420 likes | 1.35k Views
5. Kafli fyrri hluti. Öndun. Hlutverk öndunarkerfisins. Viðheldur réttum styrk súrefnis og koltvísýrings í blóði Hjálpar til við að viðhalda réttu pH gildi blóðs Hefur lyktarnema Hreinsar, hitar og rakamettar innöndunarloftið Hljóðmyndun. Öndunarkerfið. Nasir. Nefhol. Kok.
E N D
5. Kaflifyrri hluti Öndun
Hlutverk öndunarkerfisins • Viðheldur réttum styrk súrefnis og koltvísýrings í blóði • Hjálpar til við að viðhalda réttu pH gildi blóðs • Hefur lyktarnema • Hreinsar, hitar og rakamettar innöndunarloftið • Hljóðmyndun
Öndunarkerfið • Nasir. • Nefhol. • Kok. • Barki (efst er barkakýli). • Meginberkjur (ein í hvort lunga). • Berkjur (greinast í minni og minni berkjur). • Berklingar. • Lungnablöðrur. • Háræðanet.
Lungun • Meginlíffæri öndunarfæranna. • Tvö stór svampkennd líffæri sem liggja hlið við hlið í brjóstholinu • Vinstra lungað er minna en það hægra þar sem hjartað tekur pláss frá lungunum • Hvort lunga er klætt tvöfaldri himnu, brjósthimnu/fleiðru.
Fleiðruhimnur • Innri himnan (lungnafleiðra) klæðir lungað en sú ytri (veggfleiðra) klæðir brjóstkassann að innanverðu, þindina að ofanverðu og gollurshús. • Fleiðruhol er á milli fleiðranna • Undirþrýstingur í fleiðruholi heldur lungum upp að brjóstveggnum • Í fleiðruholinu er smurvessi sem auðveldar öndunarhreyfingar • Ef opnast inn í fleiðruhol, hverfur þessi undirþrýstingur og lungun falla saman (loftlunga)
Samfallið lunga • Ef op myndast á fleiðruhimnunar þá hættir undirþrýstingur og samloðun fleiðranna og lungað fellur saman út af teygjanleika sínum • Einnig þenst brjóstkassinn út
Brjósthol • Þind er sterkur, hvelfdur vöðvi sem aðskilur brjósthol og kviðarhol. • Brjósthol afmarkast af: • Rifbeinum. • Hryggjarliðum. • Bringubeini. • Millirifjavöðvum. • Þind
Nef • Loft kemur inn um nasir • Í nefholinu er loftið hitað, hreinsað og blandað raka. • Nefhol: • Mörg afhol með nefskeljum. • Slím (örður festast í slíminu, inniheldur sýklaeyðandi efni). • Bifhærðar frumur • Lyktarskyn.
Kok • Kok er hluti af öndunarvegi og meltingarvegi. • Loft berst um nefhol í gegnum kok og niður í barkann. • Barkarspeldi er smár flipi sem hindrar að fæðan fari ofan í barka.
Barkarkýli • Barkarkýli er líffæri raddmyndunar • Raddböndin eru vöðvafellingar sem teygja sig út frá hliðarveggjum barkakýlisins • Þröngt svæði á milli raddbandanna kallast raddglufa • Raddböndin titra þegar loft þrýstist í gegnum barkarkýlið og við það myndast hljóð • Karlmenn hafa stærra barkakýli og slakari raddbönd • Þessvegna hafa þeir dýpri rödd
Barki • Bein pípa sem liggur framan við vélinda. • Styrktur brjóskhringjum sem eru opnir að aftan • C-laga brjóskhringir • Tryggja þeir að barkinn leggist ekki saman • Þekja barkans seytir slími og er bifhærð • Ver lungun fyrir rykögnum og sýklum.
