170 likes | 477 Views
Íslensk málsaga Dregið til stafs, bls. 119-125. Framhaldsskólinn á Húsavík Ísl 212 Herdís Þ. Sigurðardóttir. Dregið til stafs.
E N D
Íslensk málsagaDregið til stafs, bls. 119-125 Framhaldsskólinn á Húsavík Ísl 212 Herdís Þ. Sigurðardóttir
Dregið til stafs Í flestum löndum setja menn á bækur annað tveggja þann fróðleik, er þar innan lands hefir gjörst, eða þann annan, er minnissamlegastur þykir, þó að annars staðar hafi heldur gjörst, eða lög sín setja menn á bækur, hver þjóð á sína tungu. Fyrsta málfræðiritgerðin
Sögulegur tími • Sögulegurtími hefst um 3000 f.Kr. Þegar Súmerar taka upp ritlistina. • Súmerar bjuggu þar sem nú heitir Írak. • Skriftarkunnáttan gerir mönnum kleift að varðveita reynslu sína á bókum og miðla henni þannig frá kynslóð til kynslóðar. • Ritlistin varð til hjá akuryrkjuþjóðum sem þurftu að færa bókahald yfir birgðahald sitt. • Kóngar létu líka skrifa frásagnir af merkum atburðum.
Hvers konar skrift er til? • Atkvæðaskrift • Þegar hvert tákn vísar til tveggja eða fleiri hljóða. • Myndletur • Þegar tákn vísar til orðs eða orða. • Letur Egypta var af þessu tagi. • Þetta letur var margrætt og erfitt gat verið að tákna huglæg orð á borð við samúð, þoka, snillingur, þurrkur. • Hljóðletur • Þegar hvert tákn stendur fyrir eitt hljóð. • Föníkum og Palestínumönnum datt þessi nýjung í hug. • Einfalt táknkerfi sem flestir geta lært.
Hvers konar skrift er til? • Ýmsir fróðleiksmolar • Á tölvuborði með íslenskum stöfum eru 30 leturtákn. • Ef til væri tölvuborð fyrir myndletur væru lyklarnir a.m.k. 3400. • Venjulegur dagblaðalesandi þyrfti að kunna u.þ.b. 5000 tákn! • Fræðimenn þyrftu að kunna 30.000 táknmyndir!
Hvers konar skrift er til? • Ýmsir fróðleiksmolar, frh. • Tölustafirnir okkar eru myndletur sem Arabar bjuggu til. Táknin 1,2,3... eru alls staðar eins þótt menn beri orðin fram með mismunandi hætti í mismunandi löndum. • Föníkar höfðu bara samhljóð í sínu letri en Grikkir bættu sérhljóðum inn í stafrófið. • Rómverjar lærðu að skrifa af Grikkjum. Þeir löguðu stafrófið að sínu máli og notuðu einungis hástafi. Hástafirnir sem við notum er klassískt rómverskt letur!
Hvaða kosti hefur lágstafaletur? • Það er seinlegt að skrifa hástafaletur þar sem hver stafur er myndaður af beinum línum án tengingar við aðra stafi. • Mun fljótlegra er að skrifa lágstafaletur sem er myndað með bogadregnum línum og hver stafur tengist innbyrðis svo að aldrei þarf að lyfta penna. • Rómverjar bjuggu til s.k. léttiskrift en frá henni er fyrsta lágstafaletrið komið. • Lágstafaletrið var með minni bókstöfum og þeir náðu ekki eins hátt upp í línu. Sumir náðu þó niður fyrir línuna. • Lágstafir eru myndaðir með bogadregnum línum og eru tengdir saman með tengidráttum.
Hvaða kosti hefur lágstafaletur? • Rómverjar skrifuðu með tilskorinni fjöður sem þeir nefndu penna. Þaðan er alþjóðlega orðið yfir skriffæri komið! • Fornþjóðir skrifuðu frá hægri til vinstri . • Rómverskir skrifarar komu á þeirri reglu að skrifa frá vinstri til hægri enda er það auðveldara fyrir rétthenta. • Hebreska og arabíska eru þó enn skrifaðar frá hægri til vinstri.
