360 likes | 567 Views
Tímastjórnun og Skipulögð vinnubrögð áunnin ekki meðfædd . Marín Björk Jónasdóttir. Yfirferð námskeiðs. Seinni hluti Námsleiði Prófundirbúningur, próftaka Frestunarárátta Glósutækni Minnistækni Lestrartækni Námstækni stærðfræðinnar. Námsleiði. Getur birst sem: Áhugaleysi
E N D
Tímastjórnun ogSkipulögð vinnubrögðáunnin ekki meðfædd Marín Björk Jónasdóttir
Yfirferð námskeiðs Seinni hluti • Námsleiði • Prófundirbúningur, próftaka • Frestunarárátta • Glósutækni • Minnistækni • Lestrartækni • Námstækni stærðfræðinnar Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Námsleiði • Getur birst sem: • Áhugaleysi • Aðgerðarleysi • Sinnuleysi • Margar ástæður • Erfiðar námsgreinar • Lestarerfiðleikar / námserfiðleikar • Persónulegir erfiðleikar Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Námsleiði – hvað er til ráða? • Greina rótin • Námið, allt eða hluti (erfitt, leiðinlegt) • Blanda saman námsgreinum – fjölbreytni – stuttur tími í einu • Samnemendur eða kennari • Heimilisaðstæður • Fjárhagur... Osfrv. • Þora að horfast í augu við ástæðuna • Hvað er ég tilbúin að gera í raun og veru? • Setja sér markmið um hvernig ætla ég að vinna á honum • Fá aðstoð ráðgjafa / vina / ættingja / maka Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Prófundirbúningur • Finna áhersluþætti – fá upplýsingar frá kennara • Finna öll gögn: bækur glósur, verkefni, ritgerðir og próf (eigin og gömul próf) • Spyrja kennara um vafaatriði • Lesa öll gögn um sama efni “í einu” • Búa til spurningar jafnt og þétt • Umorða mikilvæg efnisatriði • Skipuleggja tímann – gera átætlun um lestur og hvíld daglega • Finna “góðan” vinnustað • Gera ráð fyrir tíma og slökun • Nægur svefn, hreyfing og hollur matur Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Próftaka • Jákvætt hugarfar • Hlusta á allar leiðbeiningar í upphafi • Hafa krassblað við hendina til að punkta á • Lesa yfir allt prófblaðið og punkta niður minnisatriði • Velja strax á milli spurninga • Ekki dvelja of lengi við sem þú getur ekki svarað strax • Reikna út hámarks tímalengd í hverja spurningu • Nota próftímann vel og gera ráð fyrir yfirferð í lokin • Spyrja kennarann ef eitthvað er óljóst • Einbeita sér að prófinu og láta ekki truflast ef aðrir fara að skila Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Prófkvíði • Kvíði er algeng og eðlileg viðbrögð við hættu eða álagi • Er ekki vandamál nema hann fari að hamla viðkomandi í lengri tíma • Einkennin geta verið líkamleg og andleg • Hægt að vinna á ef fólk vill takast á við hann og gera það sem til þarf • Mikill prófkvíði er yfirleitt lært atferli Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Einkenni prófkvíða • Helstu einkenni • Neikvæðar hugsanir • Vanlíðan • Vanmáttarkennd • Óróleiki / spenna / ótti • Vöðvaspenna, sviti, ör hjartsláttur, svefntruflanir, ógleði • Skipulagsleysi, frestun, einbeitingarskortur Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Úrræði við prófkvíða • Temja sér að stjórna hugsunum og gera þær jákvæðar • Fara á prófkvíða námskeið • Efla sjálfstraustið markvisst – námskeið/ þjálfun • Slökunaræfingar (sjá næstu glæru) • Skipulagning og framkvæmd • Fá stuðning ef á þarf að halda hjá ráðgjafa, vinum, ættingjum, samnemendum..... Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Slökunaræfing • Komdu þér vel fyrir í stólnum • Snúðu gögnunum á hvolf og slepptu skriffærum • Lokaðu augunum og andaðu hægt frá þér • Andaðu djúpt og þegar þú ert komin alveg í botn taktu þá smá loft í viðbót, snöggt í gegnum munninn • Andaðu hægt frá þér og sjáðu fyrir þér hvernig spennan fer úr höfðinu og niður skrokkinn og lekur á gólfið • Endurtaktu þessa öndun 3 sinnum • Opnaðu augun og gefðu þér 2-3 mín. til að hugsa um eitthvað jákvætt og skemmtilegt • Haltu áfram að læra/ taka prófið Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Frestunarárátta • Óttinn við að framkvæma tekur frá okkur meiri orku og tíma en framkvæmdin sjálf • Þeir sem fresta hlutum gera það af því að: • Verkefnin eru yfirþyrmandi • Stór, flókin og ill yfirstíganleg • Ótti • Verkefnin eru leiðinleg • Fókusera á líðan þegar verkinu er lokið. Leiðinleg verk geta verið uppsretta vellíðunar. • Tímasetja hvað og hvenær verk er unnið Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Frestunarárátta og ótti • Nokkrar tegundir af ótta • Ótti við ófullkomnun • Bið eftir rétta tímanum, skapinu, veðrinu .... • Ótti við gagnrýni • Hvað finnst öðrum / heimska, leti .... • Ótti við mistök • Ef við lærum af þeim = reynsla • Ótti við verklok • Þá þarf að byrja á e-u öðru jafn leiðinlegu, erfiðu, flóknu .... • Ótti við að taka rangar ákvarðanir • Frestum þar til við erum sannfærð um hver sú rétta er Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Til hvers að glósa í tímum? • Aukin virkni – minni hætta á að detta út/ sofna • Kennarinn kemur með viðbótar upplýsingar? • Aukið minni varðandi það sem fram fór • Gefur yfirlit yfir áherslur í námsefninu • Skipulegar og nákvæmar glósur auðvelda upprifjun Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Glósutækni – í tíma • Ferlið: • Vera undirbúin undir tímann • Hlusta – á það sem kennarinn segir • Meta – hvað eru aðalatriði og hvað aukaatriði • Framsetning– fá og skýr orð, nota eigið orðalag, spyrja ef eitthvað er óljóst • Skrifa – hratt en læsilega, nota skammstafanir og tákn • Prenta út glærur = 3 á blaði + línur • Skrifa í “notes” á glærum Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Glósutækni - almenn • Nota undirstrikanir / yfirstrikanir / stjörnumerkingar/ ramma/ teikningar • Skrifa athugasemdir á spássíuna • Nota “kaflaheiti” lykilorð og meginmál í glósum • Spjaldaaðferð • Skammstafa og nota tákn til að flýta fyrir Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Minnið • Skipting minnis • STM (7+/- 2 atriði, 20 sek.) • LTM (óendanleg rýmd og tími) • Upprifjunargetan hamlar því að við getum rifjað upp • Mikilvægt að umskrá upplýsingar markvisst þegar þær eru fluttar frá STM yfir í LTM, ef við ætlum að geta fundið þær án mikillar fyrirhafnar Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Minnistækni • Helstu einkenni minnisaðferða • Minniskerfi notuð ein sér eða saman • Hugmyndarflugið nýtt í botn, húmor/ fjarstæða • Tengsl – milli atriða skiptir miklu máli • Helstu tegundir minnisaðferða • Söguaðferð • Staðaraðferð • Rímur og kveðskapur Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Lestrartækni – „Styrktar” lestur • Áður en þú lest • Yfirlit • Útlínur • Spurningar • Meðan þú lest • Lestur • Undirstrikanir og spássíu krot • Svör • Eftir lestur • Endursögn • Yfirferð • Önnur yfirferð Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
