mannauðsstjórnun í íslenskum fyrirtækjum? Hvaða fyrirtæki hafa ræktað mannauðinn í kreppunni og hvernig vegnar þeim í samanburði við fyrirtæki sem ekki rækta mannauðinn? Hver eru áhrif mikilla efnahagssveiflna á mannauðsstjórnun? Er munur á mannauðsstjórnun í löndum með lítinn heimamarkað borið saman við lönd með stóran heimamarkað?
Varðandi val á verkefni • Áhugaverðar niðurstöður fyrir útlendinga eru tvenns konar: • Bætt í göt í fræðunum (almennar niðurstöður eða ályktanir) • Samanburður milli landa, svæða eða annars konar hópa • Ekki bara um Ísland heldur niðurstöður úr nokkrum eða mörgum löndum, t.d. • Norðurlönd í samanburði við þekktar niðurstöður • Ísland, Malta og Nýja Sjáland í samanburði við þekktar niðurstöður • Eftirfarandi er mikilvægt: • Ljóst hvaða þekkingargat á að fylla • Nokkrir góðir einstaklingar sem mynda öflugan hóp • (Eru tveir fyrstu verkþættirnir myndun hóps og leit að þekkingargati?)
Velja fljótt tímarit? • Sýn mín: • Flestar rannsóknir eru áhugaverðar fyrir rannsakandann en ekki mjög áhugaverðar fyrir aðra • Það er erfitt og tímafrekt að fá góðar rannsóknarniðurstöður sem eru áhugaverðar fyrir alþjóðasamfélagið • Doktorsnemar eru oft lengi að finna mörk þekkingarinnar • Margir hafa fundið upp hjólið • Er það svo að ef fljótt eru valin góð tímarit, þá • sé auðveldara að skilgreina góðar rannsóknaspurningar? • séu meiri líkur á að það birtist fljótlega (< 2 ár) grein í góðu tímariti?
Tímarit - 1 • Topp tímarit í stjórnun/mannauðsstjórnun • Academy of management journal • Academy of managment review • International Human Resource Management • Human Resource management • Journal of Management • Human Resource Management Journal • Human Relations • Industrial relations • Administrative Science Quarterly
Tímarit - 2 • Miðlungs tímarit • European Management Journal • Employee Relations • Scandinavian Journal of Management • Íslensk tímarit • Tímarit um viðskipti og efnahagsmál • Tímarit um stjórnmál og stjórnsýslu • Bifröst Journal of Social Sciences • Íslenska þjóðfélagið • Open source journals • International Journal of business science and applied management • International Journal of Business and Management • Journal of Management Research
Styrkir • Hvor meginhugsunin er betri? • Sækjum um styrk og fáum pening • Skilgreinum gott rannsóknarverkefni og sækjum svo um styrk • Blasir við að sækja um verkefnastyrk hjá Rannís 1. júní og seinna í erlenda sjóði? • Hvaða erlenda sjóði? (Það liggur ekki á að svara þessu) • Er eftirfarandi góð tímaáætlun? • Febrúar: Íslenski hópurinn nokkuð ljós. Nokkrar hugmyndir um afmörkun. • Mars: Unnið að því að fá útlendinga í samstarf. • Apríl: Fræðilegt yfirlit og listi af mögulegum rannsóknaspurningum. • Maí: Umsókn skrifuð.
Verkþættir • Tveir fyrstu verkþættirnir sem þarf að vinna samtímis • Myndun hóps • Leit að þekkingargati • Næstu þættir sem hanga saman • Skrifa fræðilegt yfirlit • Skrifa styrkumsóknir • Svo byrjar hin eiginlega rannsókn • Gagnasöfnun og úrvinnsla • Spurningakannanir • Viðtöl • Önnur gögn • Greinaskrif • Og svo lokatakmarkið: Partý
Næstu skref? (Litla rauða hænan) • IRE og SÓ munu vinna að þessu eitthvað áfram • Kannski verður eitthvað úr þessu og kannski ekki • Gott ef fleiri verða virkir, strax eða síðar • Hugsanlega verður sótt um verkefnastyrk til Rannís fyrir 1. júní • Ekki endilega til að fá núna jákvætt svar • Til að setja tímamörk fyrir mótun verkefnisins • Svo að til verði fræðilegt yfirlit (sem WP) • Eigum við að hafa “samkeppni”: Finna eina eða tvær greinar sem geta virkað sem stuðningur við að skilgreina rannsóknaspurningar og afmarka viðfangsefni t.d. • Um erlendar niðurstöður sem áhugavert væri að fá íslenskar fyrir • Yfirlitsgrein sem dregur fram þörf á rannsóknum