Öndunarvegurinn • Berkjurnar eru tvær og liggja í sitthvort lungað (aðalberkjur) • Hvor berkja greinist í smærri og smærri greinar (lungnaberkjur) og að lokum í berklinga. • Lungnaberkjurnar hafa svipaða byggingu og barkinn þ.e. hafa brjóskhringi (ekki þær allra minnstu) og bifhærðar þekjufrumur sem seyta slími. • Rúmlega milljón berkjur eru í hvoru lunga. • Berkjur skiptast svo í berklinga • Berklingar og smæstu berkjurnar hafa slétta vöðva en ekki brjóskhringi • Lungnaberkjur eru svo loks á endum berklinga
Lungnablöðrur • Klasi af blöðrum á enda hverrar berklu • Lítur út eins og vínberjaklasi • Alsettar háræðaneti
Lungnablöðrur • Lungnablöðrunar eru ekki heil blaðra, heldur eru þær blöðrur í blöðrum (klasar) • Er þetta gert til að auka yfirborð og súrefnisupptöku • Hjá reykingarfólki fletjast blöðrunar út og loftskipti minnka
Frumur í lungnablöðrum • Flögulaga þekjufrumur • Mynda bollalaga lungnablöðrur • Surfactant myndandi frumur • Surfactant er efni sem minnkar yfirborðsspennu í lungum og hindrar að þau falli saman • Átfrumur (macrophagar) • Hreinsa lungun • Lungu reykingarfólks verða svört þegar átfrumur hafa borðað mikið af tjöru og reyk
Súrefnisfluttningur • Súrefni flæðir úr lungnablöðrunum í háræðablóðið og koltvíoxíð flæðir úr blóði í lungna-blöðrurnar • Einfalt flæði, þ.e úr meiri styrk í minni • Flutningur súrefnis og koltvíoxíðs í gagnstæðar áttir kallast loftskipti • Súrefni leysist upp í vökva áður en loftskiptin fara fram. • Öndunaryfirborð er u.þ.b. 60 – 90 m2.
Súrefnisfluttningur • Súrefni flæðir inn í háræðarnar úr lungnablöðrunum, þar sem styrkur þess er lægri í blóðinu (flæði) • Koldíoxíð flæðir úr háræðum út í lungnablöðrunar, af sömu ástæðum
Stjórnun öndunar • Öndunarhreyfingar eru að mestu sjálf-ráðar og stjórnast því af dultaugakerfinu • Þeir hlutar heilans sem sjá um öndun eru mænukylfa og brú • Mænukylfa stjórnar innöndun og útöndun • Brú getur haft áhrif á tíðni og dýpt öndunar • Þó getum við stjórnað öndun með viljtaugakerfinu • Þættir í blóðinu sem hafa áhrif á hraða og dýpt öndunar: • CO2, pH og O2 • Það eru nemar í MTK, aðallega í mænukylfu (miðnemar) og í æðum (útnemar) • Nemarnir (miðnemarnir) eru einkum næmir á breytingar í í blóði CO2 • Aukning á CO2 eykur tíðni go dýpt öndunar
Öndunarhreyfingar • Þind og millirifjavöðvar sjá um öndunarhreyfingar
Öndunarhreyfingar Innöndun: • Þindin verður flöt þ.e. spennist niður á við vegna vöðva-samdráttar. • Millirifjavöðvar dragast saman og við það spennast rifbein út og upp á við • Innöndun við áreynslu notar fleiri vöðva • Lungun fylgja brjóstveggnum eftir og rúmmál þeirra stækkar • Undirþrýstingur myndast innan brjóstholsins og loft flæðir inn í lungun undan þrýstingsfallanda
Öndunarhreyfingar Útöndun: • Þindin slaknar og hvelfist • Millirifjavöðvarnir slakna • Við þetta minnkar brjóstholið og þrýstingur í brjóstholi eykst • Loft þrýstist út úr lungunum • Fer út meiri þrýstingi í minni • Útöndun er passíft (óvirkt) ferli sem er aðallega vegna teygjanleika lungnanna • Útöndun við áreynslu notar hinsvegar vöðva • Innri millirifjavöðva og kviðvöðva
Öndunarhreyfingar • Því má líkja lungum við fýsibelg • Þegar rúmmál fýsibelgjarins er aukið þá fyllist hann af lofti • Samanber innöndun • Þegar rúmmál hans minnkar þá fer loftið úr honum • Samanber útöndun
Öndun • Öndunarloft: • Loft sem fer um lungun í einum andardrætti (~1/2 lítri í hvíld). • Viðbótarloft: • Það loft sem hægt er að draga inn eftir venjulega innöndun (~3 lítrar). • Varaloft: • Það loft sem hægt er að blása frá sér eftir venjulega útöndun (~1,2 lítrar). • Andrýmd: • Viðbótarloft + öndunarloft + varaloft • Er mismunandi hjá fólki, fer eftir líkamsstærð (u.þ.b. 4,7 lítrar) • Loftleif: • Loft sem eftir er í lungunum að lokinni hámarksútöndun (rúmlega lítri). • Dautt rúm: • Loft í öndunargöngum sem nær aldrei til “lungna” (100 – 150 ml).