1. Áður en þú lest - a • Yfirlit • Sjáðu fyrir þér verkefnið = hitar upp minnið • Kíkja á efnisyfirlit, lesa samantektina, renna yfir fyrirsagnir og undir fyrirsagnir • Leitaðu eftir kunnuglegum hugtökum, staðreyndum eða hugmyndum = myndar tengsl við það sem við kunnum • Skoðaðu töflur, myndir, línurit osfrv. • Til hvers ertu að lesa efnið – finna aðalatriði / læra efnið vel/ bæta við það sem þú veist nú þegar... Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
1. Áður en þú lest - b • Útlínur • Skoðaðu uppbyggingu bókarinnar og kynntu þér hana • Búðu til útlínur ef þær eru ekki til staðar • Krotaðu á spássíuna • Skrifaðu á spjöld • Skrifaðu í bók • Fyrirsagnir (aðal og undir) geta nýst sem útlínur • Þær má líka umorða/ breyta í spurningu til að auka skilning Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
1. Áður en þú lest - c • Spurningar • Ákveddu hvaða spurningum þú ætlar að leita svara við – sbr. Yfirlitið • Dæmi: styktarlestur = um hvað er hann? • Snúðu fyrirsögnum yfir í spurningar • Leitaðu að lykilsetningum (oftast í upphafi eða við lok hvers kafla / efnisgreinar) • Ef eitthvað er óljóst, skrifaðu niður spurningu um það • Því nákvæmari spurning – því betra Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
2. Meðan þú lest - a • Lestur • Byrjaðu á því að gefa þér augnablik til að yfirfara það sem þú veist nú þegar = undirbýr heilann • Ákveddu tímalengd strax og stilltu klukku, þá er auðveldara að ýta huganum á rétta braut • Taktu ca 10. mín hlé á klst. • Ef lesturinn er erfiður taktu ca 5 mín á hálftíma fresti. Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
2. Meðan þú lest - a • Lestur - frh • Til að halda athyglinni – heilræði • Sjáðu fyrir þér efnið – hvernig þú ætlar að lesa það og hversu langt þú stefnir að því að komast í þessari lotu • Lestu upphátt nokkrar setningar • Fáðu tilfinningu fyrir efninu • Rifjaðu upp markmiðið með lestrinum – skoðaðu spurningarnar sem þú bjóst til • Sittu beinn í baki, fremst á stólnum eða stattu Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
2. Meðan þú lest - b • Undirstrikanir / spássíukrot • Skemmtu þér við að skrifa í bækurnar • Tilgangurinn að geta rifjað upp atriðin fljótt og vel • D: um skammstafanir – ath – gp – nss – wow - ?? – 1 – 2 – 3 – a – b – c – sp – F – hm!! ........ • Þá fá vöðvarnir e-ð að gera = minnkar líkur á lúr • Lestu efnisgreinina áður en þú ákveður að strika undir • Ekki strika undir meira en ca 10% af texta • Skrifa lykilorð, tákn, hugtök ofl. á spássíuna / spjald / tölvuna / stílabók. Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
2. Meðan þú lest - c c. Svör við spurningum • Leitaðu eftir svörum við þeim spurningum sem þú skráðir niður • Bættu við útlínurnar hjá þér • Skrifaðu niður nýjar spurningar og svör • Punktaðu hjá þér ef þú finnur ekki svör • Spurðu kennarann / samnemendur um svör sem þú finnur ekki Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
3. Eftir að þú hefur lesið - a • Endursögn • Gerist strax eftir lesturinn • Getur aukið minnið í yfir 80% • Segðu sjálfum þér eða öðrum hvað þú hefur verið að lesa • Kíktu á undirstrikanir og athugasemdir, lokaðu bókinni og segðu upphátt og útskýrðu efnið • Að tala um hluti eykur færni í að draga saman aðalatriðin Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
