160 likes | 308 Views
Þeir fiska sem róa. Endursmíði báta sem atvinnumál – áhugaverð verkefni. Hver erum við?.
E N D
Þeir fiska sem róa Endursmíðibátasematvinnumál – áhugaverðverkefni
Hver erum við? • Á löngu niðurlægingatímabili íslensku þjóðarinnar um nokkrar aldir, þá er eins og Íslendingar hafi unað nokkuð glaðir við sínar bókmenntir, kaldir, veikir af plágum og nærri vitstola af sulti. Þeir afrituðu hetjusagnirnar af skinnpjötlum og létu svo ímyndunaraflið ljúka sögunni ef það vantaði fútt í atburðarrásina.
Pappírsvíkingar • Íslendingar voru aldrei víkingar. Þeir höfðu hins vegar vald á orðinu - þeir voru pappírsvíkingar, unnu afrek sín á kálfskinn og engin þjóð var hugkvæmari að búa til flókna bragarhætti, engin þjóð duglegri að smjaðra fyrir konungum.
Sjálfsmyndin • Ógæfa Íslendinga er að erlendir ferðalangar og fræðimenn hefðu fyrst og fremst þekkt til í verstöðvum við sjávarsíðuna, þar sem umgengni, híbýli og mataræði, væru með versta móti og ekki dæmigerð fyrir landið, auk þess sem þar byggju ekki dæmigerðir Íslendingar heldur fólk sem spillst hefði af samneyti við útlendinga. Einkum töldu höfundar brögð að þessu í kaupstöðum sunnanlands þar sem íbúar væru „taldir mest úrkynjaðir og dugminnstir“,
Bárðarslippur Hafist var handa við byggingu slippsins árið 1917 og fyrsta skipið dregið á land 1921. Árið 2007 eignast Ísafjarðarbær slippinn og felur Byggðasafninu hann til reksturs og varðveislu. Dráttarbrautin er enn í notkun og getur tekið upp 20-30 tonna báta.