Flutningur öndunarlofts • Súrefni leysist lítið í blóðvökva en binst járni í blóðrauðanum (allt að 4 sameindir O2 í einni sameind af blóðrauða) • Súrefni flyst því aðallega bundið blóðrauða (98%) • Ef súrefni tengist blóðrauða verður blóðið ljósara á litinn • Koldíoxíð leysist mun betur upp í blöðvökva (7% flyst þannig), en mest af því er flyst sem bíkarbónat (70%) (HCO3- ) og afgangurinn (23%) binst blóðrauða • Bíkarbónat er mikilvægur buffer í blóðinu CO2 + H2O H2CO3 H+ + HCO3– koldíoxíð + vatn Kolsýra vetnisjón + bíkarbónat
Flutningur öndunarlofts • Mettunarhlutfall súrefnis í blóðrauða er hátt þegar hlutþrýstingur (magn) súrefnis er hár. • Þegar hlutþrýstingur (magn) súrefnis fellur út í vefjum lækkar mettunarhlutfallið og súrefnið losnar út í vefina • Þannig losnar súrefni greiðar í þá vefi sem þurfa á því að halda • Um leið og blóðið flytur O2 úr öndunar-færunum til starfandi vefja ber það CO2 til baka • Innri öndun: frumur taka upp O2 og láta CO2 frá sér
Flutningur öndunarlofts • Nokkrir þættir auka auka losun á O2 úr háræðablóði til vefja • Aukið CO2 í vef • Aukinn hiti í vef • Lægra pH gildi (súrnun vöðva) • Minna af O2 í vef • Þ.e. allt þættir sem fylgja aukinni virkni vefsins • CO (kolmónoxíð) binst blóðrauða á sama hátt og O2 en tengslin eru miklu sterkari => teppir flutning á súrefni
Háfjallaveiki • Hátt til fjalla er loftið þynnra og því er loftþrýstingur lægri en við sjávarmál. • Mettunarhlutfall súrefnis er lægra • Þar sem loftþrýstingu er minni verður hlutþrýstingur súrefnis í innöndunarlofti minni • Háfjallaveiki: þreyta, svimi, höfuðverkur og ógleði • lagast á nokkrum dögum þar sem rauðum blóðkornum fjölgar og þar með flutningsgeta súrefnis í blóði
Eðlileg berkja Öndunarvegur vel opinn Slím Æðar Asmi • Ýmis efni geta valdið asma. • Berkja í einstaklingi með asma einkennist af tvennu • miklu slími • samdrætti sléttra vöðva.
Reykingar • 90% allra lungnakrabbameina eru rakin til reykinga • Aðeins 12-15% þessa krabbameina eru meðhöndluð með nútíma lyfjum • Lungnaþemba er einnig algeng hjá reykingarfólki (80% tilfella) • Talið er að 30% allra hjartaáfalla megi rekja beint til reykinga • Talið er að reykingar minnki ævilíkurnar að meðaltali um 7 ½ ár • Fjórði til fimmti hver reykingarmaður deyr beinlínið af völdum tóbaksnotkunar sinnar
http://www.youtube.com/watch?v=mZvHiiWFbBU • http://www.youtube.com/watch?v=gCMzjJjuxQI • http://www.youtube.com/watch?v=86lYG1V2-n4