750 likes | 1.12k Views
8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145. Hryggdýr hafa burðarsúlu sem nefnist hryggur. Hann ber uppi líkamann og veitir honum ákveðna lögun. Einnig verndar hann mænuna. Hryggur er ýmist úr brjóski eða beini og skiptist í hryggjarliði. Hryggur úr beini.
E N D
8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145. • Hryggdýr hafa burðarsúlu sem nefnist hryggur. Hann ber uppi líkamann og veitir honum ákveðna lögun. Einnig verndar hann mænuna. • Hryggur er ýmist úr brjóski eða beini og skiptist í hryggjarliði.
Flokkar: vankjálkar, brjóskfiskar, beinfiskar, froskdýr, skriðdýr, fuglar, spendýr http://www.hi.is/~runam/fiskfiles/fiska7-vankjalkar.pdf
8-2 Fiskar bls. 145-149. • Elstu hryggdýr jarðarinnar. Komu fram fyrir um 540 milljónum ára. • Stærstu flokkar brjóskfiskar og beinfiskar. • Anda með tálknum enda best fallnir til lífs í vatni. • Straumlínulaga, sleipir, venjulega þaktir hreistri (eða skráp). • Hafa ugga til að hreyfa sig með og stjórna hreyfingu. Stirtlan og sporður eru sundfæri. • Lifa í fersku vatni eða söltu.
Brjóskfiskar • Hafa stoðgrind úr brjóski. • Dæmi: Háfiskar (hákarlar og háfar) og skötur . • Húð flestra brjóskfiska kallast skrápur. Hann er ekki slímkenndur eins og roð beinfiska heldur hrjúfur vegna örsmárra gadda sem minna á tennur. • Margir brjóskfiskar fæða lifandi unga – hafa því innri frjóvgun. • Skötur og fleiri brjóskfiskar verpa eggjum sem eru eitt og eitt í hornkenndu hylki – pétursskipi. • Háfiskar hafa hvorki sundmaga né tálknlok og verða því að synda stöðugt til að sökkva ekki eða kafna.
8-2 frh. Beinfiskar • Beinfiskar skipa stærsta flokk hryggdýra. Minnsta kosti 20.000 tegundir. Um 200 teg. lifa við Ísland í sjó eða í fersku vatni. • Hafa stoðgrind úr beini. • Húðin kallast roð, er slímkennd og oftast þakin hreistri. Hreistrið er þunnar beinplötur sem sitja í húðinni. • Rákin er skynfæri sem greinir m.a. titring í vatni og hljóð. • Sundmagi er notaður til að stjórna eðlisþyngd. • Hafa flestir ytri frjóvgun. Fæðing unga þekkist.
8-3 Froskdýr bls. 150-152. • Froskdýr eru hryggdýr, líkjast á unga aldri fiskum, lifa þá í vatni og anda með tálknum. Skríða síðan flest á land og anda með húð og lungum sem fullvaxin dýr. • Froskar hafa ytri frjóvgun. Hrygningin fer fram í vatni. • Lungun eru óþroskuð og fer öndun því einnig fram gegnum húð sem þá er háð raka. • Þrír helstu hópar eru froskar, salamöndrur og körtur.
Froskar • Froskar klekjast úr eggi og hefja ævina sem fótalausar lirfur sem minna á fiskseiði. Lirfurnar nefnast halakörtur. Þær hafa langan og áberandi sundhala, eru með tálkn og geta andað í vatni. Smám saman breytast þær, halinn rýrnar, fætur taka að myndast og tálknin hverfa. Samtímis þroskast lungu inni í líkamanum og síðan skríða dýrin á land. Flestir froskar leggjast í dvala yfir kaldasta hluta ársins.
Salamöndrur • Ólíkt froskum eru salamöndrur búklangar og með hala alla ævina. Fætur eru einnig styttri (afturfæturnir). Salamöndrur eru háðar raka líkt og froskar. Þær verpa í vatni og sumar dvelja þar allt sitt æviskeið.
8-4 Skriðdýr bls. 152-155. • Skriðdýr hafa misheitt blóð, anda með lungum og hafa þurra og hreisturkennda húð. Þau verpa eggjum sínum á landi og ala unga sína upp þar. • Í flokki núlifandi skriðdýra eru slöngur,eðlur, skjaldbökur og krókódílar.
Skriðdýr • Skriðdýr eru ekki háð vatni á sama hátt og froskdýrin þar sem þeim er ekki nauðsynlegt að dvelja hluta af ævi sinni í vatni. • Húð þeirra er vatnsþétt og því eru dýrin ekki háð röku umhverfi. • Egg skriðdýra eru með leðurkennda skurn sem kemur í veg fyrir ofþornun þótt þeim sé verpt á landi. Hafa innri frjóvgun sem verður áður en skurnin myndast.
Slöngur • Sumar slöngur hafa eiturkirtla sem fram-leiða eitur sem notað er til að lama bráð eða drepa. Slöngur hafa einnig mjög næm skynfæri sem auðveldar þeim að finna bráð.Tungan er notuð til að finna lykt/bragð. Hafa slæma sjón og heyrn. Hreisturplötur á kvið hjálpa þeim að liðast áfram. Stærstu slöngurnar eru vatnabóa og flekkjaspýtan. Þær eru um 10 m á lengd.
Eðlur • Flestar eru smávaxnar. Kameljónið getur skipt litum og falist þannig fyrir óvinum sínum, líkir eftir litum í umhverfinu. Ef óvinur getur náð taki á hala þeirra, losnar hann af en nýr getur vaxið í staðinn.
Skjaldbökur • Helsta einkenni þeirra eru þykkar plötur úr hyrni sem hylja líkama þeirra og mynda varnarskjöld. Skjaldbökur lifa ýmist á landi eða í vatni en allar verpa eggjum á landi. Þær eru tannlausar og nærast á plöntum eða dýrum. Risaskjaldbökur geta orðið allt að 200 ára gamlar.
Krókódílar • Krókódílar eru náskyldir risaeðlunum. Þeir eyða mestum af tíma sínum í vatni og veiða oft stór dýr eins og sebrahesta. Móðir hugsar vel um afkvæmi sín og ber þau jafnvel í munninum.
8-5 Fuglar bls. 156-161. • Fuglar eru fiðruð hryggdýr með jafnheitt blóð og verpa eggjum. • Egg fugla hafa um sig harða skurn úr kalki. Allur forði ungans rúmast í egginu . Loftskipti súrefnis og koltvíoxíðs fer fram gegnum skurnina. • Til eru um 9000 tegundir fugla sem skiptast í fjölmarga ættbálka og ættir. Hér á landi verpa 70-80 tegundir.
8-5 Fuglar framhald • Fyrstu fuglarnir lifðu á jörðinni fyrir um 150 milljónum ára á blómaskeiði risaeðlanna. Þessir frumstæðu fuglar nefnast eðlufuglar og báru ýmis einkenni skriðdýra s.s. langa rófu og hvassar klær. • Núlifandi fuglar hafa ein einkenni skriðdýra, hreisturkennda húð á fótum.
Skipting fugla • Í Lifandi veröld er fuglum skipt í fimm meginhópa: spörfugla, sundfugla, vaðfugla, ránfugla og ófleyga fugla.