3. Eftir að þú hefur lesið - b • Yfirferð • Gerist innan 24 stunda eftir lesturinn • Innan 24 stunda færir upplýsingarnar betur frá STM yfir í LTM • Kíktu á glósurnar • Finndu út það sem er óljóst • Endursegðu sum atriðin aftur • Notaðu ca. 10-15 mín fyrir 2ja stunda efni • Getur sparað nokkrar klst. Í próflestri Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Gleymskukúrfan Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
3. Eftir að þú hefur lesið - c • Yfirferð TVÖ • Gerist eftir viku/ mánuð – fer eftir fagi • Tekur yfirleitt um 5 mín. á viðfangsefni • Rennt yfir glósur / yfirstrikuð atriði / spássíukrot • Tilgangur – að halda taugaleiðum opnum og á vísum stað fyrir tiltekið efni • Hægt að gera víða (á biðstofum, í baði, í bílnum) • Gott að nota spjöld sem á standa aðalatriði, reglur, lykilorð, útskýringar, hugmyndir ofl. Handhægt að taka með sér. • Gott að vera með nokkur auð spjöld í farteskinu /eða bók Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Að lesa hratt • Settu skrokkinn í réttar stellingar • Settu þér tímamörk • Slakaðu á • Hreyfðu augun hraðar – notaðu hjálpartæki • Taktu eftir og losaðu þig við gagnslausa vana • Skimaðu ef þú ert í tímaþröng • Vertu sveigjanlegur • Finndu fleiri heimildir um hraðlestur Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Æfing til að slaka á augunum • Sestu á stól eða leggstu niður og taktu þér augnablik til að anda djúpt • Lokaðu augunum og settu lófana yfir þau og sjáðu fyrir þér svartan völl • Haltu áfram að sjá svarta völlinn í 2-3 mín. Á meðan þú andar hægt og djúpt • Taktu hendurnar frá augunum og opnaðu þau hægt • Slakaðu á í ca. 1 mín. Í viðbót og haltu síðan áfram Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Erfiður lestur - heilræði • Lestu efnið aftur – sofðu á því ef á þarf að halda • Leitaðu að lykilorðum (nafnorð eða sagnir) • „Skráðu” niður mini-yfirlit reglulega / talaðu • Lestu upphátt • Talaðu við kennarann eða samnemnendur • Stattu upp • Kíktu á samantektina af og til (upphaf eða lok kaflans) • Finndu þér tutor • Finndu annan texta um efnið • Láttu eins og þú skiljir efnið • Spurðu þig spurninga – merktu t.d. F = Fastur - á spássíuna og skoðaðu hvar þú hefur merkt F í lok kaflans • Hættu að lesa og gerðu e-ð allt annað og komdu ferskur að efninu seinna Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Námstækni í stærðfræði • Reiknaðu sjálf/ur öll verkefni sem lögð eru fyrir • Skráðu nákvæmlega það sem ekki gengur upp – greindu vandamálið • Talaðu við kennarann / samnemendur • Finndu nýjar leiðir til að nálgast efnið • Rifjaðu upp reglulega fyrra námsefni með því að reikna • Leggðu þig fram um að ná tökum á tungumáli stærðfræðinnar • Áttaðu þig á eigin hugsunum í garð stærðfærðinnar – hver eru þín eigin viðhorf og eiga þau við rök að styðjast • Prófundirbúningur á að taka stuttan tíma ef þú hefur lært jafnt og þétt alla önnina – annað hvort kanntu aðferðirnar eða ekki Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Algeng einkenni nemenda sem gengur vel í námi • Skipulagðir • Jákvæðir og glaðværir • Sveigjanlegir – opnir fyrir breytingum og nýjungum • Skapandi • Forvitnir og spurulir • Ábyrgðafullir • Samviskusamir • Vilja taka áhættu Hvaða eiginleika hefur þú? Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi
Góða skemmtun & Gangi ykkur vel Marín Björk Jónasdóttir - náms og starfsráðgjafi