Hverjir kenndu skrift? Hverjir lærðu að skrifa? • Embættismenn þurftu að læra að skrifa eða láta aðra skrifa fyrir sig. • Þegar kristni festi rætur í rómarveldi varð kirkjan að gríðarlega stórri stofnun með miklu skrifræði. • Klerkar og embættismenn kirkjunnar urðu því sem næst einráðir á ritvellinum.
Hverjir kenndu skrift? Hverjir lærðu að skrifa?, frh. • Skriftin þróaðist með ólíku móti í hverju landi en franskakarlungaletrið, sem svo er kallað eftir frönsku konungsættinni, mótaði þó leturgerðina á meginlandi Evrópu. • Íslendingar tóku þetta letur upp og hefur það varðveist á elstu handritabrotum frá því um 1150 og fram yfir 1300.
Hverjir kenndu skrift? Hverjir lærðu að skrifa?, frh. • Á Írlandi og Englandi mótuðu menn s.k. uncialskrift eða eyjaletur. • Sú leturgerð átti rætur að rekja til rómverskrar léttiskriftar. • Áhrif frá þessari leturgerð bárust til Íslands um Noreg á 12. öld. • Bókstafurinn ð er t.d. fenginn úr eyjaletri en nú eru Íslendingar og Færeyingar einu þjóðirnar sem nota hann.
Hverjir kenndu skrift? Hverjir lærðu að skrifa?, frh. • Skriftarkunnáttan breiddist út um heim allan með kristninni. • Í vestanverðri Evrópu og Skandinavíu er notað latneskt letur en kýrillískt letur er notað í austanverðri álfunni. • Skýringin á þessu er sú að þjóðir Vestur- og Norður-Evrópu tóku við kristni frá Páfanum í Róm en flestar þjóðir austur-Evrópu tóku við kristni af trúboðum frá Konstantínópel (Istanbúl).
Hvað er gotneskt letur? • Forn rómversk byggingarlist einkenndist af mjúkum bogamynduðum steinhleðslum. • Rómversk leturgerð dregur dám af þessu en hún einkennist af bogadregnum línum. • Gotnesk byggingarlist einkennist af oddum í stað boga. • Þetta hefur skilað sér inn í leturgerð en stafir í gotnesku letri eru með grönnum leggjum og hvössum hornum. • Þessarar skriftar fer að gæta í íslenskum handritum um 1300 en vafalítið hefur hún borist hingað í gegnum Noreg. • Smám saman varð til gotneskléttiskrift eða fljótaskrift sem kölluð er svo til aðgreiningar frá gotneskubókletri. • Léttiskriftin var notuð í bréfum og embættisbókum en bókletrið í biblíuþýðingum og Íslendingasögum.
Hvað er gotneskt letur?, frh. • Gotnesk skrift var almennt notuð fram til um 1850 en þá tók latínuletur við. • Það afbrigði latínuleturs sem afar okkar og ömmur lærðu í skóla var gjarnan kallað koparstunga/tengiskrift. • Nú er svokölluð formskrift kennd í skólum landsins en hún dregur dám af hinu forna rómverska letri.
Á hvað var skrifað? • Nokkrum öldum fyrir Krist komust menn í Litlu-Asíu upp á lagið með að verka skinn á sérstakan hátt svo hægt væri að skrifa á það. • Íslendingar bjuggu yfir þessari þekkingu. • Skinnin voru verkuð, skorin í misstór stykki og brotin saman. • Skinnblað = pergament
Á hvað var skrifað?, frh. • Skinnið var dýrt og menn gerðu því hvað þeir gátu til að spara það. • Skrifararnir notuð s.k. bönd til að skammstafa orðin. • K, kr, krg með striki yfir = konungur. • Í byrjun 15. aldar hefst innflutningur á pappír. • Hann var dýr svo að í fyrstu var hann lítið notaður. • Eftir miðja 16. öld fer pappír hins vegar að verða ódýrari og þá hefst prentöld á Íslandi. • Fjöldinn allur af bókum er prentaður og gefinn út.
Hvað voru þeir eiginlega að skrifa? • Bréf embættismanna og afrit þeirra (engar ljósritunarvélar til!) • Eignaskrár kirkjunnar og trúarleg rit. • Íslendingasögur, fornaldarsögur, riddarasögur o.m.fl. sem skrifað var af bændum landsins. • Rímur fylla stærstan hluta þeirra pappírshandrita sem varðveist hafa.